Frjáls verslun - 01.08.1998, Blaðsíða 55
bie) og sama ár keypti Mattel Fischer
Price og nú síðast Tyco.
Tískufyrirbæri koma alltaf upp í
leikfangaviðskiptum eins og öðru.
Sumt gengur vel, eins og Lion King,
annað hreyfist hægar og sumt selst
alls ekki. Nokkur samdráttur hefur
orðið í leikfangasölunni erlendis og
hérlendis síðustu árin þótt sífellt fleiri
séu að selja og bjóða leikföng.
Hefðbundin leikföng eins og bíll og
briiða, bolti og skófla verða alltaf vin-
sælust á hverju svo sem gengur,“
sagði Haukur að lokum.
ALDIR UPPI LEIKFONGUM
„Við bræðurnir erum auðvitað ald-
ir upp í leikfangabúð og vorum farnir
að afgreiða um leið og við náðum upp
fyrir búðarborðið," segir Jón Páll Grét-
arsson og Eiríkur bróðir hans tekur í
sama streng. Þeir bræður eru 30 og
34 ára gamlir og starfa með móður
sinni að rekstri Leikbæjarverslan-
anna.
„Þótt víða séu tengsl milli smásölu
og heildsölu á leikfangamarkaði er
það samt í mun minna mæli en í
margri annarri verslun.“
Þeir segja að þegar Leik-
bæjarverslanirnar voru
flestar hafi þær verið sex
en hagkvæmni hafi ráðið
því að þeim var fækkað
í þrjár. Það hafi ekki
komið niður á velt-
unni.
„Okkar búðir eru
sérverslanir og
þess vegna vill fólk
koma þangað. Sér-
verslun er ekki
virkilega góð nema
kaupmaðurinn leggi sig allan fram.
Breskur leikfangahönnuður sem kom
í heimsókn til Islands fyrir skömmu
varð mjög hrifinn af Leikbæ og taldi
hann sambærilegan við eða betri en
sambærilegar verslanir erlendis.“
BYRJAÐIÁ BERGSTAÐASTRÆTINU
Grétar N. Eiríksson sem hefúr að
mestu dregið sig í hlé úr daglegum
rekstri, riljar upp upphafið. Það má
rekja til þess þegar faðir hans, Eiríkur
Agústsson, var atvinnulaus árið 1939.
Hann tók sér það fyrir hendur ásamt
bróður sínum að kaupa tómar flöskur
af fólki og þvo þær og selja Afengis-
Leikbœjarfjölskyldan rekur þrjár leikfangaverslanir í Reykjavík og Hafnarfirði og hefur ráð-
andi ítök í tveimur heildverslunum sem fást við að flytja inn leikföng. Hér sést fjölskyld-
an samankomin í einni af verslununum. Þau eru Þorgerður Arnórsdóttir, Grét-
ar N. Eiríksson og synir þeirra, Eiríkur og Jón Páll.
versluninni aftur.
Þeir félagar fengu inni
á Bergstaðastræti 10
og þar var einnig selt
það sem til féll, allt frá
bæði kartöflum að
heimatilbúnum músa-
stigum til skrauts fyr-
ir jólin.
Þegar brann á
Bergstaðastrætinu
1958 bauðst nýtt hús-
næði til leigu á Laugavegi
11 á horninu við Smiðjustíg.
„Þarna opnaði hann svo Leikfanga-
búðina sem var fyrsta sérverslunin
með leikföng á Islandi. Þetta átti eftir
að ganga alveg ágætlega og seinna
var opnuð önnur Leikfangabúð á
Laugavegi 72.“
Grétar hafði einnig unnið í gamla
Liverpool á sínum yngri árum. KRON
rak lengi búsáhalda- og gjafavöru-
verslun í Liverpoolhúsinu en sagði
upp leigusamningnum þar 1978.
„Það æxlaðist þannig að við tókum
plássið í Liverpool á leigu og þar rák-
55