Frjáls verslun - 01.07.1991, Síða 38
ERLENT
TIME WARNER HEIMSVELDIÐ
Þegar Time og Warner runnu saman í
eitt á síðasta ári varð útkoman
sannkallaður fjölmiðlarisi. Þeir eru
fremstir í sinni röð í útgáfustarfsemi,
tónlistarútgáfu og kaþalsjónvaiþi með
gjaldtöku en þegar litið er til
kvikmyndaframleiðslu og hefðbundinna
kaþalsjónvarpsstöðva teljastþeir vera
meðal þriggja stærstu fyrirtækjanna.
Hér á eftir er uþptalning á öllum
deildum fyrirtækisins og helstu eignum,
kostum oggöllum. Einnig eru gefnar
uþþ rekstrartekjur síðasta árs en þær
námu samtals um 744 milljörðum
króna og fjármagnsflæði eða
tekjuafgangur (fyrir skatta og afskriftir)
en hann nam tæþlega 142 milljörðum
króna.
TÓNLIST
Eignir: 22 stór útgáfufyrirtæki, þar á
meðal Warner Bros., Atlantic og
Elektra. Mikill fjöldi stórstirna, svo sem
Madonna ogPhil Collins.
Dreifingarkerfi um allan heim sem á
engan sinn líka. Tónlistarmarkaðurinn
hefur verið fremur dræmur undanfarið.
Rekstrartekjur eru 185 milljarðar en
tekjuafgangur 35 milljarðar.
BLAÐAÚTGÁFA
24 tímarit, þar á meðat Time, Peoþle,
Fortune og þrjú af fimm söluhæstu
tímaritunum. Auglýsingamarkaðurinn er
heldur daþur um þessar mundir.
Rekstrartekjur eru 185 milljarðar en
tekjuafgangur 23 milljarðar.
Engin veggþynning í múffu og
fullkomin þétting með tvöföldum
láshring tryggir öruggan frágang.
Jarðvegslagnir Pvc 100mm, 150mm
og nú einnig 200mm.
Innanhúslagnir Pp 40mm, 50mm,
70mm og 100mm.
Bjóðum einnig tilheyrandi
tengistykki.
EYRAVEGI 43•800 SELFOSSI
Box 83 • SÍMI 98-22700 • Fax 98-22099
SET FRÁRENNSLISRÖR
38