Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Blaðsíða 5
Lágmynd af borvaldi Skúlasyni eftir Pál Guðmundsson. Allar myndirnar af listaverkunum tók Friðþjófur Helga- son. Fjörufuglar — eftir Sigurjón Ólafsson. Hæðl32sm. sjónamaður og vildi hlut Islands mikinn." Sverrir: „Næst kynntumst við þeim Þor- valdi og Scheving, en Sigurjóni ekki fyrr en síðar. Þótt þeir væru ólíkir Þorvaldur og Scheving, báru þeir mikla virðingu hvor fyrir öðrum og það er ómetanlegt að hafa átt aðra eins menn að vinurn." Ingibjörg: „Reyndar kynntumst við Jóni Þorleifssyni áður. Hann var þá, upp úr 1931, að byggja Blátún við Kaplaskjólsveg og þangað komum við oft. Jón var líka eftirminnilegur, kurteis og hlédrægur." Sverrir: „Það er rétt, en hann gat samt tekið duglega í lurginn á kollegum sínum, þegar hann skrifaði gagnrýni í Morgun- blaðið undir dulnefninu Orri. Þá þótti hann fremur illskeyttur." Ingibjörg: „Jón var einn af þeim sem - alveg lifðu á list sinni. En það var líka oft þröngt í búi hjá þeim hjónum. Sverrir: „Ég reyndi eftir mætti að stuðla að því, að myndir væru keyptar af Jóni, til dæmis í afmælisgjafir. En það er merki- legt, hvað margir listamenn voru starfandi þarna í kreppunni, gerðu ekkert annað og lifðu einhvernveginn. Ingibjörg: „Á kreppuárunum var næst- um enginn grundvöllur fyrir starfandi listamenn og þaðan af síður var von til þess að þeir gætu framfleytt fjölskyldu. Bæði Þorvaldur og Scheving komu hingað með danskar konur, en uppúr þeirri sam- búð slitnaði hjá báðum og trúlega af þess- ari ástæðu. Þorvaldur var tíður og kær- kominn gestur hér og oft var setið og rætt um vegi listarinnar framá nótt. Sama var um Scheving; hann kom oftast í hverri viku og við vorum í svo merkilegu, huglægu sambandi, að ég vissi yfirleitt þegar hann var á leiðinni. Á sama hátt fékk hann öruggt hugboð, þegar við vorum á leið til hans. Þótt hann væri mikið einsamall, átti hann marga góða vini og hafði yndi af því að hitta fólk og gleðjast með öðrum. Einu sinni sungum við saman uppúr heilli vasa- söngbók og kunnum flestöll lögin og mjög marga texta einnig. Þessu hafði Scheving gaman af.“ Sverrir: „Við kynntumst Þorvaldi fyrir Innan hríngSÍnS - eftir Helga Gíslason. Hæð 62 sm. Trúarbrögðin — eftir Ásmund Sveinsson. Hæð 90 sm. var að sjálfsögðu ekki steypt vegna þess að á því væri sérstök nauðsyn. Fyrst og fremst var það formræn tilraun, sem Ás- mundi hefur þótt heillandi. Kúlan var byggð ofan á íbúðina og Ásmundur notaði hana til þess að vinna að frummyndum í leir. En hún var alveg óupphituð framanaf, þartil við settum ofninn í ganginn." Ingibjörg: „Ásmundur var afskaplega lifandi maður og frjór í hugsun. Hann hafði áhuga á öllu sem hrærðist í námunda við hann og vissulega hefði hann getað efnast, ef hann hefði viljað selja verk sín úr landi. En það kom ekki til mála. Einu sinni kom til hans hópur Ameríkana og þar á meðal var einn, sem vildi kaupa allt safnið og flytja það þá utan með sér. Ás- mundur sagði aðeins: „Ef þið viljið endilega eyða peningum í list, þá skulið þið bara byggja listasafn yfir þessi verk hérna." En á