Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1999, Side 39

Frjáls verslun - 01.01.1999, Side 39
Margt í umhverfi, menningu og viðhorfi þess íyrirtækis sem þar er lýst er talið minna á McKinsey. Það gekk undir nafn- inu „The Firm“ löngu áður en bókin var skrifuð. Mikil leynd hvílir yfir starfsemi Mc- Kinsey. Fyrirtækið tjáir sig aldrei um verk- efni sín og yfirmenn og starfsmenn veita aldrei viðtöl heldur treysta alíarið á orð- sporið. Einu samskiptin sem íyrirtækið hefur við aðra en viðskiptavini er gegnum tímaritið McKinsey Quarterly sem reynd- ar fæst ekki í almennri áskrift en er sent til valinna manna. Starfsmenn McKinsey hafa einnig skrifað og gefið út margar bækur um stjórnun og fjármál sem mikla athygli hafa vakið. Ein sú þekktasta er áreiðanlega, in Search of Excellence eftir Thomas J. Peters og Robert H. Waterman. Fyrrverandi starfsmenn McKinsey eru íslandi að hafa unniö hjá virtasta McKinsey&Co. hluti af gríðarlega sterku neti eða félagi því mjög vel er fylgst með ferli þeirra og skrá McKinsey Alumni um fyrrverandi starfs- menn er ávallt rétt. Þeir sem fara frá Mc- Kinsey í forstjórastól eru oft sagðir byrja á því að láta McKinsey veita ráðgjöf og ráða síðan fyrrverandi McKinsey menn sem sína næstráðendur. Sem svar við spurningunni um það hvernig starfsmönnum McKinsey sækist eftir er rétt að vitna tíl Ron Daniels, fyrrum framkvæmdastjóra. Dæmigerður McKins- ey maður er mjög skarpur. Hann er innst inni mjög óöruggur og það rekur hann áfram og síðast en ekki síst er hann afar metnaðargjarn og mikill keppnismaður. (Insecure overachiever). EF ÞÚ ÞARFT AÐ SPYRJA ÞÁ HEFURÐU EKKI EFNIÁ ÞVÍ Um gjaldskrá McKinsey er sagt að ef þú þurfir að spyrja hvað verkið kosti þá hafir þú ekki efni á því að láta þá vinna fyr- ir þig. í Fortune 1993 var fullyrt að grunn- taxtinn væri sem svaraði til 14 milljóna ISK i "X!"" Hannes Smárason, aðstoðarforstjóri Islenskrar erfðagreiningar, er fyrrum McKinsey maður. FV-mynd: Geir Olafsson. á mánuði en gæti auðveldlega farið í 20 milljónir. Það er fyrir utan allan kostnað hverju nafni sem hann nefnist. Taxtinn er hækkaður um 3% á ári. Það er ekki hægt að prútta við McKinsey um verð. Það sem freistar manna eru launin og einstætt tækifæri til þess að kynnast frá fyrstu hendi starfsemi og innviðum stórra fyrirtækja með nánari hætti en ella væri mögulegt. Ekki er ólíklegt að byijunarlaun ráð- gjafa hjá McKinsey&Co. séu um þessar mundir 100 til 150 þúsund dollarar á mán- uði eða 750 þúsund - 1 milljónar króna. Ekki komast þó allir gegnum nálaraug- að því á hveiju ári hafa tugir þúsunda manna samband við fyrirtækið vegna at- vinnu. Reikna má með að 10% þeirra kom- ist í viðtal og síðan séu 10% þeirra ráðnir tíl starfa. Það samsvarar 1% umsækjenda. Það eru fjórir íslenskir stjórnendur og yfirmenn starfandi á Islandi sem eiga það sameiginlegt að hafa starfað hjá McKins- ey&Co. og fengið þar þjálfun sem að mati margra gefur háskólanámi ekkert eftír. FJÓRIR MCKINSEY MENN Á ÍSLANDI Þessir fjórir „McKinsey menn“ starfa hjá tveimur fyrirtækjum, íslenska útvarps- félaginu og Islenskri erfðagreiningu. Þar fyrir utan er vitað um tvo Islendinga sem starfa hjá McKinsey&Co. erlendis og einn hefur starfað þar en er horfinn tíl annarra starfa. Hreggviður Jónsson, forstjóri Islenska útvarpsfélagsins, starfaði hjá McKins- ey&Co. í Stokkhólmi í rúmlega tvö ár í margvíslegum verkefnum, aðallega á sviði stefnumótunar og hagræðingar, bæði í Sví- þjóð og Evrópu frá 1993 tíl 1995 en hafði áður starfað þar eitt sumar meðan hann var enn í námi. Hannes Smárason, aðstoðarforstjóri Is- lenskrar erfðagreiningar, starfaði í þrjú ár, 39
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.