Frjáls verslun - 01.08.1998, Blaðsíða 22
Jón Sigurðsson, bankastjóri Norrœna Jjárfestingabankans, NIB, í
Helsinki, hejur haft meiri áhrifá íslenskt efnahagslíf á undanfórnum
25 árum en flestir aðrir. Hann hejur náð góðum árangri með NIB og
sett mark sitt á bankann frá því hann tók við stjórn hans árið 1994.
LEYSA RÁÐHERRA UNDAN SKYLDUSETU Á ALÞINGI
„Ég er þeirrar skoðunar að leysa eigi ráðherra undan þeirri
skyldu að sitja á Alþingi en hins vegar eigi þeir að hafa rétt til
viðveru og málfrelsi. í umræðum um málefni sem heyra undir
ráðherra ætti hann vitaskuld að hafa ríka skyldu til viðveru."
sæti á lista flokksins í Reykjavík og að kosningum loknum tók
hann við dómsmála- og viðskiptaráðuneytum og ári síðar iðnaðar-
ráðuneyti. Hann var ráðherra í sex ár samfleytt í allmörgum ríkis-
stjórnum sem störfuðu á þessu tímabili, sumar sagðar til hægri,
aðrar til vinstri. Árið 1993 ákvað Jón að söðla um aftur og tók við
embætti seðlabankastjóra af Jóhannesi Nordal sem hafði verið að-
albankastjóri Seðlabankans frá upphafi og reyndar oft verið nefnd-
ur í sömu andrá og Jón sem efnahagsráðgjafi Islands. Flestir
bjuggust við því að Jón myndi leiða Seðlabankann næstu áratugi í
svipuðum dúr og Jóhannes hafði gert. En þá skipuðust skjótt veð-
ur í loftí. Jóni bauðst á árinu 1994 starf aðalbankastjóra Norræna
ijárfestingarbankans, einhverrar mikilvægustu bankastofhunar
Norðurlanda með aðsetur í Helsinki. Jón býr því yfir mikilli
reynslu á sviði efnahagsstjórnunar- og viðskiptamála og hefur
góða yfirsýn yfir þau mál.
Ftjáls verslun heimsótti Jón á skrifstofu hans í Fabiansgötu nr.
34 í Helsinki. Þar stendur bankinn í brekku nálægt verslunargöt-
um í miðbænum. Skrifstofa Jóns er á 6. hæð og þar mæta manni
íslensk málverk á veggjum. Beint liggur við að spyija Jón fýrst um
bankann og starfsemi hans.
„Meginhugmyndin að stofnun Norræna ijárfestingarbankans,
NIB, var sú að Norðurlöndin gætu örvað fjárfestingu sem njóta
skyldi forgangs með því að reka sameiginlega fjármálastofnun í
eigu landanna fimm sem nyti hagstæðustu lánskjara á alþjóðalána-
markaði. Þessi hugsun er enn grundvöllur NIB. Starfsemin er nátt-
úrlega týrst og fremst á Norðurlöndum því þar eru um 83% af út-
lánastofni bankans, en útlán utan Norðurlanda hafa farið vaxandi.
STYÐJUM ÚTRÁS NOR
Jón Sigurðsson, bankastjóri Norræna jjárfestingabankans, getur vel við unað með
arðsemi eiginfjár hefur verið um 12% að jafnaði frá því hann tók við stjórn bankans
ón Sigurðsson, bankastjóri Norræna fjárfestingarbank-
ans, hefur haft meiri áhrif á íslenskt efnahagslíf á undan-
förnum 25 árum en flestir aðrir. Hann varð forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar allt frá stofnun hennar árið 1974, þá aðeins 33 ára
gamall. Aður halði Jón verið deildarstjóri hag-
deildar Framkvæmdastofhunar frá árinu 1971. Á
Þjóðhagsstofnun var Jón ráðgjafi ríkisstjórna,
bæði til hægri og vinstri. Árið 1987 leitaði Al-
þýðuflokkurinn til Jóns um að hann tæki efsta
MYNDIR: JOHNNY SYVERSEN OG BENEDIKT JÓHANNESSON
22
Til þess að bankinn geti boðið góð lánskjör verður hann að við-
halda háu lánshæfismati. NIB er einn örfárra banka sem hefur
lánshæfiseinkunnina AAA/Aaa á alþjóðlegum markaði og er þess
vegna mikilvæg viðbót við lánakerfi Norðurlandanna."
TEXTI:
Benedikt Jóhannesson
En hvernig rækir bankinn þetta hlutverk?
„Fjárfestingarbankinn er í eigu Norðurlanda-
ríkjanna fimm og fjármagnar verkefni víða um
lönd. Heildareignir eru um 880 milljarðar króna,
BllWBIIlWBWiritlBllitHIBWIIBtErnililin'JllitBMiBBiaaCBgMI