Frjáls verslun - 01.08.1998, Blaðsíða 26
Norræni fjárfestingabankinn er við Fabiansgötu 34 í Helsinki. Þar
stendur bankinn í brekku nálœgt verslunargötum í miðbænum.
Skrifstofa Jóns er á sjöttu hæð.
En hvers vegna hélt þróunin ekki áfram?
„Eg taldi nauðsynlegt að breyta Búnaðarbankanum og Lands-
bankanum í hlutafélög og var búinn að fá frumvarp þess efnis sam-
þykkt í Alþýðuflokknum í ársbyijun 1992, þrátt fyrir að þar væru í
þingflokknum alkunnir efasemdarmenn og -konur. Frumvarpið
var lagt fyrir þingflokka ríkisstjórnarinnar, en andstaða í Sjálfstæð-
isflokknum varð til þess að málið dagaði uppi. Svipuðu máli
gegndi um sameiningu Jjárfestingalánasjóða í stærri heild. Um
það var samið frumvarp sem ekki fékk stuðning beggja stjórnar-
ílokka. Sem betur fer hefur ræst úr þessu í seinni tíð.“
Hverjir voru á móti innan Sjálfstæðisflokksins?
„Það veit ég ekki, en Davíð Oddsson sagði
okkur að hann kæmi þessu máli ekki í gegn.“
að freista þess að tengjast EMU með ein-
hveijum hættí þegar ljóst verður um aðild
Breta, Dana og Svia.“
Arösemi
eiginfjár NIB • %
En fórnum við ekki einhverju á
móti?
Jú, það má segja það. Þrátt fyrir að sýnt
hafi verið fram á að kostirnir séu miklir eins
og ég rakti hér að framan þá fórnum við
möguleikanum á því að stýra genginu þegar
erfiðleikar steðja að. Það er ekki vist að það
sé stór fórn. Þarna verða menn að vega og
meta kostína og ég tel að vænlegast sé að íslendingar fylgist með
þróun mála fyrst um sinn. Þetta er fjarri því að vera byltingar-
kennd skoðun, en hagstjórn íslendinga verður að stefna áfram að
stöðugu gengi, jafnvægi í ríkisfjármálum og skynsamlegri hagnýt-
ingu auðlinda. Fyrst og fremst er ákvörðunin um þátttöku íslands
í myntsambandinu pólitísk."
En víkjum talinu að þeim málum sem ofarlega eru á baugi
á Islandi, einkavæðingu ríkisbankanna sem loks virðist í aug-
sýn. Er þetta ekki svolítið seint á ferðinni?
,Jú, ég tel að það hefði vel verið hægt að einkavæða bankana
fyrr. Fyrsta skrefið í þessa átt var stofnun íslandsbanka um ára-
mótin 1989/90 þegar Útvegsbankinn var seldur 1990 en ég var þá
viðskiptaráðherra. Ég tók um það ákvörðun að selja bönkunum
þremur, Iðnaðarbanka, Verslunarbanka og Alþýðubankanum, Út-
vegsbankann, enda lögðu þeir fram greinargóða áætlun um hag-
ræðingu, þannig að ljóst var að með þessu móti máttí spara í
bankakerfinu án þess að draga úr þjónustu. Samverkamenn mín-
ir í ríkisstjórn, þeir Steingrímur Hermannsson og Ólafur Ragnar,
voru ef til vill ekki hrifnir af þessari ákvörðun, en þeir féllust á að
þetta mál væri á mínu valdsviði sem ráðherra og að ákvörðun
hefði verið tekin af Alþingi um að selja mætti Útvegsbankann.
Næsta skrefið í hagræðingarmálum var þegar Landsbankinn
keypti Samvinnubankann í skuldaskilum Sambandsins árið 1990.
Því miður hefur ekki orðið framhald á þessari þróun í bankamál-
um. En nú er mikil hreyfing í þessum efrium.“
En þarf að einkavæða ríldsbankana?
,Já, ég tel að það sé nauðsynlegt að selja
bankana og leyfa sameiningu þeirra. Við gæt-
um margt lært af því hvernig SE-bankinn í
Svíþjóð stóð að samruna við Trygg-Hansa
tryggingafélagið. Þar var lögð fram skipuleg
áætlun um það hvernig trygginga- og banka-
reksturinn yrði samþættur. Einmitt þetta
varð til þess að sá samruni heppnaðist vel.
íslendingar ættu að taka sér vinnubrögð af
því tagi til fyrirmyndar."
En er ekki hætta á einokun og of háum bankakostnaði?
„Nei, það tel ég ekki. Hættan fyrir íslensku bankana er alltaf sú
að erlendir bankar nýtí sér tækifærið og nái fótfestu á íslandi ef
menn gæta sín ekki í verðlagningu. Reynslan annars staðar frá
bendir reyndar til þess að víðast hvar hafi innlendir bankar haldið
velli. Til dæmis var það strax leyfilegt að reka erlenda banka í Dan-
mörku þegar Danir gengu í Evrópubandalagið fyrir rúmum aldar-
fjórðungi. Þá settu margir helstu bankar Evrópu og Ameríku upp
skrifstofur í Kaupmannahöfn, en þær reyndust ekki bera sig.
Bankar láta hins vegar stjórnast af hagnaðarvon þannig að lykilat-
riði er að erlend samkeppni sé leyfileg.
í framhjáhlaupi má geta þess að ég hef úr fjarlægð fylgst með
umræðum um kaup Myllunnar á Samsölubakaríi á íslandi og
hættuna á einokun á brauðamarkaði í kjölfarið. Ég hef sérstakan
áhuga á þvi máli sem bakarasonur. Þar er enginn vafi á því að
tækni nú á dögum veldur þvi að hægt er að flytja frosið deig í gám-
um milli landa og baka svo á staðnum. Þess vegna geta íslensk
bakarí ekki lengur nýtt sér fjarlægöarvernd í sama mæli og áður
til þess að hækka vöruverð því þá munu þau kalla yfir sig sam-
keppni í þessu formi.“
Þú nefndir að þér hefði ekki tekist að breyta ríkisbönkun-
um í hlutafélög. Hvaða mál önnur náðir þú ekld að klára með-
an þú varst ráðherra?
„Ætli ég nefni ekki fyrst álver á Keilisnesi sem m.a. frá um-
hverfissjónarmiði er heppileg staðsetning. Það er auðvitað margt
DAVIÐ KOM MÁLINU EKKI í GEGN
„Ég taldi nauðsynlegt aö breyta Búnaðarbankanum og Landsbankanum í hlutafélög og var búinn aö fá frumvarp þess efnis
samþykkt í Alþýðuflokknum í ársbyrjun ‘92 - en andstaða í Sjálfstæðisflokknum varð til þess að málið dagaði uppi... Davíð Oddsson
sagði okkur að hann kæmi þessu máli ekki í gegn."
26