Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Blaðsíða 31

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Blaðsíða 31
U R M I N U H O R N 1 Þess minnist ég frá barna- og unglingaskólaárum mínum hve við krakkarnir áttum misjafnlega létt eða óhægt með að skrifa stíla, oftast um tiltekið efni. Sttindum bjuggum við til sögur, það þótti kennaranum skemmtileg til- breytni og gaf okkur kannski stórt rautt ge undir. Aðrir nöguðu pennaskaftið og skrifuðu loks ein- hverja vitleysu. Þetta var á blek- tímunum. Fyrir kom að einn stíllinn var lesinn fyrir bekkinn. Einn kennari lét þau ummæli fréttast eftir sér um eina jafnöldru mína, að þarna væri líklega rit- það til siðs hjá okkur, á meðan saltkjöt entist, að setja einn kjöt- bita í pottinn til að fá bragð. Potturinn var stór og úr honum entist í marga daga, ef aðeins var bætt vatni í daglega, smátætlur af kjötinu voru þá eins og happ- drættisvinningar. Beinin lágu svo kannski í vikulok á botninum nakin. En ég var að segja frá öðru. Þessi stúlka, sem skrifaði góða stílinn, hafði þegar þarna var komið sögu, lengi lagt í einelt i einn skólabróður okkar. Hann var dáiít- ið eldri en við, greindur strákur kominn. Þetta var fermingarárið hennar. ^ En varð stúlkan svo rithöfundur, eins og kennarinn hélt að hún gæti orðið. Ekki er nafn hennar á slíkri skrá, en hún gæti hafa ritað undir dulnefni. Ég veit að hún fór ung að heiman í kaupavinnu, kom ófrísk til baka, fluttist síðan í fjarlægt hérað og varð bóndakona. Meira veit ég ekki. Við vinirnir hlutum unglinga- skólamenntun. Hann langaði tii að verða íþróttakennari, en skóla- stjórinn þar, sem vissi að hann aðhylltist það sem þá var kallað Fermingarárið hennar höfundarefni á ferð. Hún var elsta dóttir í stórum barnahópi. Móðir hennar var áreiðanlega greindar- kona. Ég lék mér við þessi börn. Faðir þeirra sást eiginlega aldrei heima, oft í öðrum verstöðvum, vélamaður á bátum. Þarna var mikil fátækt. Einu sinni gleymdi ég mér í leik á heimilinu. Það var komið fram yfir .kvöldmatartíma. Þá segir konan: Má kannski bjóða þér vatnsgraut með hinum i>örn- unum? Ég leit á borðið. Þar voru nokkr- ir hafragrautardiskar og rúg- brauðssneiðar smurðar með marg- aríni. Engin mjólk. Ég skammaðist mín og flýtti mér heim. Þar var kvöldmaturinn raunar líkur þessu. Við bjuggum líka við mjólkurleysi, en oftast fékk ég fiskafgang frá hádeginu, jafnvel kartöflur og flot, stundum harðfiskbita og smjörlíki. Og þar var grauturinn aldrei kall- aður vatnsgrautur. Hann var raunar alvegeins í öllum kotunum, nema kannski misjafnlega þykkur. Mér þótti hann betri, ef hann hafði óvart brunnið við, og skófir voru hnossgæti. Yfir háveturinn var og snotur, var einstaklega snurfus- aður í klæðaburði og mikill snyrti- maður. Aldrei sá á honum blett eða hrukku, þó var hann enginn eftirbátur okkar hinna strákanna í íþróttum eða tuski, heldur fremri. Hann var óvenjugóður í leikfimi og hetja á skíðum. Hann var leik- félagi minn og vinur. Einu sinni vorum við nokkrir krakkar í berjamó. Þarna var ekki sérstaklega gott land til þeirra hluta, þurfti yfir móa og skriður að fara. En ef vel var leitað var hægt að finna ber á ólíklegustu stöðum. Við urðum því að vera mjög dreift. Stelpan, sem ég hef verið að tala um, var með í hópn- um. Allt í einu kemur hún til vinar míns og lítur í boxið hans. Þar voru nokkur krækiber. Hún kom við ílátið með öðrum fæti svo það valt. Veistu ekki hvar bláberin eru, maður? sagði hún. Auðvitað fauk í vin minn og það hófst eltingaleikur, sem endaði í einni lautinni. Heimkominn spurði hann mig. Hvað heldurðu að hún hafi viljað? Það vissum við auðvit- að báðir, en hans tími var ekki „óþjóðhollar róttækar skoðanir", neitaði honum um skólavist. Þetta var á kreppuárum. Vinur minn neyddist til að læra iðn, sem hann hafði andúð á, vegna þess hve sóða- leg hún var. Hann þurfti að sjá fyrir sér og móður sinni, og aðrar iðngreinar lokaðar. Við höfðum gott samband, uns hann dó úr krabbameini fyrir aldur fram, ógiftur og barnlaus. Þess ber að geta að vinur minn var enginn kvenhatari. Hann hafði margt í fari sínu, sem konur sótt- ust