Frjáls verslun - 01.02.1997, Side 21
SJÓNVARP
Jón Olafsson í Skífunni, 42 ára, er stjórnarformaður íslenska út-
varpsfélagsins og einn aðaleigandi þess, með um 35% hlut Félagið
rekur sjónvarpsstöðvarnar Stöð 2 og Sýn og útvarpsstöðina Bylgj-
una. Velta þess árið 1995 var tæpar 1700 milljónir. Félagið á um þriðj-
ung í Frjálsri fjölmiðlun, DV. Jón er ótvírætt sjónvarpskóngurinn á
íslandi þótt hann eigi að vísu ekki Islenska útvarpsfélagið einn síns
liðs.
ÚTVARP
Jón var ein aðaldrifljöðurin í stofnun Bylgjunnar árið 1986, fyrstu
einkareknu útvarpsstöðvarinnar á Islandi. Hann hefur ráðið ríkjum
á stöðinni frá upphafi. Bylgjan er öflugasta einkarekna útvarpsstöð-
in og samtengd við Stöð 2 á fréttatimum.
TÓNLIST
Skífan rekur þijár Skífu-verslanir og ílytur inn og selur tónlist af
öllu tagi á geisladiskum, kassettum og myndböndum. Þá selur fyrir-
tækið hljóðfæri í verslun sinni, Hlljóðfæraverslun Reykjavíkur við
Grensásveg. Skífan gefur út meirihlutann af útgefinni tónlist á ís-
landi. Fyrirtækið er með umboð fyrir alþjóðlegar hljómplötuútgáfur,
eins og BMG, PolyGram, MCA, EMI, Island og Arista. Skífan og
Spor dreifa um 80% geisladiska sem flutt eru til landsins. Þá er Skif-
an eigandi upptökufyrirtækisins Stúdíó Sýrland en þar hefur breska
hljómsveitin Blur tekið upp efiii.
KVIKMYNDIR
Fyrirtæki Skifunnar, Bíó hf., rekur Regnbogann við Hverfisgöt-
una. Skífan er meðal annars með umboð fyrir 20th Century Fox og
Miramax International. Hlutur Skífunnar á markaði kvikmyndahús-
anna er um 15%. Fyrirtækið hefur framleitt tvær íslenskar myndir:
Eins og skepnan deyr, eftir Hilmar Oddsson, og Sódóma Reykjavík,
eftir Oskar Jónasson.
MYNDBÖND
Skífan er öflug í myndböndum og með um 30% hlut í leigumark-
aði myndbanda. Fyrirtækið hefur haft einkaumboð fyrir Columbia
frá upphafi en síðan hafa umboð fyrir 20th Century Fox og Castle
Rock Entertainment bæst við ásamt nokkrum öðrum umboðum. Á
sölumarkaði myndbanda yfir kvikmyndir er Skífan með lítinn hlut.
TÖLVULEIKIR
Skífan rekur verslunina Megabúð við Laugaveg 28 og sérhæfir
hún sig í tölvuleikjum. Er hún meðal annars með umboð fyrir Virg-
in Interactive og Electronic Arts. Sömuleiðis hefur hún umboð fyrir
leiktækjatölvuna Sony Playstation á íslandi.
Veldi Jóns Ólafssonar í hnofskurn. Hann sfýrir því í
gegnum fyrirtæki sitt, Skífuna, sem hann stofhaði árið
1976.
Jón Ólafsson er 42 ára og alinn upp í tónlistarbænum
Keflavík. Jón er ótvírætt tónlistar- og sjónvarpskóngur
landsins. FV-mynd: Kristján Maack.
á afþreyingarmarkadnum. Þeir elda saman grátt silfur og sýna hvor öörum enga
er ótvírætt bíókóngurinn en Jón tónlistar- og sjónvarþskóngurinn.
mm
21