Frjáls verslun - 01.10.2000, Blaðsíða 56
Hluti starfsfólks hjá Logos lögmannsþjónustu. Fremsta röð frá vinstri: Guðrón Birgisdóttir, Guðrún Björk Bjarnadóttir, Hólmfríður Kristjánsdóttir, Hjördís
Halldórsdóttir, Oddný Guðmundsdóttir. Önnur röð frá vinstri: Svanhvít Axelsdóttir, Kristín Crosbie, Einar Baldvin Axelsson, Hlynur Jónsson, Hákon
Árnason, Othar Örn Petersen, Þriðja röð frá vinstri: Erlendur Gíslason, Guðmundur J. Oddsson, Jakob R. Möller, Gunnar Sturluson, Pétur Guðmundarson
og Árni Vilhjálmsson. FV-Mynd: Geir Ólafsson
Logos þjónar viðskiptalífinu
Logos lögmannsþjónusta er stærsta lögmannsstofa landsins.
Hún sérhæfir sig í lögfræðiþjónustu fyrir fyrirtæki og viðskipta-
aðila, tekur að sér innheimtu og býður upp á aðstoð við vöru-
merkja- og einkaleyfaskráningu.
Logos lögmannsþjónusta er heitið á lögmannsstofu eftir sameiningu
Málflutningsskrifstofunnar, sem var elsta starfandi stofa í landinu, og
A&P Lögmanna. Báðar stofurnar höfðu á stefnuskrá sinni að þjóna fyrst
og fremst viðskiptalífinu og hjá báðum var áhugi fyrir því að færa út kví-
arnar og stækka. Pétur Guðmundarson, faglegur framkvæmdastjóri
Logos, segir að báðar stofurnar hafi verið svo litlar að þær hafi ekki bor-
ið yfirstjórn fjárhagslega séð en hins vegar hafi þær verið orðnar svo
stórar að þær hafi þurft á henni að halda. Veruleg hagkvæmni hafi falist
í sameiningu, bæði fjárhagslega og varðandi tækifæri til sérhæfingar á
einstökum sviðum lögfræðinnar.
í samstarfi við erlendar lögfræðistofur
„Uppistaðan í viðskiptum okkar eru innlend fyrirtæki sem við þjónum.
Viðskiptavinir okkar eru nokkur af stærstu fyr-
irtækjum landsins. 30 prósent af tekjum okkar
koma frá erlendum viðskiptavinum. Við höfum
lagt áherslu á að vera í góðu sambandi við er-
lenda aðila, bæði til þess að geta þjónað þeim
hér heima og eins til að geta tryggt viðskipta-
vinum okkar góða þjónustu erlendis. Fyrir sam-
eininguna voru skrifstofurnar hvor í sínu al-
þjóðlega lögfræðinganetinu, Lex Mundi og
Terra Lex. Inn í þessar alþjóðlegu keðjur er valið af mikilli kostgæfni og
þeim einum boðin þátttaka sem uppfylla ákveðnar kröfur. Báðar keðj-
urnar hafa innanborðs virtustu lögfræðistofur í mörgum löndum. Nú til-
heyrum við báðum keðjum," segir Pétur.
- Þýðir þetta að þið getið aðstoðað viðskiptavini ykkar nánast hvar
sem er í heiminum?
„Já. Þetta tryggir að fyrirtækin eru í góðum höndum, hvar sem er í heim-
inum," svarar hann.
Þjónusta Logos
Logos býður viðskiptavinum sínum upp á margvfslega þjónustu:
1 Sérhæfða lögfræðilega ráðgjöf til stjórnenda fyrirtækja og annarra.
2 Samning lögfræðilegra álitsgerða um tiltekin viðfangsefni.
3 Samningagerð á ýmsum sviðum.
4 Lausn lögfræðilegra álitaefna sem geta endað í málaferlum.
5 Málflutning fyrir dómstólum og stjórnvöld-
um.
6 Áreiðanleikakannanir þegar fjárfest er í
fyrirtækjum eða við samruna fyrirtækja.
Logos hefur einkum sérhæft sig í höfundarrétti
og persónuvernd, sjó og flugrétti, skaðabóta-
rétti, samningarétti, vátryggingarétti, viðskipta-
og bankalögfræði, félagarétti og vinnurétti.
LOGOS
LÖGMANNSÞJÓNUSTA
s í ð a n 19 0 7
Borgartúni 24, Reykjavík.
Sfmi: 5 400 300. Bréfsími: 5 400 301.
Veffang: logos.is. Netfang: logos@logos.is
56
iMm'l«!l!fl?Til