Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1998, Page 27

Frjáls verslun - 01.08.1998, Page 27
VIÐTAL sem menn vilja koma í verk þótt sem betur fer hafi á mínum ráðherraárum mörgu verið komið til leiðar sem hefur bætt og styrkt markaðsbú- skap á Islandi. En fyrir utan það að ekki tókst að breyta rikisbönkunum tveimur í hlutafélög þá sé ég mest eftir því að hafa ekki náð í gegn frum- varpi til Seðlabankalaga. I því frumvarpi var lagt til að sjálfstæði Seðlabankans yrði aukið og hon- um falið að sjá um ákveðna þætti í efnahags- stjórninni. Eg tel að með því hefði verið stigið stórt skref í átt til þess að draga úr óheppilegum pólitískum áhrifum á hagkerfið. Eg lagði fram frumvarp um málið á Alþingi. Það var einmitt eitt af síðustu verkum mínum á Alþingi. En gegn málinu var næg andstaða til þess að stöðva það. I þessu máli eins og mörgum öðrum vinnur tím- inn með okkur.“ Nú hlýtur þú að vera nokkuð einangraður frá Islandi hér í Helsinki, en hér við bankann hafa starfað nokkrir Islendingar á liðnum árum. „Einangrun er nú ekki orðið sem ég myndi nota þvi ég starfa hér í mjög alþjóðlegu um- hverfi. Hér starfa og hafa starfað nokkrir íslend- ingar. Þar má nefna Þorstein Þorsteinsson, sem er núna yfirmaður Verðbréfasviðs Búnaðarbank- ans, og Guðmund Tómasson sem nú starfar í Is- landsbanka. Nú vinna hér í Helsingfors þeir Þór Sigfússon, sem sér um lán á íslandi, Sigurður Ingólfsson, sem vinnur á áhættustýringarsviði, og Jón Þorsteinsson, sem starfar að fjárstýringu. Eg tel að það sé bæði bankanum og Islandi gagn- legt að hér vinni íslendingar sem afla sér reynslu og þekkingar." Þú sast á þingi í sex ár og varst ráðherra allan tímann. Hvernig fer það saman? „Þingmenn núa ráðherrum því oft um nasir að þeir ræki þingstörf illa. Yfirleitt held ég að þetta hafi verið pólitísk skot, en þetta gátu verið leiðigjarnar ádeilur. Ég er þeirrar skoðunar að leysa eigi ráðherra undan þeirri skyldu að sitja á Alþingi en hins vegar eigi þeir að hafa rétt til við- veru og málfrelsi. í umræðum um málefni sem heyra undir ráðherra ætti hann vitaskuld að hafa ríka skyldu til viðveru. Ég veit að þetta er um- deilt en eftir mína reynslu hef ég þessa skoðun.“ En hvað um íiramhaldið hjá þér? Þú varst ráðinn til fimm ára og sá tími er brátt liðinn. „Ég tók til starfa hjá NIB í apríl 1994 og er því búinn að vera hér í tjögur og hálft ár. I starf aðal- bankastjóra er ráðið persónubundið þannig að það fylgir ekki ákveðnum landakvótum. Stjórn bankans hefur óskað eftir að endurnýja samning- inn við mig. Ég reikna með að úr því verði. Auð- vitað leitar hugurinn heim. Laufey, kona mín, hefur verið talsvert mikið á Islandi þessi ár. Ég hef komið heim svona þrisvar til fjórum sinnum á ári, fáa daga í senn, og eytt sum- arfríum heima. Samgöngur við Island eru greiðari en áður og öll samskipti auð- veldari. Nú eigum við hjónin börn í þremur löndum og búum sjálf í því fjórða. Heimurinn er sífellt að verða minni að þessu leyti og alþjóðleg viðskipti og sam- skipti verða stöðugt auðveldari og nánari. Starfið í Norræna fjárfestingabankanum er mjög áhugavert. Þar eru framundan mörg mikilvæg verkefni sem ég hef hug á að vinna að enn um sinn.“ ffij Síöumúla 3-5 • sími: 581 1118 • fax: 581 1854 Allgon Sputnik Mini Mag er segulloftnet með sogskál sem vegur aðeins 14g. Þú getur tekið það með þér hvert sem þú ferð, á bílnum, í sumarbústaðinn eða bara í vasanum. Sputnik eykur móttökustyrkinn um allt að 10 dB. Sambandsslit, slæm skilyrði og „dauðir punktar “ heyra nánast sögunni til. ALLGON - og boðin berast Stórtækari lausnir YAGI er loftnetsgreiða sem komið er fyrir þar sem stórtækari lausna er þörf, t.d. uppi á þaki sumarbústaðar, og beint að næsta GSM endurvarpa. Yagi og Sputnik loftnetin auka þægindi og öryggi sumarbústaðaeigenda og annarra ferðalanga til mikilla muna. NESRADÍÓ Ert þú í góðu sambandi? 27
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.