Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Síða 24
-4
EFTIRINDRIÐA G.
ÞORSTEINSSON
Byggöir
ívomum
Löngu áður en heimildir geta mannabyggðar
í landinu runnu hraun yfir sléttlendið milli
Ölfusár og Þjórsár allt til sjávar og hlóðu
þannig upp þá „holu skurn“, sem nú stendur
undir fallegasta búskaparlandi sunnan heiða,
Sagt var að menn væru í
vomum, þegar þeir biðu
sjóklæddir eftir gæftum.
Slík bið var algeng á
Eyrarbakka og Stokkseyri
fyrr meir. Nú er hliðstætt
ástand í þessum byggðum,
sem kaupmenn, formenn,
draugar og listamenn hafa
verið kenndir við. Enn
þvær brimið hin skreipu
sker úti fyrir og líklegast
að menn verði í vomum á
hinni hafnlausu strönd þar
til brúin kemur í
Óseyrarnesi.
Ljósmyndir: Páll Stefánsson.
og má raunar furðu gegna að þar skuli
ekki allt land vera orðið að einu samfelldu
túni með bláleitri puntstangamóðu svo
langt sem augað eygir. Fyrir landi sér í
gamla hraunið, undirstöðuna miklu, en á
landbrún standa Eyrarbakki og Stokks-
eyri, nær hafnlausir staðir, enda er hvergi
að finna fögur lægi til hafnargerðar. Hins
vegar eru þessir staðir ekki ófrægir sem
skipalægi einkum meðan skip voru grunn-
sigldari og notast mátti við ósa og vik, svo
sem Ölfusárósa, til athafna og affermingar
á skipum. Suðurundan liggur víðáttumikið
Atlantshafið beint til Suðurskautsins um
seytján þúsund kílómetra veg rúman.
Hið óbrotna og heila haf fellur stríðiega
á hraunkantinum nokkru áður en landi er
náð svo brimskaflarnir mynda hvíta og
nær óslitna línu fyrir löndum Stokkseyrar
og Eyrarbakka, og sverfa án afláts
hraunnibbur og stróka, sem rísa af hafs-
botni og ristu sundur byrðinga báta ef
nokkuð bar af leið við innsiglingar. í brimi
skerjagarðsins urðu stöðugar mannfórnir
til dagsins í gær. Engu að síður kom sigling
að þessari strönd allt fram undir síðustu
aldamót. Og á gullöld íslendinga, tíma
þjóðveldis, geta heimildir um Eyrar, helsta
viðskipta- og brottfararstað Sunnlendinga,
jafn þýðingarmikinn og Hvítá í Borgarfirði
og Gásir við Eyjafjörð. Frá Eyrum sigldu
íslenskir höfðingjar á konungsfund í Nor-
egi, eða að þaðan var lagt upp í yfirbótar-
göngur til Rómar. Nútímamaðurinn heyrir
þyt frá seglum hvenær sem minnst er á
Eyrar í fornum sögum, en svo nefndist
svæðið allt milli Þjórsár og Ölfusár. Þaðan
hélt Gissur Þorvaldsson á fund við Hákon
konung, þegar Snorra Sturlusyni voru ráð-
in banaráð. Og frá Eyrum hélt Bjarni
Herjólfsson í fræknustu siglingu fslend-
inga á fyrri öldum og linnti ekki fyrr en
hann tók land í Vesturheimi. Og við þessa
strönd kynntist Páll ísólfsson fyrst þeim
rammaslag, sem síðar minnti hann á Beet-
hoven.
Enn þvær brimið þangvaxin og lúð sker
við ströndina og enn er bátum flotað á
kyrrum sjó innan við þau. En allt er það
með öðrum róm en fyrrum, og annað og
nútímalegra líf hefur fest rætur á sandöld-
unni upp af fjörunni þar sem áður fluttu
knerrir fyrir landi. Á Eyrum hafa risið tvö
þorp, runnin upp úr hinum gamla Stokks-
eyrarhreppi. Hafnarvandamálin eru þau
sömu og áður, þegar þau settu ugg í brjóst
skipstj órnarmanna einokunarverslunar-
innar dönsku. Og enn syngur brimið harm-
ljóð sín yfir þeim, sem íéllu í lífsbaráttunni
miðri í sundum og á skerjum útróðrarstað-
anna, sem urðu einna mannflestir á nítj-
ándu öldinni, en muna nú fífil sinn fegurri
vegna breyttra hátta og annarra krafna
um sjósókn og samgöngur. Stokkseyrar-
hreppnum gamla var skipt 18. maí 1887
og skilur Hraunsáin á milli Eyrarbakka
og Stokkseyrar. Eyrarbakki stendur nú á
landi tveggja jarða, Háeyrar og Skúms-
staða. Vestur við Ölfusárósinn er gamla
ferjunesið, sem einhverntíma á langri sögu
fékk nafnið Óseyrarnes. Þarna var fyrrum
annasamur ferjustaður og á því svæði sem
ferjan var vilja byggðirnar fá brú yfir
Ölfusá. Við þá brú myndu Eyrar taka upp
forna reisn sína að hluta og eflaust að nýju
að þeim þrótti, sem einkenndi Stokkseyri
og Eyrarbakka áður en verslunin fluttist
burtu vegna brúar á Ölfusá við Selfoss og
nýir hættir í útvegi gerðu báða staðina svo
gott sem hafnlausa. Með Ölfusárbrú við
Ferjunes hið forna mundi sjómönnum
notast af Þorlákshöfn, draumi Egils Thor-
arensen í Sigtúnum, en hún er í dag eina
Tiknræn mynd frá Eyrarbakka: Báturinn
kúrir i hrolfí viö sjógarðinn og byggðin
kúrir að baki.
nýtilega höfnin á Suðurlandi allt til Horna-
fjarðar.
Litlum sögum fer af Eyrum á miðöldum.
Þó var útræði stundað frá Einarshöfn og
Stokkseyri, en Einarshöfn var hið fyrra
heiti á Eyrarbakka, og Einarshafnarsund
kennt við hana. Um það sund sigldi Bjarni
Herjólfsson í upphafi Vesturheimsfarar.
Skálholtsstaður átti skip í förum og bjó
það til veturvistar á Stokkseyri. Og um
Einarshöfn kom kirkjuviður til Skálholts-
stóls allt fram til daga Brynjólfs biskups.
f jarðabókinni frá 1708 segir að þrjú til
fjögur skip rói frá Stokkeyri, en seint á
nítjándu öld gengu þaðan fimmtíu fjögurra
24
•+