Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Blaðsíða 37

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Blaðsíða 37
Skjöldungar í heimsókn. Vngir Skjöldungar. Við laxveiðar, sem voru eitt megin viðfangsefnið. okkar til hliðar að sinni og var þá talað um, að við hefðum stofnað villimannafélag. Skeggbroddarnir reyndust vissulega til bóta, en ástandið var nógu slæmt samt. Ég var t.d. allur útsteyptur á enninu, hálsin- um, eyrunum og á höndunum. Jafnvel þykkir ullarsokkar nægðu ekki til að verja fæturnar. Við 1 villimannafélaginu fórum einkar sparlega með vatn og hlutum fyrir það lof hjá skipstjóranum, því að vatnsbirgðir okkar voru af skornum skammti. Reyndar var ég a.m.k. yfirleitt Svo útmakaður af græðandi koppafeiti, að hvorki vatn né sápa áttu neitt erindi til mín. Síðar verður drepið á afdrif villimannafélagsins. LÍNUVEIÐAR Landslagi er þannig háttað í Skjöldungs- firðinum, að fjöll ganga yfirleitt snarbrött í sjó fram og halda síðan áfram neðan yfirborðs. í þverskurði er fjörðurinn því V-laga án þess að nein setlög séu, þar sem dýpst er. Við þessar aðstæður var þess enginn kostur að koma niður trolli. Eg hafði mikinn áhuga á að leggja þorsk- gildruna, sem var alfarið á vegum Krist- jáns eins og áður sagði. Að höfðu samráði við Skjöldungana tók Kristján þá ákvörðun að setja gildruna ekki í sjó, enda talið að ekki væri þorskur í firðinum og aðstæður til að leggja gildruna heldur ekki góðar. Það frétttum við svo af fiskveiðum þeirra Skjöldunga fyrir utan lax, að einn sá iðn- asti þeirra, Harald að nafni hefði reynt fyrir sér með handfærum í 3 vikur og aðeins fengið einn kola, sennilega skráp- flúru. Ekki boðaði þetta góðar fréttir fyrir okkur en til að afla nánari upplýsinga um veiðimöguleika áttum við um fátt annað að ræða en leggja línu. Á tímabilinu 19.-25. 8. lögðum við línuna 5 sinnum allt frá Laxnesi og nokkuð út fyrir fjörðinn. Ekki vorum við með nema 12 lóðir, enda aðstæð- ur um borð ekki sem bestar til að stunda línuveiðar. Aflinn var allt frá engu upp í 60 kg, sem svarar til tæplega tonns miðað við fulla línulengd á íslandi. Langmest bar á hlýra og grálúðu en ofurlítið sást af karfa og keilu en engan sáum við þorskinn. Einn hákarlsræfill hafði líka lag á því að flækja sporðinum utan um línuna. Aflann gáfum við Skjöldungunum jafnharðan og kunnu þeir vel að meta og tóku hlýra og grálúðu fram yfir eilífan lax. Við höfðum bæði síld og smokk í beitu og þeir Indriði, Steini, Gísli og Sólmundur voru ávallt í beitningunni og Snorri og Grænlendingarnir stundum. Guðmundur bátsmaður hafði jafnan nóg annað að sýsla á meðan beitt var, enda vorum við vel mannaðir í beitningunni. Hitastig sjávar var annars á þann hátt vorið í Skjöldungsfirði, að yfirborðshitinn var um 5° en síðan snarkólnaði og þegar komið var niður á 40 faðma var hitastigið komið niður fyrir frostmark en fór aftur upp í plús á 100 föðmum og fór svo fljótlega upp í 2° og hélst svo allt til botns. Það má geta þess, að við reyndum af og til fyrir okkur með handfærum en jafnan án árangurs. MeiraUm Lax Það er væntanlega orðið ljóst, að lítið var að hafa við Skjöldunginn nema lax. Laxinn heldur sig í yfirborðslögunum, þar sem sjórinn er tiltölulega hlýr og er, eins og lög gera ráð fyrir, í ætisleit. Einkum bar mikið á ískóði í maganum en lítið eitt af smáloðnu. Mun meira bar á hrygnum í aflanum og voru þær um 70%, hvað sem því kann að valda. Grænlendingarnir segja, að best veiðist, þegar sólin skín, því að þá blindist laxinn og sjái þá síður netin. Fyrir kom, að við fórum eikki aðeins í netin á morgnana heldur líka á kvöldin en þá var sjaldnast afli að ráði, svo að mér virtist netin einkum veiða að nóttunni. í október er laxinn genginn innst inn í fjörð en þá er fjörðinn farið að leggja. Einn góðan veðurdag hverfur iaxinn svo gjörsamlega og er því væntanlega í úthafinu yfir vetur- inn. Útbúnaður okkar til laxveiða var ekki mikill að vöxtum, eins og áður hefur verið tekið fram. Við vorum aðeins með 7 net sem hægt var að kalla laxanet, þ.e. 5 tommu net, og þess utan fengum við 2 net frá Kristjáni með ívið stærri riðli sennilega 514 tommu. Þau net voru 60 m löng en okkar net aðeins 35 m. Þar að auki vorum við með nokkur 5 tommu net í laxinum og reyndar komust nokkur 6 tommu net einnig í gagnið. Annars voru 6 tommu netin ætluð fyrir þorsk en okkur lék forvitni á að vita, hvort til væri svo stór lax á svæðinu, að hann fengist í svo stóran riðil. Ekki var hægt að nota þorskanetin óbreytt, því að þau sökkva, eins og þorskanetum ber. í stað þess að dandalast lengi með aukaflot á þessum netum, voru þau felld upp á þann hátt, að aðeins einn þáttur af blýtóginn var notaður að neðan. Slík net voru kölluð Gvendar eftir þeim, er felldi. Eftir að við höfðum fengið 55 laxa að morgni þess 20. 