Lesbók Morgunblaðsins - 17.12.1990, Page 42
Þriggja súlna rakarastofur!
Og ég lauma mér út í iðandi
borgina, framhjá kínversku vinum
mínum sem vilja helst aka með
mig í hálftíma 5 mínútna göngu-
leið kannski ekki að undra því
umferðin er varasöm - og ýmis-
legt annað fyrir „viðkvæma" vest-
ræna konu. Eg er eins og frá
annarri plánetu innan um alla
dökkhærðu Kínveijana, en þeir
eru vanir vestrænum ferðamönn-
um og ég hverf í fjöldann. Skraut-
leg kínversk tákn yfir keimlíkum
háhýsum og erfitt að rekja sig
eftir kínverskum götunöfnum.
Eins gott að villast ekki hérna,
en margir tala ensku! - Rétt hjá
hóteli flæða kynlífstímarit út af
söluborði götusala - sérútgáfur
fyrir karlmenn í viðskiptaerind-
um, sem standa í biðröðum að ná
sér í lesefni fyrir kvöldið. Hér er
hugsað fyrir öllum þörfum (karla)
í viðskiptaerindum. - Gjarnan
barið á hóteldyr hjá einmana sál-
um. - Og margskonar rakarastof-
ur í gangi: 1 súla þýðir venjulegan
rakstur; 2 súlur: má snerta,' en
ekki meir; 3 súlur: allt leyfilegt!
Að drekka blóð úr
eitursnákum
Og ef „kynorkuna" vantar má
bregða sér niður í „snákahverfið"
- ómissandi hluta af gamla Kína,
sem Taiwan-búar fluttu með sér.
í „snákahverfinu" eru eitraðir
snákar í úrvali. - Bara að benda
á þann fjörugasta í búrinu sem
sölumaður fiskar upp og veifar í
kringum sig eins og kúreki með
slönguvað - ristir kviðinn eld-'
snöggt niður úr með rakvélarblaði
- lætur blóðið dijúpa í skál -
smáskvettu úr gallblöðru hrært
saman við - og „má ekki bjóða
þér“? Kínveijar dýrka eitraða
snáka. Blóð úr þeim ku gera karl-
mann að manni. - En með vest-
rænni „spillingu" er næturlíf í
snákahverfinu orðið varasamt og
ferðamenn varaðir við að fara
þangað.
Nýríkþjóð - vinnusöm eins
og maurar
Taipei hefur byggst svo hratt
upp að tæpast hefur unnist tími
til að leggja alúð við húsaskreyt-
ingar eða skipulag. Háhýsi gnæfa
yfir gömlum húsum í öngstrætum.
Ekkert hús er yfir 20 hæðir enda
stendur borgin á virku sprungu-
svæði og Kyrrahafsfellibyljir geta
heijað á sumrin. En byggingar
eru vandaðar og sérstyrktar fyrir
jarðskjálfta. Taipei geymir líka
ævintýralega nýtískuleg hús eins
og t.d. sýningarhöllina og hótelið
„World Trade Center“. Minning-
arhöll Chiang Kai-shek, sem var
opnuð 1987 til að minnast aldar-
afmælis forsetans, gæti verið aft-
an úr öldum. Forn kínversk bygg-
ingarlist og skreytilist í umhverfi
er látin njóta sín í þessu stór-
brotna mannvirki - sem og í Þjóð-
aróperu og Þjóðartónlistarhöll
innan sama svæðis. Þessar fögru
menningarmiðstöðvar taka 4.296
manns í sæti og kostuðu litlar 200
milljónir Bandaríkjadala.
Undraheimur glæsiverslana
Og undraheimur verslana í
Taipei er engu öðru líkur! Mat-
vöruverslanir geyma bestu gæði
og úrval allsstaðar að í heiminum
bókstaflega flæðír úr hillum og
kælihólfum. Kínveijar eru geysi-
vandlátir hvað þeir setja ofan i
sig - vilja það besta og hafa efni
á að kaupa það! Veitingahús í
Taipei eru með þeim bestu sem
völ er á. - Kínverskar húsgagna-
búðir minna á glæsileg söfn.
Handiðnaður, minjagripir, tísku-
fatnaður. Rafmagnstæki annars
staðar í heiminum hverfa í skugg-
ann fyrir glæsileikanum í Taipei
- Heimsækið endilega „Handicrafl
Center" eða „The Iittle humblc
shop“ (Kínveijar eru meistarar í
að vanmeta sjálfa sig í orðum!).
Eg var alveg heilluð af framúr-
stefnu í leikfangagerð og sætu
brúðunum með skásettu augun.
Varð bam í annað sinn! Taiwan-
búar eru heimsmeistarar í eftirlík-
Hið ævintýralega Þjóðminja-hallarsafn í Taipei er eins og sprengjuvarið mannvirki.
ingum. Með góðum samböndum
er hægt að kaupa hér eftirlíkingar
af dýrustu tegundum demants-
gullúra (kosta kannski 750.000
kr.) fyrir um 14.000 kr. Vöruval
í verslunum er einstaklega vandað
- hægt að fmna ýmislegt ódýrt
en verð oft í dýrari kantinum.
