Frjáls verslun - 01.02.1997, Blaðsíða 72
MARKAÐSMÁL
volgar veltutölur síðasta árs sem Fijáls verslun hefur aflað
sér. Samkvæmt þessu er staðan á markaðnum sú að Hag-
kaup er stærst með 31% hlut en Bónus fylgir fast á eftir með
21%. Saman ráða þessar keðjur því um 52% af markaðnum.
Nóatún sækir fast á Bónusveldið með 15% hlutdeild og 10-
11 keðjan hefur nú 7% af markaðnum
og þar á eftir kemur Fjarðarkaup með
5%. Þessar fimm stærstu keðjur ráða
því yfir 79% af markaðnum. Raunar má
segja að hlutdeildin sé meiri sé 11-11
keðjunni bætt við en Nóatún á
helminginn í henni á móti Kaupfélagi
Arnesinga.
Samkvæmt veltutölum hefur Nóa-
tún tekið á rás í þessari samkeppni
með þvi að auka veltu sína úr 2.7 millj-
örðum 1995 í 3,5 milljarða 1996. Bón-
us jók veltu sína úr 4.3 milljörðum í
4.7. Velta 10-11 keðjunnar jókst úr 1.3
milljörðum 1995 í 1.7 milljarð 1996.
Heildarvelta Hagkaups árið 1995 var
10.3 milljarðar en jókst í 10.7 árið
1996. Af því er matvörusala á höfuð-
borgarsvæði 7.2 milljarðar árið 1996
en alls 8.3 á landinu öllu og jókst velta Hagkaups í matvöru
um 7% milli ára. Sé veltuaukning í matvöru borin saman í
prósentum kemur í ljós að Nóatún eykur veltu sína um
30%, 10-11 bætir við sig 31%, Bónus 9%, Hagkaup 7% og
Fjarðarkaup stendur í stað.
BÆTTU BÁÐIR VH) SIG STÓRRIVERSLUN
Nóatún hefur aukið hlut sinn um 3% á mark-
aðnum, 10-11 um 1%, Bónus um 2% og Hagkaup
um 1%. Fjarðarkaup hafa samkvæmt þessu hvorki
tapað né aukið hlut sinn heldur standa í stað. Við
þennan samanburð er rétt að hafa í huga að haust-
ið 1995 bættu bæði Nóatún og Hagkaup við sig
einni stórri verslun hvor keðja. Nóatún tók við
Austurveri við Háaleitisbraut í september en í
október sama ár tók Hagkaup við rekstrinum við
Garðatorg í Garðabæ. Arið 1996 var því fyrsta
heila árið sem þessar verslanir voru í rekstri hjá
nýjum eigendum. Verslanirnar við Garðatorg og í
Austurveri eru álíka stórar og líklegt að þær velti
400-500 milljónum á ári.
ÍTÖK KÁ í REYKJAVÍK
Enn er ótalið að Nóatún og Kaupfélag Arnes-
inga eiga saman að jöfnu verslunarkeðjuna 11-11 sem rek-
ur fimm verslanir á höfuðborgarsvæðinu. Keðja þessi velti
um 700 milljónum árið 1996 og er því með 3% hlutdeild af
markaðnum. KaupfélagÁrnesinga á þannig ítök í verslun á
höfuðborgarsvæðinu en er mjög öflugt á Suðurlandi og
nær ennfremur til sín viðskiptum tugþúsunda sumarbú-
staðaeigenda af höfuðborgarsvæðinu yfir sumarið.
Rétt er að taka fram að hér er einungis verið að horfa á
höfuðborgarsvæðið og því er öll velta Hagkaups í matvöru
ekki tekin með í reikninginn en Hagkaup rekur verslanir á
mmmmmmmmmmmmmmmmtmmmmmmmmmmmmm
Akureyri og í Njarðvík. Bónus lítur á
allt landið sem sitt markaðssvæði og
býður fólki upp á að versla gegnum
tölvu og einnig með heíðbundnum
hætti gegn póstkröfu. Þannig ná áhrif
þessara verslana langt út fyrir höfuð-
borgarsvæðið en Nóatún og 10-11 eru
aðeins með verslanir innan þess. Það
sem er athyglisvert í þessu mati er að
að Nóatún skuli sækja svo að Bónus
og Hagkaup sem raun ber vitni..
BUBBISYNGUR UM HAGKAUP
Annað, sem hefur verið áberandi á síðasta ári og tengist
þeirri hörðu baráttu sem fram fer á degi hverjum um hylli
neytenda er hvernig matvöruverslanir auglýsa. A síðasta
ári komu veglegri sjónvarpsauglýsingar en áður hafa sést
frá matvöruverslunum.. Bæði Bónus, Hagkaup og 10-11
hafa nýtt sjónvarpið með leiknum og íburðarmeiri auglýs-
ingum þó Jóhannes í Bónus segði á sínum tíma að þar á bæ
ætti ekki að bruðla með peninga í auglýsingar. Hagkaup
vakti einnig athygli með því að fá Bubba Morthens til að
syngja búðinni lof í hugnæmu lagi Valgeirs Guðjónssonar
tónskálds.
BÓNUS 0G HAGKAUP BYRJUÐU EINS
Bónus byriaði á nokkrum tugum fermetra í Skútuvogi
og hefur frá upphafi skilgreint sig sem afsláttarverslun
sem leggur áherslu á lægstu verð en minna vöruúrval en
margir aðrir. Slíkar keðjur eru vel þekktar er-
lendis og hefur Bónus einkum sótt iýrirmyndir
til Evrópu t.d. Aldi í Þýskalandi. ímynd Hag-
kaups var um langt árabil svipuð. Hagkaup hóf
feril sinn í gamalli hlöðu við Miklatorg. Það er
löng leið frá fyrstu versluninni á Miklatorgi inn í
Kringlu en hin síðari ár hefur verið lögð meiri
áhersla á glæsilegar búðir, vöruval og þjónustu.
Hagkaup er ekki lengur skilyrðislaust ódýrast.
Segja má að Nóatún og 10-11 reyni að höfða til
beggja hópa en báðar munu líta á Hagkaup sem
sinn helsta samkeppnisaðila og sækja að þeirra
sviði fremur en að keppa við Bónus í verðstríðinu.
KEÐJURNAR TAKA YFIR MARKAÐINN
Þegar kastljósinu er beint að matvörumark-
aðnum kemur í ljós að baráttan um brauðið, hið
daglega brauð þjóðarinnar, er hörð og ljóst að
Hagkaup og Bónus hafa saman meira en helm-
ing markaðarins á höfuðborgarsvæð-
inu. Aðrar keðjur sækja að þeirra hlut úárír
og vekur mikil sókn Nóatúns sérstaka markaðshlutdeild
athygli. Matvörumarkaðurinn ein- '95 '9 ■ 1 '6 ;
kennist stöðugt meira af fákeppni. Sú 27% L
mynd verður enn skýrari en í fyrstu 21%
sýnist þegar haft er í huga hvernig
einstakar keðjur tengjast með eignar-
aðild eins og Hagkaup og Bónus og Nóatún og vcrslunin 11-11. - *
72