Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1998, Side 43

Frjáls verslun - 01.08.1998, Side 43
NÆRMYND lenskra fiskimjölsframleiðenda, Lífeyris- sjóðs Austurlands og Coldwater í Banda- ríkjunum. Þegar fjallað er um starfsferil Finnboga er rétt að bæta við að hann hafði gaman af því að kenna og fékkst nokkuð við kennslu. Meðan hann var í Menntaskólan- um á Akureyri kenndi hann stærðfræði við Vélskólann á Akureyri og fyrsta árið eftir aði það svo að Finnbogi hefði margar hægri hendur en Freysteinn væri sú mikil- vægasta. Finnbogi sótti Freystein þennan norður á Akureyri þar sem hann starfaði fyrir ÚA en Finnbogi þekkti hann frá því hann kenndi honum stærðfræði í Vélskól- anum á Akureyri á menntaskólaárunum. Finnbogi er mikið á ferðinni um fyrir- tækið og á vettvangi þar sem hlutir eru að HLUTABRÉF TIL SÖLU Á síöustu árum hefur Síldarvinnslan keypt og selt hlutabréf í t.d. HB&Co á Akranesi og Hraöfrystihúsi Eskifjarðar. Bréfin í Hraðfrystihúsi Eskifjaröar voru keypt af Lífeyris- sjóði Austurlands, Olís og fleirum áriö 1995 fyrir 80 milljónir og seld á næstu 18 mán- uðum fyrir 380 milljónir. Þetta þótti mörgum ágæt ávöxtun. að hann lauk stúdentsprófi 1970-71 bjó hann í Vestmannaeyjum og kenndi þar við Gagnfræðaskólann og Iðnskólann. LÚNKINN FJÁRFESTIR Finnbogi er hávaxinn, fremur þreklega vaxinn, höfuðstór og hálsstuttur. Hann gengur oft í teinóttum jakkafötum með vesti sem gefa honum gamaldags yfir- bragð. Hann er yfirvegaður og formfastur í framkomu og fámáll við ókunnuga. Þeir sem þekkja hann vel segja að hann sé mjög metnaðargjarn en í raun feiminn og hlé- drægur og lítt gefinn fyrir að trana sér fram. Um það verður ekki deilt að Finnbogi er meðal þeirra stjórnenda í íslenskum sjávarútvegi sem nýtur hvað mestrar virð- ingar. Þar kemur tvennt til. Annars vegar eru það verk hans sem birtast í góðri af- komu Síldarvinnslunnar en við rekstur hennar síðari ár þykir Finnbogi hafa sýnt útsjónarsemi og framsýni. Hins vegar er það Finnbogi sjálfur en hann er álitinn traustur og ráðagóður. Hann þykir naskur fjármálamaður og benda menn sérstaklega á kaup og sölu hlutabréfa í öðrum sjávarútvegsfyrirtækj- um því til staðfestingar en Síldarvinnslan hefur hagnast um hundruð milljóna á slík- um viðskiptum undir stjórn Finnboga. STÍGVÉLAÐISTJÓRNANDINN Það er sagt um Finnboga að hann sé harður í horn að taka sem stjórnandi og fylgist grannt með daglegum rekstri fyrir- tækisins. Hann hefur í miklum mæli sam- ráð við næstráðendur, s.s. útgerðarstjóra, verksmiðjustjóra, verkstjóra og fleiri, en mönnum ber saman um að Freysteinn Bjarnason útgerðarstjóri sé hans nánasti samstarfsmaður. Einn Norðfirðingur orð- gerast hveiju sinni, hvort sem verið er að frysta hrogn, flaka síld eða salta fisk. Þetta er talinn mjög mikilvægur þáttur í starfi stjórnenda sjávarútvegsfyrirtækja; að þeir hafi fingurinn á púlsinum og hiki ekki við að smeygja sér í stígvélin þegar það á við. FINNBOGI RÆÐUR Margir minna á að þegar Finnbogi tók við rekstrinum árið 1986 var eigið fé Síldar- vinnslunnar neikvætt og margt í rekstrin- um sem betur máttí fara. Sumir kenna því um að stjórn SÚN og stjórn Síldarvinnsl- unnar hafi ráðið of miklu og ekki gefið stjórnanda næg tækifæri. Vísa menn í þessu sambandi tíl fyrirrennara Finnboga, Guðjóns Smára Agnarssonar, sem gegndi starfinu í tvö ár en mátti sín ekki nógu mik- ils gegn stjórn fyrirtækisins. Menn segja að Finnbogi hafi verið fljótur að breyta þessu. Hann hafi því í rauninni tekið að vissu leyti völdin af stjórn Síldarvinnslunn- ar og í sínar eigin hendur. Það fer enginn Norðfirðingur í grafgötur með að Finnbogi ræður því sem hann vill og hefur alltaf síð- asta orðið í samskiptum við stjórn Síldar- vinnslunnar. Sérstaklega dást menn að framsýni hans og benda t.d. á þrákelkni Síldarvinnslumanna við kolmunnaveiðar og ýmsar fjárfestingar sem ráðist hefur verið í og tílbúnar hafa verið á réttum tíma. ROTARYMAÐUR OG VEIÐIKLÓ Eins og margir stjórnendur sem ná ár- angri vinnur Finnbogi mjög mikið og gefur sér lítínn tima tíl félags- eða tómstunda- starfa. Þegar loðnan gengur eða síldin finnst er ekki spurt hvað klukkan sé eða hvaða dagur sé. Að allt gangi vel á slíkum tímum getur ráðið úrslitum um afkomu fyrirtækisins en Síldarvinnslan hefur lagt mikla áherslu á vinnslu uppsjávarfiska. Af þessu leiðir sjálfkrafa að Finnbogi er vel liðinn í Neskaupstað og á orðið þar margt vina og kunningja. Hann stundar ekki hefðbundið félagslíf að ráði en gefur sér þó tíma tíl þess að vera í Rotaryklúbb staðarins og er reyndar forseti hans um þessar mundir. Hann hefur áhuga á menn- ingarmálum og félagsmálum og tekur því oft vel þegar forsvarsmenn slíkra félaga ganga á hans fund og æskja velvilja eða fyr- irgreiðslu sem fyrirtækið getur látíð í té. Hinsvegar hefur Finnbogi ekki tekið þátt í sveitarstjórnarmálum í Neskaupstað enda má til sannsvegar færa að hann ráði nógu miklu án þess að sitja í bæjarstjórn. Finnbogi hefur gaman af stangveiði og fer tíl veiða á hverju sumri, meðal annars í Selá í Vopnafirði. Einn veiðifélagi hans þar er Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri í Neskaupstað. Gárungarnir segja reyndar að þar fari þeir saman báðir bæjarstjórarn- ir. Miklir og nánir vinir Finnboga og konu hans eru hjónin séra Davíð Baldursson, sóknarprestur á Eskifirði, og Inger L. Jóns- dóttír, sýslumaður Suður Múlasýslu. Þau þekkjast frá fornu fari sem skólasystkini úr MA. Þannig sýnir nærmyndin af Finnboga Jónssyni okkur mann sem hefur skipað sér í fremstu röð stjórnenda í sjávarútvegi. Mann sem nýtur virðingar og hefur mikil völd en kann að beita þeim. SIl Heildar- lausnir HONNUN SMIÐI Þ JONUSTA VIÐGERÐIR # S HÉÐINN = SM IÐJA Stórási 6 »210 Garðabæ sími 565 2921 • fax 565 2927 43
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.