Frjáls verslun - 01.07.1991, Blaðsíða 31
Dagvistarþjónusta hér er minni en tíðkast á hinum Norðurlöndunum en ætti að vera meiri, m.a. vegna þess að
Islendingar eiga að jafnaði fleiri börn.
Frjáls verslun hringdi í nokkur
stærstu fyrirtæki landsins til að kanna
hvort og hvemig þau aðstoðuðu
starfsfólk með böm. Svörin voru mis-
jöfn. Ekkert fyrirtækjanna hafði sér-
staka stefnu hvað varðaði fjölskyldu-
mál starfsmanna sinna og flestir sögð-
ust leysa þessi mál jafnóðum og þau
kæmu upp. Einn starfsmannastjórinn
hafði ákveðnar skoðanir á persónu-
legum högum starfsmanna sinna:
„Fólk verður sjálft að finna lausn á
þessum málum. Við erum fyrst og
fremst að reka fyrirtæki hér, en ekki
hjálparstofnun.“
Vissulega eru takmörk fyrir því
hversu langt fyrirtæki geta gengið í
að samræma rekstur og persónulega
hagsmuni starfsmanna sinna en von-
andi eru þessi ummæli ekki táknræn
fyrir viðhorf íslenskra stjómenda til
fjölskyldulífs.
„BARNVÆN“ FYRIRTÆKIBJÓÐA UPP Á
ÝMSA MÖGULEIKA
Sífellt fleiri erlend fyrirtæki reyna
að koma til móts við þarfir starfsfólks
sem þau þyrftu annars að sjá á eftir ef
ekki væri boðið upp á lausnir eins og
sveigjanlegan vinnutíma og að skipta
með sér starfi. I bandaríska tímaritinu
Fortune kemur fram að mörg stór-
fyrirtæki, þ.á.m. American Express,
IBM, Levi Strauss og PepsiCo, hafa
öll lagt línur sem eiga að auðvelda
foreldrum að sinna börnum og heimil-
islífi sem og starfinu. Tvær konur
skipta með sér starfi sölustjóra hjá
greiðslukortafyrirtækinu American
Express og það með góðum árangri;
þær færðu fyrirtækinu 20% af nýjum
viðskiptavinum þess á árinu 1990.
Þær vinna hvor um sig þrjá daga í viku
og skipta starfinu, sem felst í flókinni
markaðssetningu. Þriggja barna
móðir, sem annast fjármögnun ým-
issa verkefna fyrir PepsiCo, fór fram
á sveigjanlegan vinnutíma eftir að hún
Við geymum vöruf Fjölbreyttur geymslumáti Við sendum vörur Salan er þitt mál
r — *
r0j) || li ■r
• OTOLLAFGREIDDAR
• TOLLAFGREIDDAR
• INNI.KNDA FRAMI.KIDSI.U
• BÚSI.ÓÐIR OG ANNAD FYRIR
EINSTAKLINGA (Xi KYRIRTÆKI
• im.i.unus
• KLEFAR
•GÁMAI’LÁSS
• FRYSTIGFYMSLUR
• ALMKNN VÖRUGFYMSl.A
•SKÁI’AR
• ÚTISVÆDI
•IIFIM AI.AGER
• Á VÖRUFt.UTNINGA-
MIDSTÖDVAR
• DKINTTIL KAUI’ANDA
VIÐ EFTIRLATUM ÞER
SÖLUNA OG MARKAÐSMÁLIN
"S Flutningsmiölun
Btislóðageymsla
"STollskýrslur fyrir
einstaklinga og
fyrirtæki utan
tollvörugeymslu
^Uilluhús
% Skjalageymsla
Tölvubeintenging
31