Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Síða 34

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Síða 34
Frá Ikateq-sundi — kynjamyndir í þokunni. Ljóam. greinarhöf. A tilraunaveiðum við Austur-Grænland Síðla vetrar 1985 barst íslenska sjávarútvegs- ráðuneytinu sú ósk Grænlendinga, að Haf- rannsóknastofnunin tæki að sér að athuga fiskigengd og veiðimöguleika í Skjöldungs- firði. Þessi ósk á rætur sínar að rekja til EFTIR GUÐNA ÞORSTEINSSON FISKIFRÆÐING l.HLUTI þess, að atvinnuleysi er mikið í Ang- magssalikfirði, þar sem byggð er þéttust við Austur-Grænland og voru uppi hug- myndir um það að flytja fólk frá Ang- magssalik til Skjöldungsfjarðar, ef veiði- möguleikar þar gæfu tilefni til. Afgreiðsla þessa máls verður ekki rakin frekar að öðru leyti en því, að ákveðið var að hrinda þessu verkefni í framkvæmd. Ekki gafst langur tími til undirbúnings, en þar sem enginn lá á liði sínu voru landfestar leystar á áætluðum tíma þann 15. ágúst kl. 14. Leiðangursmenn voru eftirtaldir: Gunnar Jónsson skipstjóri; Indriði Jónsson, stýri- maður; Sigurður Sigurðsson, 1. vélstjóri; Snorri Hauksson, 2. vélstjóri; Heiðar Ragnarsson, bryti; Guðmundur Einarsson, bátsmaður; Sólmundur Einarsson, fiski- fræðingur; Gísli Ólafsson og Þorsteinn Jónsson, rannsóknamenn og Guðni Þor- steinsson, leiðangursstjóri. Hér var vissu- lega um einvalalið að ræða, enda veitti ekki af, því að um borð var fágætt samsafn veiðarfæra: fiskitroll, rækjutroll, fiskilína (lóð), haukalóð (lúðulína), handfæri, þorskanet, laxanet, silunganet, krabba- gildrur, hörpudiskplógur og veiðistengur. Ei:is og nærri má geta var hvorki um langar lóðir né mörg net að ræða, en nógu þröngt samt og aðstaða um borð til línu og netaveiða svo og til beitningar, ekki upp á það besta. Þess skal getið strax, að ógleggri mörk voru á milli áhafnar og rannsóknarliðs í þessum leiðangri en venjulegt er. Rannsóknaliðið var valið með hliðsjón af því að það kunni fleira fyrir sér um borð í skipi, en að kryfja fisk. HALDIÐÍVESTUR Fyrsti áfangi ferðarinnar var til Ang- magssalik, þar sem við áttum að ná í tvo Grænlendinga, sem taka áttu þátt í leið- angrinum og auk þess átti að auka þar við veiðarfærabirgðir okkar með stórri þorsk- gildru. Veðrið var ágætt á leiðinni og var tíminn notaður til að koma veiðarfærum og rannsóknardóti eins haganlega fyrir og kostur var. Ég hafði tekið með mér nokkrar bækur og bæklinga um sögu Grænlands og menn lögðu sig mjög í líma við að lesa þessi gögn á leiðinni. Áður en stigið verður í land í Angmagssalik er rétt að láta nokkra sögu- lega punkta fljóta með. Talið er, að Eskimóar hafi langtímum saman haft búsetu á Grænlandi í mörg Æðsta ráðið, skipstjóri og leiðangursstjórinn, sem jafnframt er höfundur greinarinnar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.