8. fór heldur að draga úr aflabrögðum. Við drógum nokkur net að kvöldi sama dags og fengum þá aðeins 10 laxa. Þann 21. 8. drógum við 12 net og fengum við aðeins 10 fiska. Þá bar svo við, að skýjað var aldrei þessu vant. Þetta rennir stoðum undir þá kenningu Græn- lendinganna, að verr veiðist, þegar sólin er í feluleik. Þess ber þó að geta, að 6 net voru illa staðsett og öll hálfóklár vegna strauma. En 6 net höfðum við á aflasælasta staðnum okkar, Vatnsvíkinni og þau gáfu óvenju lítið eða aðeins 10 fiska. Þann 21. ágúst fengum við 27 fiska í 16 net, þar af voru 15 fiskar i 4 net í Vatnsvíkinni og þann 22. ágúst fengum við 39 laxa í 16 net, þar af 31 lax úr 6 netum í Vatnsvík- inni. Hin netin voru hinum megin fjarðar- ins við Stórkoddavík og þar í grennd. Heildarlaxafjöldinn var nú kominn upp í 154 fiska. STÓRKODDAVÍK Þetta merkilega nafn er svolítið öðruvísi á kortum eða Stærkodders Vig. Svo kyn- lega vildi til, að ég var um þessar mundir að lesa bókina „Jónas Hallgrímsson og Fjölnir" eftir Vilhjálm Þ. Gíslason og þar bar Stærkodder á góma og skilst mér, að þar hafi verið ,um sænskan víking að ræða. Eðlilegt hefði því verið að tala um Oddsvík sterka en það þótti okkur óþjálft og í létt- um anda varð því Stórkoddanaf nið ofaná. Töluverður foss steyptist í Stórkoddavík- ina og þótti okkur þetta allfiskileg slóð. Lögðum við net sitt hvoru megin við foss- inn, einn Gvendur var utan við fossinn en ein þriggja neta trossa af 4 tommu netum innan við hann. Þessi net voru þarna í 3 sólarhringa og gaf Gvendurinn 2 laxa á dag en trossan alls 13 laxa og fengust allir nema einn í það net sem fjærst var landi og skaut þá upp þeirri hugmynd í kolli mér, að það væri ekki endilega víst, að best væri að vera með laxanetin upp í harða landi. Annars fór ég í land við Stórkoddafoss- inn ásamt Grænlendingnum og Steina Jóns. Steini var með veiðstöng og reyndi bæði uppi i ánni og í sjónum fram af fossin- um en án árangurs. Þarna í grendinni voru sérkennilegar grjóthrúgur, sem reyndust vera aflagðar refagildrur. Veiðiaðferðin mun byggjast á því, að refurinn verður innlyksa. Laxnes Við vorum sífellt að fikra okkur innar eftir firðinum og þann 23. ágúst lögðum við nokkur net við nes, sem við kölluðum Laxnes vegna væntanlegs afla. Það var þó með harðindum, að þetta væri réttnefni, þar sem við fengum aðeins einn lax á þessum slóðum. Eftir að við höfðum komið netunum í sjó, fórum við í land á meðan þeir Drafnverjar drógu línuna. Sagan hermir, að á Laxnesi hafi komið til átaka milli heimamanna og Norðmanna árið 1938. Mun hafa verið skipst á skotum og óstaðfestar sögur herma, að mannfall hafi orðið. Eftir þennan atburð eiga Norðmenn svo að hafa dregið sig brott af svæðinu. Á Laxnesi fundum við vörðu og nokkrar grjóthrúgur, sem notaðar voru til að fergja kjöt og verja það fyrir hundum og öðrum rándýrum. Einnig fundum við leyfar af tjaldstæði og gamlar rústir, sem vinir mínir Grænlendingarnir vildu meina að væru eftir norræna menn og Mikki nefndi Eirík rauða í þessu sambandi. Þessu mót- mælti ég alfarið. Einnig fundum við rústir veiðikofa og leitaði ég þar að minjum. Fann ég dauðan steindepil, snifsi úr hand- klæði og hálfbrunninn bút úr krossviðar- plötu. Þar skammt frá fann ég svo grisju og poka undan skonroki og dálítið af skelja- brotum úr kræklingi. Mun þarna vera án- ingarstaður innfæddra og berjaland, þegar vel árar. Tjörn var þarna líka og synti þar lómur með tvo unga og var einkar spakur. Á meðan þessu fór fram hafði línan verið dregin með þeim einstaka árangri, að enginn fiskur fékkst á 1200 króka. Framhald í næstu Lesbók Höfundur er fiskifræðingur og starfar hjá Haf- rannsóknastofnun. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 24. DESEMBER 1985 37

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.