Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Blaðsíða 6
Systurnar - útskurður eftir Kurt Zier. Hér sést í heild — og til vinstri að hluta — eitt af þremur spjöldum, sem upphaf lega voru á hurðum. Á einni þeirra er myndefnið úr Njálu, á annarri úr Gunnlaugs sögu ormstungu og á þeirri þriðjuerfantasía. Graníthöggmynd eftir John Rud. 125x57 sm. þær fleiri og þróaðist síðan þannig, að við fórum að safna myndum eftir hann.“ Ingibjörg: „Við áttum þá nokkrar mynd- ir fyrir, til dæmis málverk eftir Jón Þor- leifsson og á sýningu sem Kjarval hélt í stríðsbyrjun í Iþróttahúsi Jóns Þorsteins- sonar, keypti Sverrir þrjár myndir. Þar á meðal var Þingvallamynd, sem heitir „Snjólaus vetur“ og hefur oftar en einu sinni sést á sýningum." Sverrir: Það var samt ekki fyrr en við kynntumst Þorvaldi, að úr þessu varð söfn- un. En hún hlóð utan á sig: Samtals eignuð- umst við 220 verk eftir Þorvald." Ingibjörg: „Með tímanum höfum við fengiö vaxandi áhuga á skúlptúr. Við kynntumst Sigurjóni síðasta áratuginn, sem hann lifði, og úr því varð góður kunn- ingsskapur." Sverrir: „Hér í húsinu eru þrjár myndir Sigurjóns, sem við eignuðumst: „Svanir", sem er þrjátíu ára og unnin í tré, „Fjöru- fuglar“, unnin í tré og málm, og sú þriðja heitir „Boginn“ og er unnin í brons. Eftir Ásmund eigum við aftur á móti 10 myndir. Báðir voru þessir myndhöggvarar frábærir listamenn, en mikið voru þeir ólíkir." Ingibjörg: „Þar að auki eigum við eina mynd eftir Gerði, eina eftir Guðmund Benediktsson, eina eftir Helga Gíslason, fjórar eftir Hallstein Sigurðssont sem er eins og margir vita bróðursonur Ásmund- ar, og lágmynd af Þorvaldi Skúlasyni eftir Pál Guðmundsson frá Húsafelli. Við vorum búin að minnast á mynd eftir Ragnhildi Stefánsdóttur, sem nú er í Heilsugæslu- stöðinni hér á Nesinu og þá er eftir að geta um tvær höggmyndir sem við eigum eftir danska myndhöggvarann John Rud og voru á sýningu hans við Norræna húsið. Eitt af þeim verkum stendur þar áfram." Sverrir: „Það er auðvitað eðlilegt að ein- hver álykti sem svo, að eitthvað hafi þetta alltsaman kostað. Rétt er það að vísu, að eitthvað kostar það. En það mætti kannski geta þess um leið, að við höfum aðeins einu sinni á ævinni farið í sólarlandaferð og í annað skipti fórum við gagngert til Hol- lands til þess að skoða söfn. Það eru nú allar lystireisurnar. Þessi eina'sólarferð var farin til Kanaríeyja og mikið leiddist mér aðgerðarleysið. Það er víst ekki á dagskrá að fara aftur. Sumir eyða öllum lausum aurum í sólarlandaferðir og hnatt- reisur. Við höfum aftur á móti varið fjár- munum til listaverkakaupa. Það verður víst hver að fljúga eins og hann er fiðrað- ur.“ Ingibjörg: „Líklega má segja, að mynd- listin sé okkur ástríða. Bæði yndi og ástríða. En ekki sú eina. Annað viðfangs- Hreyfing — eftir Gerði Helgadóttur. 60x65 sm. efni og ástríða kannski einnig er skógrækt- in við sumarbústaðinn hjá Hafravatni. Þar höfum við plantað út trjám í nokkra hekt- ara síðastliðin 25 ár, tekið fræið sjálf, alið upp plönturnar og plantað þeim út þegar þær hafa vöxt til þess. Þetta er óendanlegt verkefni, en um leið hefur staðurinn verið okkar annað heimili. Að vinnudegi loknum fór Sverrir oft beina leið upp að Hafravatni og þar tók við annar vinnudagur framá harðakvöld. En árangurinn er líka fallegur og hann sýnir, hvernig þetta land okkar gæti litið út.“ Sverrir: „Það er rétt, að þetta er óendan- legt og skemmtilegt verkefni. Nú er ég stöðugt að grisja, því það er orðið nauðsyn- legt, og það er mikið verk að bera tilbúinn áburð á allt svæðið eins og við gerum nú. En það yrði efni í annað samtal, ef við hættum okkur frekar út í þessa sálma. Við vorum að tala um ástríðuna og hvað þessi sérstaka ástríða að safna listaverkum er skemmtileg. Sumir safna bókum eða frí- merkjum; það getur orðið ástríða líka og menn eyða öllu sínu í það.“ Ingibjörg: „Við höfum reynt að fylgjast með á myndlistarsviðinu og það verður að segjast eins og er, að maður verður alveg veikur, þegar eitthvað sem þykir verulega gott ber fyrir augu. Svo er nauðsynlegt að gefa gaum að þeim ungu, því þar er fram- tíðin.“ Sverrir: „Ég reyni að fylgjast með þeim ungu sem ég hefi áhuga á eftir rnætti." Ingibjörg: „Við höfum þann háttinn á, þegar við förum á sýningar, að við skiljum í dyrunum og höldum sína leiðina hvort, þegar inn er komið á sýninguna. Við skoð- um myndir sjaldan saman. En á eftir berum við saman bækur okkar og ótrúlega oft erum við sammála, — enda búin að vera saman í 53 ár.“ GÍSU SlGURÐSSON 6

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.