Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1999, Síða 84

Frjáls verslun - 01.01.1999, Síða 84
6 Œ//v/afmæli um um Evrópskt efnahagssvæði með lög- um frá alþingi 1993. Samkvæmt þeim samningi er Island nú skuldbundið til að virða leikreglur ftjálsrar verzlunar, ekki að- eins með vörur og þjónustu, heldur einnig með fjármagn og vinnuafl, svo að til að mynda atvinnuréttindi Islendinga erlendis eru nú miklu rýmri en áður. Það munaði þó ekki nema hársbreidd, að andstæðing- um frjálsra viðskipta tækist að koma í veg fyrir aðild Islands að EES-samningnum. Þessi samningur hefur þó nú þegar gert þjóðinni mikið gagn, ekki aðeins á efna- hagssviðinu, heldur einnig til dæmis með því að dreifa dómsvaldinu að nokkru leyti út fyrir landsteinana og deila því með öðr- um. Máttur frjálsra millilandaviðskipta er ekki bundinn við vörur, þjónustu, fólk og fé. Nei, við Islendingar höfum nú þegar haft mikinn hag af því, að þeir, sem telja innlenda dómstóla hafa brotið á sér, geta nú leitað réttar síns fyrir Eftirlitsstofiiun EFTA og EFTA-dómstólnum. Aðhaldið, sem í þessu felst, virðist víst til að bæta og efla dómskeríið hér heima, þegar fram í sækir. EFTIR ÞVÍ SEM DANIR VAKNA... Efla þarf viöskiptin við umheiminn sem allra mest. Það var einmitt þetta sem Jón Sigurðsson átti við þegar hann sagði árið 1840: „Eftir því sem Danir vakna, eftir því fer hagur okkar versnandi, ef við vöknum ekki líka.“ TÖLVUBYLTINGIN Enn önnur bylgja hefur riðið yfir Is- land erlendis frá til mikillar blessunar fyr- ir land og lýð: Tölvubyltingin. Stjórnvöld eiga svolítinn þátt í þessu, því að þau tóku þá ákvörðun á sínum tíma að innflutning- ur á tölvum og tölvubúnaði skyldi vera tollfrjáls. Þetta hefur áreiðanlega átt sinn þátt í því að tölvuvæðing íslenzkra heim- ila og fyrirtækja er alllangt yfir heims- meðallagi og virðist nú þegar hafa skilað þjóðinni miklum hagsbótum. Fjarskipta- og farsímabyltingin er angi á sama meiði þótt sjónvarp og símtöl séu sannarlega misjöfn að gæðum eins og önnur manna- verk. Við Islendingar hefðum ekki síður en til að mynda írar og Skotar átt að geta haslað okkur völl meðal helztu framleið- enda hugbúnaðar í heiminum, en það varð ekki og verður ekki svo lengi sem iðnaður, verzlun og þjónusta, höfuð- atvinnuvegir Islendinga, eiga undir högg að sækja vegna landlægra og lífseigra ranghugmynda um ofurvægi sjávarút- vegsins í þjóðarbúskapnum. Þegar öllu er til haga haldið, höfum við Islendingar ýmsar ástæður til að gleðjast yfir góðum árangri síðastliðin 60 ár. Sumt af þessu getum við með sanni þakkað okk- ur sjálfum, en ýmislegt af þessu er þó kom- ið annars staðar að, svo sem eðlilegt er í svo örfámennu landi. Einmitt þess vegna ríður okkur svo mjög á því að efla viðskipti okkar við umheiminn sem allra mest og leita tíl þess allra færra leiða. Þá mun okk- ur farnast vel á nýrri öld, sem nú er á næsta leiti. Það var einmitt þetta, sem Jón Sigurðsson átti við þegar hann sagði árið 1840: „Eftir því sem Danir vakna, eftír því fer hagur okkar versnandi, ef við vöknum ekki líka.“ 33 84
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.