Frjáls verslun - 01.07.1991, Side 51
Frá opnun skrifstofu fyrirtækis Guðna í London fyrir skömmu.
vegna þess að margir þeirra höfðu
t.a.m. þær hugmyndir greyptar í
huga sér að á hverju götuhorni á Spáni
væru menn með hnífa og að þetta
væru meira og minna ribbaldar.“
Erum við ennþá sér á báti?
„Nei, það held ég ekki. Við höfum
verið að stíga skref í rétta átt og það
er ljóst að við verðurn að fylgja þeim
þíðu vindum sem blása um Evrópu
um þessar mundir. Það þýðir ekkert
fyrir okkur að einangra okkur og lifa
einhverju afdalalífi. Ef við ætlum okk-
ur að byggja upp einhverjar hindranir
og sérreglur með ímyndaða hags-
munagæslu einstakra fyrirtækja að
leiðarljósi þá munu nágrannar okkar
gæta hagsmuna hins íslenska borgara
og ekki líða slíkt. Það getur hver sem
er flutt hvað sem er á sjó og þróunin
virðist stefna í þá átt í loftflutningum
einnig, enda í sjálfu sér enginn eðlis-
munur á þessum flutningamátum.
Þegar flugvélar taka sig á loft verða
þær jú að lenda einhvers staðar og
það segir sig sjálft að það land, sem
lenda á í, getur haft sitt að segja ef
menn eru ekki tilbúnir til þess að fara
eftir Guðs og manna lögum.“
STRÖNG HAGSMUNAGÆSLA
Hvemig var barátta þín við ríkis-
valdið í sambandi við Air Viking? Ætl-
aði ríkisvaldið kannski að knésetja
þig?
„Þetta er mjög merkilegur kafli og
um hann er óskrifuð bók. Þannig var
mál með vexti að einn af bankastjór-
um Seðlabankans var í stjóm einka-
fyrirtækisins Flugleiða og þar mynd-
aðist ströng hagsmunagæsla sem al-
mennt þekkist ekki norðan
Sahara-eyðimerkurinnar. Þessi
bankastofnun fór í gang með ofsókn-
araðgerðir í garð minnar starfsemi.
Það var farið fram á opinbera rann-
sókn á Air Viking, en þá var banka-
stofnuninni bent á það að þá þyrfti líka
að fara fram rannsókn á fyrirtækjum
svo sem Hagkaup, Toyota-umboðinu
og fleiri fyrirtækjum sem hafa spjarað
sig vel. Ég er viss um það að ef Air
Viking hefði verið látið í friði hefðum
við spjarað okkur alveg eins vel og
Hagkaup og Toyota-umboðið - þau
fyrirtæki sem þótti jafn ærin ástæða
til að rannsaka á sínum tíma.
ARMOR PRENTBORÐAR
Ódýr gæðaframleiðsla sem hefur verið á íslenskum markaði í fimmtán ár.
CITIZliN 120 D Prentborði 560 kr.
DÆMI UM EPSON MX 100 og CITIZEN 15, 25, 50 ÍBM 3262/5262 OCR Prentborði 623 - 1121 -
FACIT 4540/4542 Prentborði 720-
VERÐ M/VSK: MICROLINE OKI 393 Prentborði MICROLINE 182-3-192-3-320-321 Pr entborði 2241 - 623 -
NEC 8000 Prentborði 458-
#%ARMOR
T0LUUREH5TUR HE
Bolholt 6, 5. hæð • 105 Reykjavík • Sími: 678240
Telefax: 678241 ■ Opið frá kl. 9-12 & 13-17
51