því var víst ekki áhugi og Ásmundur sagði síðar við okkur: „Af hverju má þessi litla þjóð ekki eiga neitt?" Hann var hug- milligöngu Theodórs læknis, sem var bróð- ir hans. Fyrstu kynni okkar urðu norður í Steingrímsfirði; þar vorum við Theódór að veiða í Selá og hann bauð bróður sínum með í ferðina. En Þorvaldur hafði ekki minnsta áhuga á veiðiskap og bar varla við að renna í ána. Við bjuggum þarna í eyðibýli, sem við nefndum „Bindindishöll- ina“. Þetta var árið 1947 og kannski ekki undarlegt, að Þorvaldur hefði hugann við annað en veiði, því hann stóð þá á merkileg- um tímamótum, — var að stokka upp spil- in, ýfirgefa sitt fígúratífa málverk og byrjaður alvarlega að þreifa fyrir sér í abstraktinu. Þarna hófst kunningsskapur og vinátta, sem stóð þar til Þorvaldur féll frá í fyrra og ég get alveg tekið undir það, sem Ingi- björg sagði hér fyrr: Það er mikið tómarúm eftir þessa menn. Við eignuðumst fyrstu myndirnar eftir Þorvald 1950, þær voru tvær og báðar óhlutlægar. Fljótlega urðu Parið — eftir Guðmund Benediktsson. hæð 135 sm. mundi, sagði ég honum þessa sögu. Hann kvað ekki gott í efni; mótin af þessari mynd væru víst týnd. Svo var það nokkuð löngu síðar að mótin komu í leitirnar. Eitt sinn er við litum inn til Ásmundar og Ingrid, konu hans, benti Ásmundur á konumynd á gólfinu og sagði: „Þarna er hún myndin þín, ég fann mótin." Síðan hef ég haft hana daglega fyrir augunum: Hérna er hún.“ Sverrir: „Við heimsóttum þau Ásmund og Ingrid oft og eins komu þau til okkar. Það voru einstaklega ánægjuleg kynni. Ásmundur fékk mjög lítinn stuðning og vann sjálfur að mestu í því að koma upp húsinu við Sigtún. Hann vann þá mikið við verk sín, var erfiðismaður og bar þess merki. Eitthvað var hann þá farinn að gera afsteypur og það var einna helzt að hann seldi eitthvað af þeim, en það var alltaf í fremur litlum mæli, enda var hann ófáanlegur til þess að gera nema fáar afsteypur af hverri mynd.“ Ingibjörg: „Hendurnar á Ásmundi voru svo bláar af kulda vegna þess að vinnustof- an hans var alveg óupphituð. Sverrir lét hann þá hafa stóran ofn í vinnustofuna og annan ofn í ganginn, svo hiti bærist upp í kúluna og hitablásara fékk hann einnig til þess að gera upphitunina virkari. Ofnarnir standa ennþá á sínum stað. Það var kunningi okkar, Kristinn Guð- jónsson í Stálumbúðum, sem varð til þess að við hittum Ásmund. Það er verulegt tómarúm, þegar þeir eru horfnir af sjónar- sviðinu þessir menn, sem við þekktum svo vel, Ásmundur og ekki sízt Þorvaldur." Sverrir: „Fyrsta myndin, sem við eign- uðumst eftir Ásmund, var líklega afsteypa af Bakkusi, síðan konan með strokkinn og konumynd, sem heitir „í fjötrum". Árið 1941 fór Ásmundur að byggja kúluna við Sigtún. Þeir unnu saman að þeirri bygg- ingu, Ásmundur og Hallsteinn bróðir hans; báðir völundar í höndunum. Þeir bjuggu sjálfir til steypumótin fyrir kúluna og mér skilst að vinnubrögðin hafi eiginlega verið á móti öllum lögmálum í arkitektúr á þeim tíma. En það heppnaðist ágætlega. Kúlan LESBOK MORGUNBLAÐSINS 24. DESEMBER 1985 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.