Frjáls verslun - 01.08.1998, Blaðsíða 29
Hve margir gera kaupmála?
FJARMAL
skiptist jafnt milli þeirra þegar til
skilnaðar komi og þannig er auðvelt
að sjá fyrir sér hjónaband sem getur
gefið talsvert í aðra hönd þótt það vari
í stuttan tíma ef ekki er efnahagslegt
jafnræði með hjónunum.
EKKILÁTA PLATA ÞIG
Dœmi:
Eignalaus maður giftist sterkefn-
aðri ekkju sem á einbýlishús í Garða-
bæ, sumarbústað í Skorradal, sumar-
hús á Spáni, jeppa, fólksbíl og bunka
af hlutabréfum í Eim- ______
skip. Þau skilja eftir eitt
ár og hann fær í sinn
hlut helming eigna
hennar og getur hætt
að afgreiða í sjoppunni og snúið sér að
eignaumsýslu og ijárfestingum.
Auðvitað myndi lífsreynd og séð
ekkja aldrei láta taka sig í bólinu með
þessum hætti og enn ólíklegra er að
lögerfingjar hennar
myndu láta þessa at-
burðarás afskiptalausa
svo fremi að þeir væru
einhverjir til og með
bein í nefinu.
Þarna mætti auð-
vitað snúa hlut-
verkum við og
setja bláeyga og
barnunga einka-
dóttur kvóta-
kóngs í kvenhlut-
verkið og þrískil-
inn, gjaldþrota
miðaldra kvenna-
mann í karlhlut-
verkið.
I þessa at-
burðarás er
síðan auðvelt
að reka fleyg
strax í upphafi
með því að
elskendurnir geri
með sér kaup-
mála. Þar er hugs-
anlega tekið fram
hvaða hlutir séu
séreign hvors að-
ila fyrir sig og
hvernig skipta
skuli búinu komi
til hjúskaparslita.
Það er hægt að
setja inn ákvæði
TEXTI:
Páll Ásgeir Ásgeirsson
um að það sem annar aðilinn kann að
erfa síðar verði hans eða hennar sér-
eign og þannig taka af allan vafa um
að hjónabandið sé byggt gróðahyggju
og arfsvon frekar en hreinni ást. Þar
getur bæði verið um að ræða að sá
efnameiri sé að vernda sig en einnig
að sá efnaminni vilji taka af öll tvímæli
um hreinleika ástar sinnar og sýna að
hagnaðarvon sé ekki drifkrafturinn á
göngunni upp að altarinu.
Nú kann einhver að benda á að
gerð kaupmála geti verið viðkvæmur
________ og ekki sérlega róman-
tískur gjörningur. Blá-
fátækum væntanlegum
brúðguma kann að
þykja það einhvers kon-
ar vantraustsyfirlýsing þegar hans til-
vonandi ektakvinna krefst þess dag-
inn fyrir brúðkaupið að þau marséri til
lögfræðings ijölskyldunnar og geri
með sér kaupmála. Ef-
laust kann
Ar 1980 Fjöldi kaupmála 177 Fjöldi gíftinga 1306 Hlutfall í% 13,5%
1981 159 1357 11,7%
1982 129 1303 12,0%
1983 178 1396 12,4%
1984 176 1413 13,5%
1985 170 1252 13,5%
1986 165 1229 13,4%
1987 216 1160 18,6%
1988 236 1294 18,2%
1989 312 1176 26,5%
1990 239 1154 20,7%
1991 182 1236 14,7%
1992 341 1241 27,5%
1993 235 1219 19,3%
1994 305 1310 23,3%
1995 257 1238 20,8%
1996 255 1350 18,9%
Viltu gifiast mér?
Samkvœmt lögum
skiþtast eignir
hjóna jafnt við
skilnað. Þess
vegna er hægt
að giftast til jjár.
Stöðugt fleiri
tryggja hag
sinn með gerð
kauþmála.
Þessi tafla sýnir að kauþmálum sem hlutfall
af skráðum hjónavígslum fjölgar ár frá ári.
Nokkur ár skera sig greinilega úr og má
sennilega tengja það við sveiflur í efnahags-
lífinu.
einhveijum að þykja að svo sé en
ef til vill er hér um einhvers konar
prófstein á þanþol ástarinnar að
ræða. Standist hún prófið sem felst
í gerð kaupmálans er líklegt að
ending hjónabandsins verði góð.
Vanur skilnaðarlögfræðingur,
sem ræddi um þessi mál við blað-
ið en vildi ekki láta nafns síns
getið, sagði mjög sjaldgæft að til
hans kæmi fólk í skilnaðarhug-
leiðingum sem hefði gert með sér
kaupmála og dró af því þá óvísinda-
legu ályktun að kaupmálahjónabönd
entust betur en önnur hjónabönd. Sá
taldi reyndar að tilvist kaupmála myndi
í mörgum tilvikum auðvelda starf lög-
fræðinga við skilnaði og draga úr ósætti
hjóna varðandi búskipti.
Sá sami sagði að ungt fólk sem
væri að ganga í hjónaband gerði ekki
alltaf með sér kaupmála þótt um ójafn-
ræði væri með þeim í efnahagslegu til-
liti. Hann sagði það hinsvegar algengt
að foreldar settu sérstakt ákvæði í
erlðaskrá þess efnis að það sem kæmi
í hlut barna þeirra væri þeirra séreign
og makanum óviðkomandi.
29