Frjáls verslun - 01.08.1996, Page 39
Einar Bollason, framkvæmdastjóri Ishesta, skrifar skilaboðin til stjórnvalda að þessu sinni. Einar er býsna orð-
hvass í grein sinni og skorar á stjórnvöld að tryggja hestamönnum að minnsta kosti sama rétt og öðrum þegnum
þessa lands, þ.e. að geta komist leiðar sinnar án þess að stofna lífi og limum í hættu.
ALGERUM MOLUM
Reiðvegagerð sé í molum víðast hvar og nánast aðeins sþurning hvenær slys verði
Verði ekkert að gert er hættunni á
stórslysi boðið heim þar á næstu
mánuðum.
Þar sem undirrituðum er málið
skylt vill hann hér skora á ráðamenn
Kópavogs að taka sér tak og byrgja
brunninn áður en einhver fellur ofan í.
íslenski hesturinn leikur stórt hlut-
verk í fjölskyldulífi þúsunda íslend-
inga víðs vegar um landið og hann
leikur líka stórt hlutverk í ferðaþjón-
ustunni. Sífellt fjölgar þeim ferða-
mönnum sem koma til landsins gagn-
gert til þess að fara á hestbak og tugir
þúsunda ferðamanna ár hvert leggja á
það mikla áherslu að fá að skreppa á
bak meðan á dvöl stendur. Þannig er
hesturinn orðinn eitt af „vörumerkj-
um“ landsins, ásamt jöklum, fossum
og hraunbreiðum. Þetta hefur ekki
farið fram hjá ráðamönnum lands og
sveitarfélaga en það er eins og fáir
geri sér grein fyrir því að hesturinn
þarf götu eða slóð, ekkert síður en
bfllinn.
„VITRIR“ MENN
SETTU UPPSKILTI
Heiðmörk er vinsæll útivistarstað-
ur og þar í gegn liggur hin forna reið-
leið frá Álftanesi í Selvog. Reiðleið
þessi var mikið notuð af hestamönn-
um fyrir nokkrum árum eða allt þar til
„vitrir“ menn settu upp skilti sem
markaði þessa aldagömlu reiðleið
sem göngustíg á sumrin og skíða-
göngubraut á vetuma. Þetta þótti
sumum hestamönnum afar hart og
vildu grípa til aðgerða, enda umferð
vaxið mjög á bflvegum í gegnum
Heiðmörkina og hestamönnum oft
hætta búin. Þeir eru þó fleiri í röðum
hestamanna sem hvöttu til stillingar
og töldu víst að ráðamenn og unnend-
ur útivistar myndu tryggja að hesta-
menn sætu við sama borð og göngu-
og skíðamenn.
Síðan eru liðin mörg ár og enn bíð-
um við eftir reiðgötunni í Heiðmörk.
Enn berjum við veginn í samfloti með
bflunum og horfum öfundunaraugum
á göngustíginn sem áður var aldar-
gömul reiðleið.
Er nú mál að linni.
Undirritaður skorar á stjómvöld að
gera hér bragarbót á til að tryggja
hestamönnum a.m.k. sama rétt og
öðrum þegnum þessa lands, þ.e. að
komast leiðar sinnar án þess að stofna
lífi og limum sínum í hættu.
39