Frjáls verslun - 01.01.1999, Qupperneq 44
m
Á frábæru verði
Ræstivagnar
stórir
Þorsteinn leggur mikið uþþ úr mannlegum samskiþtum í stjórnun og segist hafa nýtt sér reynsluna úr leik-
húsinu íforstjórastarfinu. Hérstendur hann í hóþi nánustu samstarfsmanna sinna. Talið frá vinstri: Frið-
rik Eysteinsson, forstöðumaður markaðs- og söludeildar, Arna Örvarsdóttir, markaðsstjóri fyrir dökka gos-
drykki, Arni Stefánsson, sölustjóri og vöruflokkastjóri, Auður Arnadóttir starfsmannastjóri, Ævar Agústs-
son áœtlanastjóri, Pétur Helgason gœðastjóri, Páll Ólafsson dreifingarstjóri, Stefán Magnússon, forstöðu-
maður þjónustudeildar, Gunnar Guðjónsson, sölustjóri og umsjónarmaður heimasíðu, Tryggvi Harðarson,
forstöðumaður tölvudeildar, Guðmundur Elías Níelsson, forstöðumaður framleiðsludeildar, Guðrún Þor-
grímsdóttir ritari, Sveinn Ragnarsson fiármálastjóri og Páll Hilmarsson, framkvæmdastjóri Þórðar
Sveinssonar ehf.
gefst starfsmönnum kostur á að sækja nám-
skeið í ýmsum fögum bæði þeim sem tengjast
starfinu beint en einnig í ýmsum hagnýtum hlut-
um. Þar eru kennd skattskil, heimilisbókhald,
sjálfsvörn fyrir konur og enska, svo nokkuð sé
nefnt. Kennarar eru starfsmenn Vífilfells og
námskeiðin ýmist utan vinnutíma eða innan og
þátttakendum að kostnaðarlausu. Einnig er
haldið úti kerfisbundnum námskeiðum fyrir t.d.
sölufólk. Öll námskeið gefa punkta og fyrir góða
frammistöðu eru veitt verðlaun, t.d. málsverður
með maka á veitingahúsi í boði Vífilfells.
ER í GÓÐU FORMI
Þorsleinn stundar líkamsrækt af miklum
áhuga í frístundum sínum og er tíður gestur í
tækjasal World Class. Hann hefur verið í fram-
línu þeirra stjórnenda sem hvetja starfsfólk sitt
til heilbrigðs lífernis, enda telur hann líkamlegt
atgervi nátengt andlegri vellíðan og snerpu.
Þetta eru ekki einu íþróttirnar sem Þorsteinn
leggur stund á því hann keppti í hlaupum á sín-
um yngri árum og er býsna sprettharður enn ef
hann tekur sig til. Hann hefur tekið þátt í ýms-
um almenningshlaupum og lokið hálfu mara-
þoni í Reykjavíkurmaraþoni á 1:38 klst. sem er
afbragðs tími fyrir skokkara. Það er einnig í frá-
sögur fært að þegar hann var i hvað bestri
hlaupaþjálfun varð hann annar í skemmtiskokki
Reykjavíkurmaraþons, fast á hæla Sighvati Dýra
Guðmundssyni sem er þekktur hlaupari.
Þorsteinn hefur lifandi áhuga á ýmsum
íþróttum og bregður sér stundum á sjóskíði eða
vatnaskíði á Þingvallavatni með Þórði Þórðar-
syni lögfræðingi sem er mikill vinur hans. Þeir
félagar bregða sér einnig talsvert saman á hest-
bak en Þórður á hesta.
Þorsteinn hefur gaman af kraftmiklum bílum
og talsverðan áhuga á þeim og finnst gaman að
taka þá til kostanna. Um þessar mundir ekur
hann á Grand Cherokee í eigu Vífilfells.
Hann fer stundum í veiði þegar Vífilfell býður
völdum viðskiptavinum en hefur ekki sérstakan
eða brennandi áhuga á því. Þó eru til myndir af
honum með 17 punda fisk úr Laxá í Aðaldal.
Á FJALIRNAR
Þorsteinn hefur talsverðan áhuga á menning-
armálum og listsköpun af ýmsu tagi og hefur
lagt hönd á plóginn á þeim vettvangi. Segja má
að afskipti hans af listum og menningu hafi byrj-
að á fjölum Þjóðleikhússins en það vildi þannig
til að Hlín Agnarsdóttir leikstjóri kenndi leik-
ræna tjáningu í MH og sendi nokkra nemendur,
þar á meðal Þorstein, í áheyrnarpróf í Þjóðleik-
húsið fyrir sýningu á leikriti Odds Björnssonar,
Eftir konsertinn. Þorsteinn fékk hlutverk og þar
kynntist hann m.a. Helga Skúlasyni leikara
BLINDRAVINNUSTOFAN
Hamrahlíð 17
SÍMI
525 00 25
smáir
og allt
þar á milli
Einfalt oggott
moppukerfi
Öll áhöld og tæki til
hreingerninga. Fyrir fólk
og betra umhverfi.
44