Frjáls verslun - 01.02.1997, Page 78
stór hús við þessa dýr-
ustu götu borgarinnar
hafa verið seld og önnur
eru til sölu en einnig hef-
ur talsvert af hlutum
húsa, einkum verslunar-
pláss á jarðhæðum geng-
ið kaupum og sölum.
Upplýsingar um verð
á verslunar- og atvinnu-
húsnæði eru byggðar á
samtölum við þá, sem
þekkja til í slíkum við-
skiptum, en Fasteigna-
mat ríkisins heldur ekki
saman upplýsingum um
slíkt húsnæði líkt og gert
er með íbúðarhúsnæði.
Að sögn Snorra Gunn-
arssonar hjá Fasteigna-
matinu er skortur á upp-
lýsingum um eigenda-
skipti og verð
höfuðástæðan.
APÓTEKIÐ SELT FYRIR
140 MILUÓNIR
Almennt segja fast-
eignasalar að fermetri í
litlu verslunarhúsnæði á
jarðhæð við Laugaveg-
inn á góðum stað kosti
110-120 þúsund, í mesta
lagi 150 þúsund krónur.
Þama er átt við húsnæði
Stór hluti, eða um 1.734 fermetrar, í þessu húsi við Lauga-
veg 103, sem hefur verið í eigu Brunabótafélags íslands um
árabil, og síðar VÍS, var seldur á sl. ári. Kaupandi var Dyr-
hólmi hf., fyrirtæki í eigu Þráins Karlssonar verkfræðings
og eiginkonu hans, Birnu Magnúsdóttur handavinnukenn-
ara.
minna en 200 fermetrar og með góð-
um stað er átt við fyrir neðan Snorra-
braut. Á efri hæðum kostar fermetr-
inn minna og ýmsir þættir, s.s.
stærð, aldur og notagildi, hafa áhrif á
kaupverð til lækkunar.
Sú sala, sem mesta athygli vakti,
er án efa kaup Karl Steingrímssonar,
kaupmanns í Pelsinum, á húsinu núm-
er 16 við Laugaveg sem hýsir Lauga-
vegsapótek. Þetta er húseign upp á
1.598 fermetra. Kaupverð var ekki
gefið upp en Frjáls verslun hefur
traustar heimildir fyrir því að það hafi
verið rétt um 140 milljónir króna. Það
þýðir að verðið hefur verið í kringum
90 þúsund krónur fyrir fermetrann.
Húsið hafði verið til sölu um hríð og
ýmsir sýnt því áhuga. Stóð lengi til að
Söngskólinn í Reykjavík eignaðist
húsið. Forráðamenn skólans höfðu
gert tilboð sem var til umræðu og
munaði aðeins hálftíma að þeim tæk-
ist að skila inn gagntilboði móti Karli í
tæka tíð.
DYRHÓLMIBÆTIR VIÐ SIG
Stærsta húseignin, sem var seld á
síðasta ári við Laugaveg, var þegar
Dyrhólmi hf. keypti 1734 fermetra
húsnæði við Laugaveg 103 af Vá-
tryggingafélagi íslands. Þetta er hluti
af stóru húsi á þremur hæðum og í
þeim parti, sem Dyrhólmi keypti, eru
tvö verslunarpláss á jarðhæðinni.
Eigendur Dyrhólma eru Þráinn
Karlsson verkfræðingur og Birna
Magnúsdóttir handavinnukennari,
eiginkona hans. Fyrir áttu þau fimm
önnur verslunarhúsnæði við Lauga-
veginn, í húsum númer 62 og 12. í
samtali við Frjálsa verslun vildi Þrá-
inn ekki gefa upp kaupverð Lauga-
vegar 103. Miðað við gefnar forsend-
ur hér að framan hefur
það verið á bilinu 130-150
milljónir.
Aðrar stórar eignir,
sem voru seldar við
Laugaveginn, voru t.d.
jarðhæðin við Laugaveg
13. Þarna eru á ferðinni
Hákon Magnússon, skip-
stjóri og útgerðarmaður
áHúnaröst, ogijölskylda
hans. Hákon Hákonar-
son, sonur hans, hefur
haslað sér völl í fata-
verslun með Herrunum
og gengið vel. Hákon
eldri seldi nýlega hlut
sinn í Húnaröstinni og
fiskimjölsverksmiðju á
Hornafirði og hefur hætt
útgerð og skipstjórn.
Einnig mætti nefna að
Náttúrulækningafélagið
seldi 583 fermetra á
Laugavegi 20b. Þrír eig-
endur eru skráðir, þeir
Jón Rafns Antonsson,
Helgi Þorvalds Gunnars-
son og Bertil ehf.
Smærri einingar, sem
skiptu um eigendur ný-
lega, eru t.d. Laugaveg-
ur 97, gegnt Stjömubíó
þar sem þrjú verslunar-
pláss seldust. Það var
Jack&Jones fataverslun
sem keypti. í staðinn var selt 250
fermetra húsnæði á Laugavegi 81 en
fyrir áttu sömu eigendur allt húsið á
Laugavegi 95. Jón Ólafsson, eigandi
Skífunnar, keypti á Laugavegi 86 en
Jón Sigurjónsson, annar eigenda Jóns
og Óskars, keypti Laugaveg 53.
Einnig var nýlega selt húsnæði á
Laugavegi 66, Laugavegi 47 og
Laugavegur 71 skipti um eigendur. Af
stórum húseignum í nágrenni Lauga-
vegar mætti nefna að Hafnarstræti
1-3 var selt, fjármálaráðuneytið
keypti hlut Dagsbrúnar í Lindargötu 9
jjegar Dagsbrún flutti upp í Skipholt.
Á Lindargötu 9 átti Dagsbrún 50%
hlut í 1.366 fermetrum og mun hafa
fengið 58 milljónir fyrir. Það lætur
nærri að vera 85 þúsund krónur fyrir
hvem fermetra. Einnig seldust ísa-
foldarhúsin svokölluðu á Vegamóta-
stíg 4 en það var Frank W. Sands sem
78