eftir. Hann var alla tíð að velta því fyrir sér hvers vegna stúlkur segðu og gerðu þetta og hitt. Hann naut þess, sem þær höfðu honum best að bjóða, en lét ekki ánetjast. Hann sagði, að margar konur vildu ráða yfir karlmönnum, en slíka karla gætu þær hvorki elskað éða virt. A sköpunarverki karls og konu er aðeins einn aðalmunur, og þær þeirra, sem hafa vit og skap til að nota sér þann mikla og góða mun, geta ráðið því í heim- inuni sem þær vilja, sagði hann. Og margar þeirra hefðu líka gert það. Jón úr Vör ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR Ljóðið sem hljóp Skáldið efaðist um stöðu ljóðsins og fór á fund og þá var ljóðið á fundi og mörg ljóð saman og ljóðið var í setningum og spurningum og ljóðið reis upp frá dauðum án þess að hafa dáið eða á þetta að vera brandari huxaði ljóðið og var á hraðbergi í bjargsigi og skáldið tíndi egg úr bjarginu og inní eggjunum voru orð og skáldið saup hveljur úr eggjunum og ljóðið fór á sópi um skýin og fór á fundinn og ljóðið hafði tyllt sér niður til að hlæja í setn- ingu að spurningu og svo var fundarhlé og ljóðin sveifluðu sér í ljósakrónun- um og voru allsgáð og létu sig detta oní rauðvínsglösin og urðu að röfli um sig og ljóðið sötraði gegnum bleikt nástrá vínið og lét sig fljóta á klaka í hafinu í glasinu og þið eruð öll vinstrisinnaðir hommar þusaði ljóðið spakt og mikið með sig og orðið fraus og menn þóttust ekkert hafa heyrt og ljóðið skrapp skælbrosandi í felur og ég er hafið yfir dægurþras sagði ljóðið og fór á bömmer oní stráinu sem varð einsog ljóð í laginu eða er ég kannski al- þjóðlegur tjáningarmiðill heyrðist úr stráinu eða er ég kannski skáldsaga eða er ég pönktíska eða málverk eða vídeógjörningur eða innrímuð hring- henda eða mótorhjól eða fundur eða kvikmynd er ég kannski sonnetta eða langt eða stutt eða áróður eða innblásinn andi eða er ég kannski prósi er ég kannski rímaður prósi hvæsti ljóðið og öslaði á svörtum sjálflýsandi gúmmí- stígvélum gegnum skáldlega rigningu og komst í þunga þanka og skvetti ljóðs- lega úr drullupollunum og ljóðið vissi að það var engin spurning það varð að vera spurning eða á ég kannski að finnast í skilgreiningu svo skáldin geti fundið sig þessir vesalingar og rigningin varð skáldlegri við enda götunn- ar og ljóðið sá eftir mjóum ketti sem hvarf inní næsta húsagarð og ég er engin spurning hvíslaði ljóðið og skimaði upp tírætt bjargið ég er ljóðið sagði ljóðið er ljóð og tiplaði nakið inní lokaorðin á fundinum á ballettskóm og ljóðið gekk berfætt af fundinum og bað ballettskóna að fylgja sér eftir sátu skáldin Ijóðlaus en ljóðið fór flissandi burt hvítir ballettskór sáust hvatvísir klífa bjargið við verðum að halda annan fund sögðu skáldin ljóðrænulaus og athuga þetta með stöðu ljóðsins bættu bókmenntafræðingarnir hjálpfúsir við. (en) ljóðið fór á ljóshraða nakið á gulum skóm með kafaragleraugu og gregor- íanska tónlist í vasadiskóinu sínu og fallhlíf í hinum vasanum fór þangað sem því sýndist að gera það sem því sýndist... ... það ætti að banna mig það ætti að banna mig söng ljóðið hástöfum. Ellsabet Jökulsdóttir (Jakobssonar) er ung Reykjavlkurkona og hafa Ijóö eftir hana oft birzt I Lesbók. GUÐMUNDUR L. FRIÐFINNSSON Veiðin Sífellt hann situr á kletti ogrýnir ídjúpið kuflmaður kaldur á höndum ryðguðum öngli rennir ogkeipar stjörn urog ský og blámi leika við öngul Stjörnur ogský og blámi leika við svarlaust djúp. INGIMAR ERLENDUR SIGURÐSSON Væða Fyrr en ljósin fæða fram úr stíg ég hryggur; draumkennd dropaslæða dalnum yfir liggur verður þessi væða vegur minn á engi? inn til himinhæða helst. í dögg éggengi. Ljósaskipti Hve óljós tengsl á milli lífs ogljóðs, miglemstra andstæð sjónarmið til blóðs hve örðugleið á milliguðs ogmanns, égmerst íljósa skiptum mín oghans á gálga ills oggóðs gjöf er lausnarans. Framköllun Þó filma myrk sé maður hver, guð mynd við sól afþverjum tók; þá felumynd hver fluglæs sér, sem flettir upp íljóssins bók þar krossins guð viðgeislumjók. e' c. t F- LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 24. DESEMBER 1985 31

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.