Frjáls verslun - 01.08.1996, Page 57
fyrirtækja í sjávarútvegi. Verð á hlutabréfum íþeim hefur sömuleiðis stórhækkað
HÖRDUR
ALLI RÍKI
Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, getur að
venju vel við unað með rekstur Eimskips. Hagnaður
þess fyrri hluta ársins var um 291 milljón eftir skatta og
var það þriðji mesti hagnaður eins félags á hlutabréfa-
markaðnum. Hagnaðurinn jókst um 46 milljónir miðað
við sama tíma í fyrra. Verð á hlutabréfum í Eimskip
hækkuðu um 48% á fyrstu níu mánuðunum.
Aðalsteinn Jónsson, Alli ríki, ber viðumefni sitt með
rentu þessa dagana. Hagnaður Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar var um 315 milljónir fyrstu sex mánuðina. Það er
um 110 milljónum meira en eftir sama tímabil í fyrra. I
engu fyrirtæki hefur verð á hlutabréfum hækkað eins
mikið og í Hraðfrystihúsi Eskifjarðar. Verð hlutabréf-
anna hefur nærri fjórfaldast frá áramótum.
FINNBOGI
Finnbogi Jónsson, forstjóri Síldar-
verksmiðjunnar í Neskaupstað.
Fyrirtækið skilaði mestum hagn-
aði allra félaga á hlutabréfamark-
aðnum á fyrri hluta ársins, eða um
375 milljónum. Það er um fimm-
falt meiri hagnaður en eftir sama
tímabil í fyrra.
GEIR
Geir Gunnlaugsson, forstjóri Mar-
els. Verð á hlutabréfum í Marel
hafa þotið upp á árinu og hækkað
um 199%, sem er u.þ.b. þreföldun.
Hagnaður Marels fyrstu sex mán-
uðina var um 34 milljónir króna
eða um 9 milljónum meiri en hann
var á sama tíma í fyrra.
RÚNAR
Rúnar Sigurðsson, forstjóri
Tæknivals. Fyrirtækið skilaði 31
milljónar króna hagnaði fyrstu sex
mánuðina og jók hagnað sinn frá
sama tíma í fyrra. Gengi hluta-
bréfa í fyrirtækinu hefur rokið upp
á árinu og hækkað um 179%.
SIGHVATUR
Sighvatur Bjarnason, forstjóri
Vinnslustöðvarinnar í Vest-
mannaeyjum. Hagnaður frá 1.
september 1995 til 1. mars á þessu
ári var um 215 milljónir króna.
Hlutabréf í Vinnslustöðinni hafa
hækkað um 195% fyrstu níu mán-
uðina.
57