Frjáls verslun - 01.02.1997, Side 53
MARKAÐSMAL
silja marga fundi, eru orðnir lang-
þreyttir á kaffidrykkju.
SOTTU SER VIÐSKIPTI
Það var Argus&Örkin sem sá um
gerð auglýsinganna íyrir Ölgerðina.
Það, sem gerir samstarf þeirra dálítið
sérstakt, er að auglýsingastofan Gott
fólk sá um öll auglýsingamál týrir Öl-
gerðina.
„Við töldum að þessari vörutegund
væri ekki sinnt sem skyldi og sótt-
umst eftir því að fá að spreyta okkur á
því að gera betur og kynntum þeim
okkar hugmyndir,“ sagði Hilmar Sig-
urðsson hjá Argus&Örkinni í samtali
við Frjálsa verslun en hann, ásamt
Hauki Magnússyni stýrði þessu verk-
efni.
„Við gerðum þetta ekki síst til að
kynna okkar fýrirtæki og hugmyndir
og það varð úr að við réðumst í þetta
verkefni með Ölgerðarmönnum. Sam-
starfið við þá var alveg sérstaklega
SAGANABAK
VIÐ HERFERÐINA
Páll Ásgeir Ásgeirsson
skemmtilegt og gefandi."
Það var Saga film sem sá um gerð
sjónvarpsauglýsinganna undir stjórn
Gísla Snæs Erlingssonar leikstjóra en
Hilmar sagði að hann hefði leyst verk-
efnið afar vel af hendi.
Að sögn Hilmars var upphaflega
gert ráð fyrir að beina auglýsingunum
sérstaklega til allra þeirra, sem þyrftu
að losna við nokkur kíló, en síðan var
ákveðið að víkka markhópinn út og
horfa til allra 35 ára og yngri sem vildu
hugsa um heilsuna. Viljandi var forð-
ast að nota þekkt andlit eða persónur í
auglýsingunni til þess að skyggja ekki
á vöruna sem verið er að auglýsa.
„Við vildum leggja áherslu á að
þetta væri fyrir hvern sem er, fólkið i
auglýsingunum gæti verið ég eða þú,“
sagði Hilmar.
munu hafa reiknað með 15-20% aukn-
ingu í sölu en aukningin mun hafa orð-
ið um 50% miðað við sama tíma í fýrra
sem er gríðarlega góður árangur.
Argus&Örkin mun halda áfram að
auglýsa þessa vörutegund fýrir Öl-
gerðina en ekkert er ákveðið um
frekara samstarf.
GOÐ SVORUN
Árangurinn hefur ekki látið á sér
standa. Örn Guðnason, markaðsfull-
trúi Ölgerðarinnar, sagði í samtali við
blaðið að svörun hefði þegar orðið
mjög góð og miklu betri en áætlanir
hefðu gert ráð fýrir. Ölgerðarmenn
JAFNVEL EGILL STERKI...
Fyrir mörgum árum átti auglýs-
ingastofan Argus samstarf við Ölgerð-
ina, um það leyti sem Argus gerði
sjónvarpsauglýsingar fýrir Thule pil-
sner sem vöktu mikla athygli. Þetta
var snemma á sjónvarpsöld og margir
muna eftir Pétri Einarssyni leikara í
groddalegu víkingagervi þar sem
hann slokraði pilsnerinn með miklum
tilþrifum. Slagorðið var: Jafnvel Egill
sterki drekkur Thule. Þetta féll Öl-
gerðarmönnum ekki alls kostar við,
höfðu samband við Argus og buðu
þeim að sjá um allar auglýsingar fýrir
Ölgerðina gegn þvi að þeir myndu
hætta að auglýsa fyrir Thule. Þetta var
samþykkt, enda Ölgerðin mun stærri
kúnni og stóð samstarfið í nokkur ár.
En er auðveldara en áður að selja
Islendingum vatn?
Hilmar Sigurðsson sagði að stærsti
markhópurinn væri yngra fólk og auð-
vitað mætti segja að vatnið væri í kran-
anum en með því að stíga viljandi eitt
skref í átt til gosdrykkjanna með
samskonar umbúðum og bragðefnum
næðist greinilega til þeirra.
„Þetta er líkt því þegar klassísk tón-
list var fýrst sett í poppbúning. Þá
stækkaði hlustendahópurinn.“
Jón Snorri Snorrason fram-
kvæmdastjóri hjá Ölgerðinni sagði að
þegar samstarf þeirra við Argus &
Örkina kom til tals hafi þegar verið
búið að ákveða að dreifa auglýsinga-
viðskiptum.
„Utboð af öllu tagi ryðja sér stöðugt
meira tíl rúms. Við bjóðum út alla
þætti í rekstrinum og fannst tímabært
að leiða þau vinnubrögð inn í sam-
skiptí okkar við auglýsingastofur líka.“
Jón Snorri sagði að í framtíðinni
yrðu viðskipti Ölgerðarinnar ekki
nauðsynlega bundin við eina og sömu
auglýsingastofuna.
„Þetta skapar aukna samkeppni,
skilar nýjum hugmyndum og betri
verðum.“
„FÓIkíö f auglýsingunni gæti verið é
eg og
áhrifin vara lengi.
• V,
I; v •
✓V** " *■ ' -*».
,W\
Jhé » ' t
w\ c( , _
. . 1^ meoai
sitja fundi í fyrirtaekjum.
annars þeir sem
™!teí"""afn erfitt seTseÍjawto i
. / i P^^nlannl.
53
■■■■■■■■