Lesbók Morgunblaðsins - 17.12.1991, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 17.12.1991, Blaðsíða 3
Fólk í smiðju, Kona með geisiabaug. Málverk eftir Gunnlaug Scheving. Eigandi: Listasafn Islands. MATTHÍAS JOCHUMSSON Jólin 1891 Fullvel man ég fimmtíu’ ára sól, fullvel meira en hálfrar aldar jól, man það fyrst, er sviptur allri sút sat ég barn með rauðan vasaklút. Kertin brunnu bjart í lágum snúð, bræður fjórir áttu ljósin prúð, mamma settist sjálf við okkar borð; sjáið, enn þá man ég hennar orð: „Þessa hátíð gefur okkur Guð, Guð, hann skapar allan lífsfögnuð, án hans gæsku aldrei sprytti rós, án hans náðar dæi sérhvert Ijós. Þessi ljós, sem gleðja ykkar geð, Guð hefir kveikt, svo dýrð hans gætuð séð; jólagleðin ljúfa lausnarans leiðir okkur nú að jötu hans“. Síðan hóf hún heilög sagnamál, himnesk birta skein í okkar sál; aldrei skyn né skilningskraftur minn skildi betur jólaboðskapinn. Margan boðskap hef ég hálfa öld heyrt og numið fram á þetta kvöld, sem mér kveikti ljós við ljós í sál, — ljós, sem oftast hurfu þó sem tál. Hvað er jafnvel höndum tekið hnoss? Hismi, bóla, ský, sem gabbar oss; þóttú vinnir gjörvallt heimsins glys, grípur þú þó aldrei nema fis! Ársól hver, sem öllu fögru hét, ætíð hvarf á meðan rósin grét; vorið hvert, sem bauð mér betri hag, brást mér löngu fyrir vetrardag. Lukkan sagði: „Vind upp mína voð: veröld alla gyllir sólarroð; fyrir stafni leiftra sérðu ljós, lukku þinnar frægð og sigurhrós!“ Hvað varð úr því öllu? Last og hrós, óró, blekking, trufl og villuljós! Hafi nokkur hreinan sálarfrið, hjartafeginn skipti ég hann við. Þessi fáu, fölu lukkublóm fælast lífsins kalda skapadóm; allt vort hrós í hreggi veraldar hrekst á milli drambs og öfundar. Loks er eitt það „evangelíum“, er oss býðst hjá tímans vitringum: „Trú er hjátrú, heimur töfraspil, himinn, Guð og sál er ekki til!“ — Ljá mér, fá mér litlafingur þinn, Ijúfa smábarn; hvar er frelsarinn? Fyrir hálmstrá herrans jötu frá hendi ég öllu: lofti, jörðu, sjá! Lát mig horfa’ á litlu kertin þín: Ljósin gömlu sé ég þarna mín! Ég er aftur jólaborðið við, ég á enn minn gamla sálarfrið! LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 17. DESEMBER 1991 3 l

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.