Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1998, Side 41

Frjáls verslun - 01.08.1998, Side 41
HVER ER MAÐURINN? Finnbogi er hár, fremur þreklega vaxinn, höfuðstór og hálsstuttur. Hann gengur oft í teinóttum jakkafötum með vesti sem gefa honum gamaldags yfirbragð. Hann er yfirvegaður og formfastur í framkomu og fámáll við ókunnuga. Þeir sem þekkja hann vel segja að hann sé mjög metnaðargjarn en í raun feiminn og hlédrægur og lítt gefinn fyrir að trana sér fram. hinu blómlega útgerðar- og fiskvinnslufyr- irtæki með rúmlega 21% hlut. Það heíur þó verið að minnka eignarhlut sinn hlutfalls- lega jafnt og þétt en árið 1992 átti SÚN um 40% hlut í Síldarvinnslunni. Meðal annarra stórra hluthafa er Líf- eyrissjóður Austurlands (10%), ýmsir aðrir lífeyris- og fjárfestingasjóðir samtals (28%), Bæjarsjóður Neskaupstaðar (8,4%), Burðarás (6,5%),Tryggingamiðstöðin (3%) og Nafta sem er í eigu Olís (7%). Með því að Samvinnufélagið er enn stærstí einstaki hluthafinn í Síldarvinnsl- unni má segja að hin félagslegu bönd við samfélagið séu treyst. Eignarhald í Sam- vinnufélaginu er álíka skýrt og eignarhald í kaupfélagi eða sparisjóði og það hefúr aldrei reynt á að einhver vilji ganga úr SÚN og fá „hlut“ sinn greiddan. Slík staða hefur einfaldlega aldrei komið upp. Miklu fleiri en útgerðarmenn, fýrrverandi og nú- verandi, eru félagar í SÚN og auk þess geta aðrir hluthafar i Síldarvinnslunni gerst persónulega félagar í Samvinnufélag- inu og haft áhrif þar á félagslegum grunni þótt þeir hafi aldrei fengist við útgerð. Þannig er því farið með tjölda Norðfirðinga sem eru hluthafar í Síldarvinnslunni. Má halda því fram að þannig treystí íbúarnir áhrif sín á rekstur fyrirtækisins og að tengsl fyrirtækisins við grasrótína verði styrkari. Síldarvinnslan er langstærsti vinnuveit- andinn í Neskaupstað. Þar starfar um helmingur vinnufærra bæjarbúa og ríflega helmingur skatttekna bæjarins kemur það- an. Síldarvinnslan á misjafnlega stóra hluta í öðrum fyrirtækjum sem aðallega tengjast sjávarútvegi. Tvö þeirra eru í Neskaup- stað. Annað er Netagerð Friðriks Vil- hjálmssonar, sem er gamalgróið fyrirtæki sem nú er komið í eigu ungs fagmanns, Jóns Einars Marteinssonar, og hefur getið sér orð fyrir framleiðslu á smáfiskaskiljum. Síldarvinnslan á 30% hlut í því. Smáfiska- skiljur breyta veiðitækni botnvörpunnar og gera mönnum kleift að stýra því hve stór fiskur verður eftir í vörpunni. Hér má sjá fimm Finnboga samankomna sem allir eru systkinabörn, heita allir í höfuðið á afa sínum, Finnboga Þor- leijssyni skiþstjóra, og fjórir þeirra starfa í sjávarútvegi. Frá vinstri: Finnbogi Rögnvaldsson, Finnbogi Alfreðsson, Finnbogi Böðvarsson, Finnbogi Jónsson og Finnbogi Baldvinsson. Myndin er tekin 1991 en Finnbogi Rögnvaldsson er nú látinn. dag árið 1930 var Hótel Borg í Reykjavík opnað formlega. Þennan dag árið 1957 var hinsvegar Sjúkrahúsið í Neskaupstað tekið formlega í notkun. Finnbogi á sama afmælisdag og Ge- orgía Björnsson, fýrsta forsetafrú Islands, Múhammed Ali hnefaleikari og Kevin Costner kvikmyndaleikari. Finnbogi er fæddur og alinn upp á Ak- ureyri. Foreldrar hans eru þau Esther Finnbogadóttír, fædd á Eskifirði, nú látin og Jón S. Kristjánsson, skipstjóri frá Isa- firði. Þau giftust ekki. Finnbogi á eina al- systur. Dórótheu, hjúkrunarfræðing f. 1947. Hún er gift Helga Má Bergs, við- skiptafræðingi á Akureyri. Hann á tvö hálf- systkini, Hrafnhildi Olafsdóttur full- trúa, sem er sammæðra við hann og erfædd 1939, og Anton Helga, sem er samfeðra við hann og fæddur 1955. Anton hefur getið sér gott orð fyrir ljóðlist og er talinn meðal merkari nútímaskálda. FINNBOGARNIR FIMM Finnbogi hefur skemmtilega sterk ættar- tengsl við aðra þungavigtarmenn í sjávar- útveginum. Móðurafi Finnboga var Finn- bogi Þorleifsson, skipstjóri og útgerðar- maður á Eskifirði. Ein dætra hans hans var Björg, sem giftist Baldvin Þorsteinssyni, Hitt fyrirtækið er Sæsilfur, sem er ísverk- smiðja í Neskaupstað, en þar á Síldarvinnslan 50%. Síldarvinnslan í Nes- kaupstað keypti stóran hlut í Skagstrendingi á Skagaströnd á síðasta ári. Þar var að stærstum hluta um að ræða hlut sem áður var í eigu Út- gerðarfélags Akureyr- inga og greiddi Síldarvinnslan rúmlega 400 milljónir lýrir 22% hlut. Auk þessa á Síldarvinnslan lítinn hlut í SR-mjöli. A síð- ustu árum hefur Síldarvinnslan keypt og selt hlutabréf í t.d. HB&Co á Akranesi og Hraðfrystihúsi Eskifjarðar. Bréfin í Hrað- frystíhúsi Eskifjarðar voru keypt af Lífeyr- issjóði Austurlands, Olís og fleirum árið 1995 fýrir 80 milljónir og seld á næstu 18- 30 mánuðum fýrir 380 milljónir. Þetta þótti mörgum ágæt ávöxtun. Maðurinn sem stjórnar þessu öllu sam- an heitir Finnbogi Jónsson. Starfs síns vegna er hann í nokkuð sérstæðri aðstöðu þar sem meirihluti íbúanna í hans heima- byggð eru jafnframt undirmenn hans. Ef eitthvert fýrirtæki í Reykjavík hefði helming íbúanna i vinnu og sæi borg- arsjóði iýrir helm- ingi skatttekn- anna væri for- stjórinn áreiðan- lega talinn valda- meiri en borgar- stjórinn. Finnbogi er fæddur 18. jan- úar 1950 og er því í merki Stein- geitarinnar. Sérfræðingar í áhrifum plánet- anna á skapgerð segja að Steingeitur séu íhaldssamar, iðjusamar, þolinmóðar, metn- aðargjarnar, einrænar og seinteknar. Fæðingardagur Finnboga er fyrir I margra hluta sakir merkilegur en þennan 41
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.