Frjáls verslun - 01.10.2000, Side 24
Islendingar flykkjast til sólarlanda á hverju sumri. Þessi
mynd er frá Spáni en ferðaskrifstofan Sól ætlar að bjóða
upp á ferðir til Kýpur, ísraels, Egyptalands og Portúgals.
Mynd: GHS
Hræringar hafa verið á ferðaskrif-
stofumarkaði að undanförnu,
Helgi Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri stærstu ferðaskrif-
stofu landsins, Samvinnuferða-Land-
sýnar hf., SL, lét af störfum í haust-
byrjun og hefur Guðjón Auðunsson,
fv. framkvæmdastjóri Landsteina,
verið ráðinn framkvæmdastjóri í
hans stað. Hann hefur þegar tekið til
starfa. Starfsmönnum mun fækka
um tæplega 30, ríílega 20 starfs-
mönnum hefur verið sagt upp störf-
um og fimm hafa hætt. Flutt verður í
nýtt húsnæði við Sætún og skipulagsbreytingar bíða eftir tap
síðustu ára, en tapið fyrstu sex mánuði þessa árs nam 136
milljónum króna, um 97 milljónum að teknu tilliti til skatta.
Sumir hafa viljað taka svo sterkt til orða að fyrirtækið sé „ljár-
hagslega ónýtt“ og reynt sé að forða því frá gjaldþroti með
endurskipulagningu, uppsögnum og niðurskurði. Það stóð þó
ekki verr en svo að Jón Ólafsson, eig-
andi Norðurljósa hf., gerði fyrirspurn
í fyrirtækið í haust en eigendur vildu
ekki selja.
Vinir taka saman höndum En það
var við þessar aðstæður sem hug-
myndin kviknaði um að stofna nýja
ferðaskrifstofu, Sól hf., og talið lag til
þess að smeygja sér inn á markaðinn.
Hlutafé var ákveðið 100 milljónir
króna, sem þykir óvenju ríílegt miðað
við nýjan rekstur í þessum geira þar
sem fé hefur yfirleitt verið af skorn-
um skammti við stofnun nýrra fyrirtækja. Stofnendur og
stærstu eigendur Sólar eru nokkrir. Þar má helsta telja Ómar
Kristjánsson, fv. forstjóra Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, sem
mun gegna starfi framkvæmdastjóra Sólar, Jóhann Óla Guð-
mundsson, eiganda Securitas, sem verður stjórnarformaður,
Helga Magnússon, framkvæmdastjóra Hörpu, sem er vara-
Uppstokkun er í aðsigi á íslenskum
ferðamarkaði. Búist er við að sam-
keppnin harðni, ferðalög til útlanda
dragist saman, ferðaskrifstofum fækki
og stærðarhlutfóllin breytist. Hugsan-
legt er að tvær ferðaskrifstofur ráði
markaðnum innan fárra ára.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndin Geir Ólafsson
24