Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1998, Blaðsíða 42

Frjáls verslun - 01.08.1998, Blaðsíða 42
Finnbogi er mikið á ferðinni um fyrirtœkið og hér hefur hann brugðið sér í sloþpinn og stígvél- in og ræðir við konurnar í vinnslunni. FV-mynd: Aðalbjörn Sigurðsson. skipstjóra á Akureyri, og synir hennar eru þeir Þorsteinn Már og Finnbogi Alfreð Baldvinssynir í Samheija. Önnur dóttir hans var Helga. Sonur hennar er Finnbogi Böðvarsson sem lengi var stýrimaður og skipstjóri á skipum Hraðfrystihúss Eski- fjarðar. Sonur Finnboga Þorleifssonar var Al- freð Finnbogason, skipstjóri og þekktur aflamaður. Sonur hans er Finnbogi Al- freðsson sem oft er kenndur við Fiskimjöl og Lýsi í Grindavík sem nú hefúr reyndar verið sameinað Samherja. Fimmta Finnbogann, sem nú er látinn, átti Rögnvaldur Finnbogason íyrrverandi bæjarstjóri á Sauðárkróki og um tíma for- stöðumaður Síldarútvegsnefndar á Seyðis- firði. Þessir fimm Finnbogar eru því allir jafnskyldir eða systkinabörn og heita allir í höfuðið á Finnboga Þorleifssyni, skipstjóra á Eskifirði. Enn mætti nefna einn frænda til sem er jafnskyldur Finnbogunum fimm; son Dórótheu, en sá er Askell E. Jónsson, íramkvæmdastjóri hjá Islandspósti sem lengi var bæjarstjóri á Eskifirði. Móðurætt Finnboga er að öðru leyti frá Eyri í Reyðarfirði og Litlu-Tjörnum í Ljósa- vatnsskarði í Þingeyjarsýslu. Föðurættin er hinsvegar af Vestljörð- um. Faðir Finnboga, Jón Sveinbjörn Krist- jánsson skipstjóri, er fæddur á Folafæti við Djúp árið 1912.1 Folafæti eða Fæti, eins og byggðin var almennt kölluð, var nokkuð þétt byggð þurrabúðarfólks og útgerð með nokkrum blóma fram eftir öldinni. Fótur fór algerlega eyði á stríðsárunum og þar sér nú engan stað byggðar en þar steig t.d. Einar Guðfinnsson sín fyrstu skref á vettvangi útgerðar. Finnbogi er kvæntur Sveinborgu Helgu Sveinsdóttur, geðhjúkrunarfræðingi frá Vestmannaeyjum, og þau búa við Þiljuvelli í Neskaupstað. Þau eiga tvær dætur barna; Esther, f. 1969 og Sigríði Rögnu, f. 1976. Sveinborg hefur til skamms tíma starfað sem félagsmálastjóri í Neskaupstað en er í leyfi frá því starfi nú um stundir. HAFÐIMIKINN ÁHUGA Á STJÓRNMÁLUM Finnbogi útskrifaðist úr Menntaskólan- um á Akureyri vorið 1970 þegar stúdentar víða um heim mótmæltu öllu sem fyrir varð en engin götuvígi voru byggð á Akur- eyri. Finnbogi hafði mikinn áhuga á félags- málum og stjórnmálum á skólaárum sín- um og tók virkan þátt í stúdentapólitikinni í Háskóla Islands með setu í Stúdentaráði fyrir vinstri menn en hann beitti sér einnig á líkum vettvangi við Háskólann í Lundi. Hann var talinn til róttæklinga á sínum yngri árum en kannski á við hann eins og fleiri það sem sagt er að sá sem er ekki rót- tækur þegar hann er ungur er hjartalaus en sá sem er enn róttækur þegar hann er fertugur er fífl. REIKNAÐIÚT FYRIR HJÖRLEIF Síðan lá leiðin í Háskóla Islands þar sem Finnbogi lærði eðlisverkfræði og lauk fyrrihlutaprófi 1973 en hann hélt svo nám- inu áfram við Tækniháskólann í Lundi í Svíþjóð og lauk prófi þaðan 1978 en lét sér ekki nægja að læra eðlisverkfræði heldur lauk sama ár prófi í rekstrarhagfræði frá háskólanum í Lundi. Þegar Finnbogi kom heim frá námi fór hann til starfa sem sérfræðingur og deild- arstjóri í iðnaðarráðuneytinu og gegndi starfi þar frá 1979 til 1982. Á sama árabili sat hann í nokkrum stjórnskipuðum nefnd- um um iðnaðar-, efnahags- og orkumál. Þessi ár var Hjörleifur Guttormsson ráð- herra iðnaðarmála en á þessum árum var Finnbogi sterklega orðaður við þann mál- stað sem flokkur Hjörleifs studdi og var stundum kallaður eini kapítalistinn í Al- þýðubandalaginu. Það er því freistandi að halda að Finnbogi hafi verið nokkurs kon- ar skjólstæðingur Hjörleifs þegar hann kom heim. Margir muna ef til vill eftir mikilli um- ræðu um málefni álversins í Straumsvik sem Hjörleifur Guttormsson beitti sér fyr- ir. Umræðan kristallaðist í orðunum „hækkun í hafi“ og snerist um meintan talnaleik álversmanna til þess að hagræða bókhaldi sínu með tilliti til skatta. Sam- kvæmt bestu heimildum mun Finnbogi hafa verið reiknimeistarinn á bak við mál- flutning ráðherrans. HEIM í HEIÐARDALINN 1982 sneri Finnbogi heim aftur, ef svo má segja, þegar hann réðist til starfa á Ak- ureyri sem ffamkvæmdastjóri Iðnþróunar- félags EyjaJjarðar. Jafnframt því starfi sat hann í stjórn Gúmmívinnslunnar á Akur- eyri og stjórn Landsvirkjunar. Enn urðu umskipti þegar hann var svo ráðinn for- stjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað árið 1986. Samhliða því skipti hann einnig um aukastörf og settist í stjórn Sölumiðstöðv- arinnar þar sem hann hefur nú setið í 10 ár samfleytt sem vara- og aðalmaður og um tíma í stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva og Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda. Finnbogi er nú stjórnarformaður Neta- gerðar Friðriks Vilhjálmssonar, Skag- strendings hf. á Skagaströnd og Islands- síldar hf. og á sæti í stjórn, Nord-Morue og Delpierre, dótturfyrirtækja SÍF í Frakk- landi, Uthafssjávarfangs hf., Félags ís- MÍN HÆGRI HÖND Þaö er sagt um Finnboga aö hann sé haröur í horn að taka sem stjórnandi og fylgist grannt með daglegum rekstri fyrirtækisins. Hann hefur í miklum mæli samráö við næst- ráðendur, s.s. útgerðarstjóra, verksmiðjustjóra, verkstjóra og fleiri, en mönnum ber sam- an um að Freysteinn Bjarnason útgerðarstjóri sé hans nánasti samstarfsmaður. 42
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.