Frjáls verslun - 01.08.1996, Page 42
Bókin The Reengineering Revolution Handhook:
j
Handhæg bók sem fjallar um endurgerö vinnuferla í Ijósi reynslu ýmissa fyrirtækja.
Auk fródlegra kenninga hyggist hókin ágóöum, raunhæfum viöfangsefnum
LEIÐIR SEM TRYGGJA AD ENDURGERÐ
VINNUFERLA TAKIST
1. Haldgóð kunnátta og þekking á viðfangsefninu.
2. Gaumgæfileg skoðun allra ferla áður en þið farið að
endurgera þá.
3. Týnist ekki í að skilgreina ferla ofan í kjölinn.
4. Góð stjórnun leiðtoga sem er tilbúinn til að gera breyt-
ingar.
5. Ríkt hugmyndaflug og byltingarkenndar hugmyndir.
6. Setjið á svið „generalprufu“ áður en hrint er í fram-
kvæmd.
7. Vinnið hratt og sýnið árangur innan árs til að viðhalda
áhuganum.
8. Breytið öllu og reynið ekki að aðlaga endurgerð að
gömlu ferlunum.
9. Skipuleggið sjálfa framkvæmdina nákvæmlega en
hratt og örugglega.
10. Vinnið náið með starfsfólkinu - breytingamar snerta
það einna mest.
VIÐFANGSEFNIÐ
Það er sammerkt öll-
um fyrirtækjum að vOja ná
fram meiri hagkvæmni og
betri árangri. í því sam-
bandi verður til fjöldinn
allur af kenningum á
hverjum tíma. Ein vin-
sælasta kenning síðustu
ára er um endurgerð
vinnuferla og varð hún
heimsfræg með útkomu
bókarinnar Reengineer-
ing the Corporation eftir
Micheal Hammer, sem
selst hefur í milljónum
eintaka. Kenningin snýst
um að endurhugsa og
endurvinna mikilvæga
vinnuferla í rekstri fyrir-
tækja sem síðan á að skila
sér í betri árangri þeirra.
í þessari nýju bók er á
ferðinni framhald þar sem
M. Hammer varðar leið-
ina að velgengni, byggða áfram á end-
urgerð vinnuferla en nú í ljósi reynsl-
unar. Hér eru því ekki settar fram
eintómar kenningar heldur er líka
uppfjöllun byggð á raunhæfum við-
fangsefnum og reynslu fyrirtækja
sem beitt hafa aðferðunum.
Fjöldamörg fyrirtæki hafa farið inn
á þessa braut og hefur þetta verið ein
mesta bylting sem hent hefur í fyrir-
tækjarekstri á undanförnum árum.
En mörgum hefur mistekist hrapal-
lega og þess vegna er full ástæða til
að líta yfir farinn veg og meta stöð-
una.
Umfjöllunin beinist að því að hjálpa
lesandanum að forðast mistök sem
gerð hafa verið í endurgerð vinnuferla
hjá öðrum. Ennfremur er sýnt
hvernig hefjast eigi handa og hvaða
tækni skuli beita. Höfundarnir skoða
sérstaklega hvort stjórnendur hafi
Jón Snorri
Snorrason hag-
fræðingur skrifar
reglulega um við-
skiptabækur í
Frjálsa verslun.
það til að bera sem þarf til
að endurgera vinnuferla
og ennfremur hvort al-
vara sé að baki þeirri
vinnu sem lögð hefur
verið í verkið eða hvort
hún sé aðeins orðin tóm.
Þannig greina höfund-
arnir kjarnann frá hisminu
í þessu vinsæla viðfangs-
efni allra fyrirtækja um
þessar mundir. Það eru
kynntar til sögunnar þær
leiðir og þau hjálpartæki
sem tiltæk eru og hafa
verið notuð með bestum
árangri. Höfundamir líta á
bókina sem handbók eða,
eins og Ameríkanar orða
gjarnan sér til gamans,
verkfærakistu þar sem
finna megi hjálpartæki til
þess að laga flest sem af-
laga fer. En eins og alltaf
þarf að vita hvaða hjálpar-
tæki eigi að nota og hvernig !!
HÖFUNDARNIR
Michael Hammer hefur verið til-
nefndur af tímaritinu Business Week
sem einn af 4 mestu „gúruum" í
stjórnun sem nú eru uppi. Hann er
höfundur hinnar frægu bókar Reen-
gineering the Corporation og hefur
verið í broddi fylkingar þeirra sem
aðhyllast þessar vinnuaðferðir. Hann
er þar af leiðandi vinsæll fyrirlesari og
ráðgjafi. Hann er fyrrum prófessor í
tölvufræðum við hin virta háskóla
42