Frjáls verslun - 01.01.1999, Blaðsíða 43
Þorsteinn Metúsalem Jónsson, forstjóri Vífilfells, er hagfrœðingur. Hann er alnafni langafa síns sem var þekktur skólamaður og rómaður bóka-
safnari á Akureyri. FV-myndir: Geir Ólafsson.
steinn í tvö ár í hagfræðideild Seðlabank-
ans og tók til starfa þar í alþjóðadeild þeg-
ar náminu í Ameríku lauk og starfaði þar til
1994 þegar hann réðst til Samtaka iðnaðar-
ins þar sem hann starfaði sem hagfræðing-
ur fram til 1996 þegar hann tók við starfi
framkvæmdastjóra Vííilfells.
Þorsteinn á auðvelt með að sökkva sér
ofan í mál og einbeita sér; var harður
námsmaður og lauk t.d. framhaldsnáminu
i Ameríku á einu ári.
Þorsteinn var nokkuð áberandi í starfi
sínu sem hagfræðingur Samtaka iðnaðar-
ins og tók t.d. virkan þátt í umræðu um
veiðileyfagjald sem hann taldi brýnt að
koma á. Þetta var meðal þess sem vakti at-
hygli eigenda Vífilfells á hinum unga
manni þegar þeir voru á höttunum eftir
nýjum forstjóra í ársbyijun 1996 eftir nokk-
uð tíðar mannabreytingar þar.
VANTAR ÞIG VINNU?
Það kom Þorsteini þó í opna skjöldu
þegar Pétur Björnsson, forstjóri og aðal-
eigandi Vífifells, bauð honum starf við
stjórnun fyrirtækisins. Pétur vildi fá nýtt
blóð inn í Vífilfell, einhvern ungan og
ferskan sem ekki hefði alist upp innan fyr-
irtækisins. Þorsteinn hugsaði sig um í
tvær vikur en tók siðan tilboði Péturs með
því skilyrði fyrst og fremst að Péhir léti
honum eftir stjórn fyrirtækisins og sleppti
hendinni af daglegum rekstii þess.
Þorsteinn hafði ekki neina reynslu af
stjórnun þegar hann tók við forstjórastarf-
inu, hafði aðeins lært ýmsar kenningar um
stjórnun í sínu námi. Hann sótti í reynslu
sína af mannlegum samskiptum sem hann
hafði kynnst við fararstjórn og í leikhúsinu.
Hann leggur það til grundvallar við stjórn-
un að hún byggi á mannlegum samskipt-
um og finnst ákaflega mikilvægt að starfs-
fólki og samstarfstarfsmönnum hans líði
vel í starfi.
Þorsteinn er í nánu sambandi við sína
næstu undirmenn, fylgist daglega með
sölutölum, reglulega með helstu kennitöl-
um og fundar vikulega með öllum stjórn-
endum og millistjórnendum.
FÓLKIÁ AÐ LÍÐA VEL í VINNUNNI
Þorsteinn er blátt áfram og yfirvegaður
í daglegri framkomu og sýnist vera í jafn-
vægi. Hann er opinskár og á gott með að
kynnast fólki. Hann gefur sér góðan tíma
og hlustar á sjónarmið starfsfólksins ef um
persónuleg mál er að ræða. Hann er, þegar
á reynir, ákveðinn stjórnandi sem hikar
ekki við að taka af skarið og bakkar ekki
svo glatt með ákvarðanir sínar þegar þær
hafa verið teknar.
I samræmi við þá stefhu að starfsfólki
eigi að líða vel í starfi og taka framförum
hefur Þorsteinn sett á fót Menntastofnun
Péturs Björnssonar innan Vífilfells. Þar
TEXTI: Páll Ásgeir Ásgeirsson
43