Vel klædd börn og
kurteisir unglingar
Litlu taiwönsku börnin eru eins
og litlar postulínsbrúður - patt-
araleg, vel hirt og áberandi betur
klædd en börn víða t.d. í vestræn-
um borgum. Lítil stúlkubörn eins
og klippt út úr ævintýri í bylgj-
andi blúndukjólum! Unga fólkið
er kurteist og vel klætt. Ungu
Kínveijarnir eru hávaxnari,
grennri og bera sig betur en strit-
andi forfeður þeirra frá Stóra-
Kína. Hér er að vaxa upp ný og
falleg Asíukynslóð, alin upp sam-
kvæmt 2.500 ára heimspeki -
harðdugleg ungmenni sem sækj-
ast eftir að mennta sig sem best.
(Taiwan-búar keppa við Japani í
tæknibúnaði og menntun.) Vest-
rænir unglingar mega sannarlega
hafa sig alla við til að standast
samanburð.
Lifað samkvæmt 2.500
ára heimspeki
„Ef þú vilt skilja okkur, komdu
þá með mér í Konfúsíusarhofið,“
sagði leiðsögukonan mín, hún
Cynthia, barnung, grönn og kven-
leg - en hámenntuð í utanríkis-
málum og stefnir á sendiherra-
stöðu fyrir Taiwan. Saman stönd-
um við í innigarði hofsins. Mjög
áhrifamikið að horfa á endalausan
straum ungmenna kijúpa við alt-
ari Konfúsíusar. Japanskur skóla-
hópur slæðist líka innan um -
fyrir þá er ferðalag til' Taiwan
eins og að skreppa til Kaup-
mannahafnar fyrir okkur! „Þau
eru öll að biðja um betri einkunn-
ir og betri skilning á lífinu," seg-
ir Cynthia. „Konfúsíus fæddist
fyrir 2.500 árum, þegar menntun
var sérréttindi aðalsins. En hann
vildi mennta alla einstaklinga -
vildi láta þá vitrustu stjórna -
hvaðan úr stétt sem þeir komu!
(Hvílík gífurleg hugmyndabylting
fyrir 2.500 árum!) - Við Kínveijar
trúum því að hver einstaklingur
geti orðið mikilmenni ef hann
lærir nógu mikið! - Elsti og reynd-
asti fjölskyldumeðlimur er ávallt
í miklum metum hjá okkur.“
Helgustu dómar Kín-
verja í Taipei
Er menntunardýrkun leyndar-
dómurinn á bak við velgengni
Taiwanbúa - á bak við eitt sterk-
asta efnahagskerfi í heimi? Hér
er æðstá lífshamingjan fólgin í
því að geta menntað sig! Taiwan
býr yfir tveimur helgustu dómum
Kínveija: 1) afkomanda Konfús-
íusar í 77. lið (hinn 71 árs K’ung
Teh-Cheng er einn virtasti núiif-
andi Kínveiji) 2) listmuna’safni
kínversku keisaranna, sem er
stórmerkasta fornminjasafn
kínverskra listmuna. „Þess vegna
er Taipei' hin sanna höfuðborg
allra Kínveija," segja Taiwan-
búar!
Gula hættan - eða gula
fyrirmyndin?
Já, Vesturlandabúar mega
kannski hrósa happi yfir, að að-
eins þessum 20 milljónum
Kínverja tekst að lifa svo náið
eftir heimspekikenningum Konf-
úsíusar. - Hugsum okkur ef
Taiwan-búum tækist að umbreyta
efnahagskerfi Stóra-Kína á þrem-
ur áratugum - frá sárustu fátækt
í mesta veraldarauð. - Sá Asíur-
isi - með yfir milljarð ibúa - yrði
gífurlega sterkur! - Elstu kynslóð
Taiwan-búa, sem flúði yfir sundið,
dreymir um móðurlandið og um
600 þúsund Taiwan-búar heim-
sóttu Stóra-Kína á árinu, en að-
eins 60-70 manns komu hingað.
Kannski dreymir þá um samein-
ingu með ákveðnum grundvallar-
skilyrðum.
í heim-
sókn hjá
taiw-
önskum
útskurð-
armeist-
ara.
Dæmigert landslag I Taiwan, gróðursæl árgljúfur og fallegar
göngubrýr og stígar upp í búddahofin í hæðunum.
Við Kína-
gluggann,
safn með
smækkuð-
um eft-
irlíkingum
af frægum
kínversk-
um bygg-
ingum ná-
lægt Tai-
pei.
Hlustum á afkomanda
Konfúsíusar
„Okkur dreymir um öflugt
kínverskt ríki - byggt á fornri
kínverskri menningu; - kenning-
úm Konfúsíusar; - á mannkær-
leika þar sem einstaklingurinn er
sögu þjóðar sem á 5.000 ára sögu
að baki? Kenningar Konfúsíusar
hafa verið reyndar í 2.500 ár og
standa sterkari en nokkru sinni
áður, en kommúnisminn er fallinn
eftir 40 ár! í Stóra-Kína ríkir ekki
mannúðarstefna - einstaklings-