Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1999, Qupperneq 20

Frjáls verslun - 01.01.1999, Qupperneq 20
FORSIÐUGREIN Harðar rökræður Hér birtast líflegar og harðar rökrœður Þórólfs Árnasonar, forstjóra Tals, og Guðmundar Björnssonar, forstjóra Landssímans, þar sem orðsins brandi var brugðið ótt og títt! GH: Teljið þið að aukið frelsi í fjarskiptum - og innkoma Tals sl. vor á markaðinn, hafi leitt til hinnar gífurlegu sölu á GSM-símum á síðasta ári? Þórólíur: „Aukið frelsi í viðskiptum leiðir alltaf til aukinna við- skipta. í byijun síðasta árs var gefið leyfi fyrir frelsi í fjarskiptum. Eg held að þetta verði ártal sem lengi verði í minnum haft. Þetta var tímamótaár í í]arskiptum á Islandi. Frelsi í Ijarskiptum eykur kosti neytenda, verndar hagsmuni þeirra og sinnir þeim betur varðandi ýmis viðskiptatækifæri. Frelsið er stóra hagsmunamálið fyrir almenning og fyrirtæki í landinu; keppni Tals og Landssím- ans er aðeins afleiðing af þessu frelsi. I fijálsum viðskiptum felst mikill virðisauki. Frelsi í fjarskiptum skapar aukna vinnu fyrir mörg önnur fyrirtæki; hugbúnaðargerð, hugvit og framþróun hugverka mun stóreflast. Lækkun á verði þessarar þjónustu hefur í för með sér meiri notkun. Það eru fleiri tæki, aukinn taltími og meiri gagnaflutningur á milli fólks og fyrirtækja. Þetta er forsend- an. Það leikur vart vafi á að innkoma okkar leiddi til aukinar sam- keppni og stóraukinnar sölu á GSM-farsímum og notkunar al- mennings á þessari tækni.“ Guðmundur: „Þótt fullt frelsi í fjarskiptum hafi komið til sög- unnar á síðasta ári hófst samkeppni í virðisaukandi gagnaflutning- um og sölu notendabúnaðar nokkru fyrr - en aðalsamkeppnin kom á síðasta ári. Samkeppnin er af hinu góða. Hún skapar aukið val fyrir viðskiptavini - ekki bara í verði heldur líka í gæðum og þjónustu. Með komu Tals inn á markaðinn varð augljóslega meiri samkeppni, meiri kynning og umfangsmeira og beittara markaðs- starf. Keppnin magnar upp þjónustuvilja beggja. í umhverfi einka- réttar er skiljanlega erfitt að selja viðskiptavinum sínum þá skoð- un að þjónustan sé fyrsta flokks og verðið sé með þvi besta í heimi. En við teljum að á tímum einkaréttar hafi Landssíminn engu að síður boðið mjög góða þjónustu og gott verð. Ef við berum verð okkar við það sem tiðkast í Evrópu hefur það verið með því allra lægsta sem þekkist.“ Þórólliur: „Eftir að við komum inn á markaðinn snaijókst öll kynning á farsímaþjónustunni. Bæði fyrirtækin hafa lækkað verð- ið og komið með tilboð sem stækkað hafa markaðinn - neytendum til góðs. Eg vona hins vegar að neytendur gleymi því ekki - og horfi ekki fram hjá því - að verðið lækkaði á þessari þjónustu og gæði hennar jukust eftir að frelsið var gefið og við komum inn á markaðinn." Guðmundur: „Þess vegna kom það okkur á óvart - sem og öll- um GSM-notendum - þegar stjórnarmaður hjá ykkur gaf út þá yf- irlýsingu í upphafi að þið ætluðuð ekki að keppa í verði. Þegar við gripum til verðlækkana tíl að leyfa okkar viðskiptavinum að njóta góðs af lækkandi verði vegna stóraukinna viðskipta í farsímakerf- inu kærðuð þið okkur tíl Samkeppnisstofnunar og kröfðust þess að verðlækkunin, sem tók gildi 17. september ‘98, ásamt magnaf- slættí tíl fyrirtækja yrði felld úr gildi. Og ekki nóg með það. Þið kröfðust þess að okkur yrði gert að greiða sekt vegna þess að við lækkuðum verðið!! Hvar var boðskapur ykkar um aukin fjarskiptí og hagsmuni notenda? Það hlýtur að koma notendum spánskt fyr- ir sjónir að nýtt fyrirtæki, sem kemur inn á markaðinn og boðar mikla samkeppni, vilji ekki keppa í verði. Með aukinni GSM-notk- un er hægt að lækka verðið á hveija mínútu. Þannig er þetta í öll- um viðskiptum. Það er of mikill munur á farsímagjöldum og heíð- bundnum símgjöldum og hann verður að minnka.“ Þórólfur: „í erindi okkar til Samkeppnisstofnunar gerðum við athugasemd við það að þið væruð ekki farnir að sýna sundurlið- un á því hvaðan hagnaðurinn kæmi - en á sama tíma lækkuðu þið eingöngu verðið á þeirri samkeppnisþjónustu sem þið þurftuð að beita gegn okkur. Þetta var skipulögð og ákveðin aðgerð. Enda, hvernig voru úrskurðarorð Samkeppnisstofnunar!? Það voru tíl- mæli Samkeppnisstofnunar til ykkar að beita ekki ffekari lækkun- um á GSM-þjónustunni á meðan mál ykkar væru til skoðunar þvi þið sýnduð Samkeppnisstofnun ekki á óyggjandi hátt fram á að hagnaður ykkar væri tíl kominn þarna. Og heldur ekki hvaða nýj- ar forsendur hefðu komið tíl frá verðlækkun ykkar í mars sl. sem var undirbúningur ykkar vegna komu Tals í byrjun maí? Tal er búið að skila neytendum líklegast um 40% verðlækkun á GSM- þjónustu - aðeins með því að koma á markaðinn. Það sýnir líka hroka að þið hafið þennan úrskurð Samkeppnisstofnunar að engu. Það eru tilmæli Samkeppnisstofnunar að þið lækkið ekki verðið á GSM-þjónustunni á meðan mál ykkar eru í skoðun. Eg þyrði ekki að gera það sem þú ert að gera, Guðmundur, að lækka verð á GSM-þjónustu í útlandasímtölum sem svar við okkar út- landasímstöð." Guðmundur: „Enn kemur mér á óvart hvað Tali er illa við verðlækkanir tíl GSM-notenda. Um sundurliðunina vil ég segja þetta: Farsímaþjónusta okkar er fyllilega aðgreind frá öðrum rekstri; ekki bara í rekstrarreikningi heldur líka á sérstökum efiia- hagsreikningi. Við greiðum ekki niður farsímaþjónustuna með annarri þjónustu. Varðandi kæru Tals tíl Samkeppnisstofhunar vegna verðlækkunar okkar þá svöruðum við þessari kæru og sendum greinagerð mjög snemma tíl Samkeppnisstofnunar. En ég vek athygli á því að það þurftí að gefa lögmanni Tals tvisvar frest tíl að koma með athugasemdir vegna svars okkar. Við lítum svo á að það hafi verið gert til að tefja málið. Þess vegna tilkynnt- um við samkeppnisyfirvöldum að við sæjum okkur ekki lengur 20
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.