Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1998, Side 54

Frjáls verslun - 01.08.1998, Side 54
þeirra. I. Guðmundsson er umboðsmaður Mattel sem er einn stærsti leikfangaframleið- andi heims. Þar er einnig að finna vöru- merki eins og F i s c h e r - Price, sem nú er í eigu Mattel, og Mattel hef- ur einnig nýlega keypt vörumerki eins og Tyco og Match- box en margir litlir drengir hafa alist upp við leik að slíkum bíl- um og í eina tíð var hæstmóðins að safna slíkum bifreið- um. I. Guðmundsson er í eigu Hauks Bachmann og íjölskyldu hans og er upphaflega stofnað 1932. Tico og Matchbox hafa fram til þessa verið flutt inn af heildverslun- inni Bjarkey sem er í eigu Ingvars Helgasonar en hann hefur reyndar í seinni tíð verið þekktur fyrir að flytja inn öllu stærri bíla. Leikfangainnflutn- ingur var viðfangsefiii Ingvars áður en hann fór að flytja inn bíla svo segja má að hann hafi stækkað við sig. Mattel hefur reyndar einnig keypt Spears vörumerkið sem framleiðir hið vinsæla Scrabble spil og það hefur í framhaldi af því bæst við vöruúrval I. Guðmundssonar. ESKIFELL SÆKIR Á Þriðja stóra innflutningsfyrirtækið á sviði leikfanga er Eskifell. Eskifell er með umboð fyrir Hasbro sem er grið- arstór leikfangaframleiðandi á heims- vísu. Knex leikföngin, sem margir þekkja, eru flutt inn af Eskifelli en einnig selja þeir leikföng eins og Act- ion Man, Batman, Star Wars leikföng og margt fleira. Eskifell haslaði sér völl fyrst í stað með sölu og innflutningi á spilum og þrautum af ýmsu tagi. Þáttaskil urðu þegar fyrirtækið lét þýða spilið Trivial Pursuit fyrir rúmum 10 árum og seldi geysilega mikið. Um svipað leyti opn- uðu þáverandi eigendur Eskifells verslunina Genus í Kringlunni sem var sérverslun með púslur, spil og leiki. Trivial fór inn á flest heimili lands- ins og síðan hafa fleiri spil fylgt í kjöl- MARKAÐSMAL Stærstu innflytjendur leikfanga Páll Pálsson Eskifell Reykjalundur Mávanes I.Guðmundsson P.S.Pétursson Bjarkey Eiríksson Ársel farið og má nefna nýjar útgáf- ur af Trivial, Rummikub og hið sérstæða spil Leik og losta sem snýst um það sem nafii þess bendir til. Eskifell stund- aði ekki leik- fangasölu að ráði fýrr en fyrir rúmum tveimur árum þegar það skipti um eigend- ur. Fyrri eigendur Eskifells reka ennþá verslunina Genus sem hefur verið flutt í Glæsibæ úr Kringl- unni. LEIKBÆJARFJOLSKYLDAN Það var fjölskyldan sem rekur Leik- bæjarverslanirnar sem keypti 50% í Eskifelli á móti Guðjóni Guðmunds- syni sem áður rak Fjallið hvíta. Þannig jók Leikbæjarfjölskyldan ítök sín i leikfangabransanum en fjölskylda þessi samanstendur af hjónunum Grétari Eiríkssyni, Þorgerði Arnórs- dóttur og tveimur sonum þeirra, Jóni Páli og Eiríki, sem sjá að miklu leyti um reksturinn. Þessi fjölskylda hefur lengi fengist við leikfangasölu eða frá því að afinn Eiríkur Agústsson, stofnaði leikfanga- búð á horni Laugavegs og Smiðju- stígs. Grétar, sonur hans, hóf sinn fer- il með því að afgreiða í Liverpool. Síð- ar eignaðist fjölskyldan þá verslun og færði talsvert út kvíarnar. Auk Leik- bæjarverslananna og helmingseignar i Eskifelli á Grétar ásamt bræðrum sínum heildverslunina Eiríksson sf í Skútuvogi en hún flytur inn leikföng. HVER TENGIST HVERJUM? A heildsölustigi má einnig nefna heildverslanir s.s. Mávanes, Arsel, P.S.Pétursson, Pál Pálsson, Is- lensku verslunarmiðstöðina og fleiri og fleiri. Víðar en hjá Leikbæjarmönnum eru tengsl milli heildsölu og smásölu. Margrét Pálsdóttir, sem nú á og rekur Liverpool, er systir Páls Pálssonar heildsala en þau eru börn Páls Sæ- mundssonar sem áttí á sínum tíma Liverpool húsið á Laugavegi 20. Eig- andi Hugselsbúðanna tveggja er barnabarn þess sem stofnaði og á Mávanes. K. Einarsson og Björnsson var um hríð umsvifamikil í leikfangainnflutn- ingi en afkomendurnir reka nú leik- fangabúð í Kringlunni sem heitir Vedes. Enn er ónefht stórveldi á sviði leik- fangainnflutnings en það er Reykja- lundur sem áratugum saman hefur flutt inn og dreift vörum frá Lego sem áreiðanlega allir þekkja. Lego hefur mikla sérstöðu á markaðnum og á sinn trygga aðdáendahóp sem snýr ekki baki við sínu kubbaverki hvað sem nýjum tískusveiflum líður. HEFÐBUNDIN LEIKFÖNG ERU UNDIRSTAÐAN í viðtali við Hauk Bachmann hjá I. Guðmundsson ehf. kom fram að kaupmenn heföu með tílkomu frelsis aukið eigin innflutning frá erlendum heildsölum og talið sig fá betra verð með þeim hættí. Haukur taldi reynsl- una hafa sýnt að verðið heföi yfirleitt verið hærra og þessu heföi fýlgt auk- inn kostnaður og útflutningur á at- vinnu íslenskra verslunarmanna til er- lendra heildsala. Hann taldi mikinn sparnað nást með því að kaupmenn beindu viðskiptum sínum í auknum mæli til innlendra heildsala. „I. Guðmundsson var stofnað 1932 og breytt í hlutafélag 1933. Við byrjuð- um að flytja inn spil á seinni hluta sjö- unda áratugarins og síðar litabækur og leikföng," sagði Haukur. ,Árið 1993 tók- um við Mattel um- boðið (Bar- MEÐILEIKINN ÞRAMMA Leikfangasalar telja að leikföng eigi í vaxandi samkeppni við tölvur og tölvuleiki sem hafi sett svip sinn á leikvenjur barna og breytt þeim. Sumir taka svo djúpt í árinni að segja að núorðið kaupi enginn hefðbundin leikföng fyrir börn eldri en 10 ára gömul. 54
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.