Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Side 3
Mynd/Steingrimur Eyfjörö Kristmundsson
EINAR MÁR GUÐMUNDSSON
Unglingurinn á torginu
1
Hann rúllar sér
sígarettur úr augnablikunum
horfir á hvernig þau
eitt af öðru brenna
á milli fingranna
stingur þeim svo uppí sig
og gleypir eldinn sem
tíminn hefur tendrað
2
Aðeins
kattarglyrnur sveima
um mannautt hjarta
borgarinnar
skóreimar flagsast
til og frá í vindinum
og hrollurinn sáldrast
marmari um veggina
á milli húsanna
sem híma
jafn djúpt sokkin
og krakkarnir í biðskýlinu
3
Bara að þú vissir
hvorum megin sólarhringsins
torgklukkan slær í
hjartaþínu
hvaðan himnarnir
sem speglast í glerbrotunum
hafa hrunið
og hver hefur
tendrað þennan eld
kveikt í augnablikunum
sem loga í tunglum
stjörnum og ljósum
í þér
í mér
4
Hei þú
sem hverfur þarna með
myrkrinu fyrir hornið
og rauðleitt hár morgunsins
flagsandi í vindinum
af hverju
hoppum við ekki uppá
bakið á farfuglunum
eða látum okkur fjúka
með haustlaufunum
burt burt þar til
hímandi húsin opna dyr sínar
inní mannautt hjartað
um leið og biðskýlin
fara á hreyfingu
Einar Már Guömundsson, f. 1954, er rithöfundur og vakti fyrs*
athygli með þremur nýstárlegum Ijóðabókum, en einnig og ekki
siður, þegar hann hlaut bókmenntaverðlaun Almenna Bókafélagsins
fyrir bók slna, Riddarar hringstigans. Auk hennar hefur komið út
eftir hann skáldsagan Vængjasláttur I þakrennum. Einar Már starf-
aöi um tima I Kaupmannahöfn, en er nú fluttur heim og býr I
Reykjavlk. Steingrimur Eyfjörð Kristmundsson er ungur myndlistar-
maður, sem stundaö hefur framhaldsnám I Hollandi, en starfar nú
hjá Sjónvarpinu.
LESBOK MetWWNBtrAÐSINS 24,'DESEMBER 1985 3