Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Blaðsíða 2
Tónskáldið Atli Heimir ásamt Jerome Barry barítonsöngvara, Kristin Ostling Pamela og Marshall Brement, fyrrverandi sendiherrahjón Banda- sellóleikara, prófessor Alan Mandel píanóleikara og gestgjöfunum Bryndísi ríkjanna á íslandi, og Eric McVadon, fyrrverandi aðmíráll á Kefla- Schram og Jóni Baldvini Hannibalssyni. víkurflugvelli, ogfrú voru meðal tónleikagesta. TÓNLEIKAR TIL HEIÐURS ATLA HEIMI í WASHINGTON NÝVERIÐ voru haldnir í íslenska sendi- ráðsbústaðnum í Washington D.C. tónleikar til heiðurs Atla Heimi Sveinssyni tónskáldi. Tón- leikamir voru haldnir á vegum Embassy Concert Series en það eru samtök tónlistar- manna í höfuðborg Bandaríkjanna sem efna til tónleika í sendiráðum og flytja þá eingöngu tónlist frá viðkomandi landi. Aðspurður um tilurð tónleikanna segir Atli að í tengslum við tónleika Sinfóniuhljómsveitar íslands í Washington í október sl., þar sem m.a. var flutt verk hans, Icerapp 2000, hafi gamlir kunningjar hans þar í borg haft samband við hann og vakið máls á því að haldnir yrðu tón- leikar með verkum hans. Sendiherrahjónin í Washington, Jón Baldvin Hannibalsson og Bryndís Schram, hafi tekið hugmyndinni vel og úr hafi orðið að haldnir voru tónleikar í röð Embassy Concert Series. Á tónleikunum voru flutt þrjú einleiksverk og úrval sönglaga eftir Atla Heimi. Kristin Ostling, sellóleikari við Baltimore Symphony Orchestra, lék einleiksverkið Úr ríki þagn- arinnar, sem hann gerði á sínum tíma fyrir Erling Blöndal Bengtsson. Karen Johnson, einleikari á flautu við The Chamber Artists of Washington og The Washington Bach Consort, flutti einleiksverkið Music Minutes, sem tónskáldið samdi fyrir Manuelu Wiesler. „Þá flutti Alan Mandel stóra píanóverkið Gloria af mikilli snilld. Hann er þekktur konsertpíanisti og prófessor við American University en hann hefur verið hér á landi og við erum kunningjar,“ segir Atli. Að lokum flutti barítonsöngvarinn Jerome Barry úrval sönglaga eftir Atla Heimi, Ljóða- kom, á íslensku en hann ku syngja á einum sautján tungumálum. Um 150 manns sóttu tónleikana, flestir fast- ir áskrifendur tónleikaraðarinnar eða meðlim- ir ýmissa félaga tónlistarunnenda í Washing- ton DC og nágrenni. I tengslum við tónleikana var stofnaður sérstakur sjóður, með framlög- um tónleikagesta, til stuðnings tónlistarflutn- ingi á vegum íslenska sendiráðsins. Að tónleikahaldi loknu bauð sendiherrafrú- in, Bryndís Schram, gestum upp á íslenskan jólamat. Tónleikamir vom teknir upp og þeim, ásamt viðtölum við tónskáldið og sendiherra íslands í Bandaríkjunum, Jón Baldvin Hannibalsson, útvarpað á vegum PSR, Public Service Radio, sem mun hafa mesta hlustun allra ljósvaka- miðla í Bandaríkjunum. Gagnrýnandi The New York Times: Vá! „Þín endurtekna sýn“; umhverfi gallerísins er varpað inn um op kviksjár. New York. Morgunbladið. MYNDLISTARMAÐURINN Ólafur Elíasson gerir það ekki endasleppt þessa dagana. 10. sýningu hans á árinu er nýiokið í galleríinu Bonakdar Jancou í New York. Sýningin nefndist „Your now is my surroundings“, eða „Núið þitt er umhverfi mitt“. Fyrr á árinu gekkst Listamiðstöðin í Chicago, The Art Institute of Chicago, fyrir stórri sýningu á verkum Óiafs. Virðist sem hann verði enn um hríð áberandi í sýning- arhaldi hér vestra því snemma á næsta ári verður opnuð yfirlitssýning á verkum hans í nývígðri byggingu Samtímalistamiðstöðv- arinnar í Boston, The Institute of Contempor- ary Art. Verkin tvö á sýningunni í New York voru í senn einföld í framsetningu og margslungin að áhrifum. Speglar gegndu þar lykilhlut- verki og eins og flest verka Olafs fjölluðu þau um arkitektúr og skynjun einstaklingsins á umhverfi sínu. OÍafur umbreytir fábrotnu og einföidu hvitu rými gallerísins svo áhorf- endur skyrija það með öðrum og sterkari hætti en áður. Umhverfið um kviksjá. Þegar gengið er um galleríið er baksvipur verkanna það sem blasir við. Ljósir ferhyrnings- laga viðarstrúktúrar og veggir þaktir spóna- plötum. Við fyrstu sýn er því ekki ljóst hvað hér er á ferðinni í innri sal gallerísins eru dyr að framan- verðri miðju salarins sem leiða áhorfendur um þrep inn í annað ferhyrningslagað rými. Mænir hússins hefur verið tekinn úr samsvar- andi hluta rýmisins svo niðurinn neðan frá 21. götu í Chelsea-hverfi ómar um þetta litla úti- herbergi. I þessu titilverki sýningarinnar standa speglar í sjónh'nu upp eftir öllum fjór- um veggjunum og skýjafarið og himinblám- inn að ofan endurkastast margfalt um rýmið. Áhorfandinnhorfír bókstaflega í augun á sjálfum sér. Úthverfa hússins er nú inni í því miðju. Það sem var inni er nú úti og umhverf- ið verður upplifun tengd stað og stund. Titilverk sýningar Ólafs, „Núið þitt er umhverfi mitt“. Á vegg í sama sal er lítið ferningslaga gat. Þetta reynast vera löng göng sem liggja um skrifstofurými gallerísins fyrir framan salinn og út í gegnum ytri vegg hússins svo gustur af götunni lcikur um andlit áhorfandans. I verkinu „Your repetitive View“ eða Þín end- urtekna sýn, er sömu aðferð beitt og speglar þekkja allar hliðar ferningsins að innanverðu, líkt og í kviksjá. Þannig veltur gul rák eftir ferðir Ieigubíls að utan um allar hliðar gægju- gatsins og umhverfið að utan smýgur inn, verður að undarlegri nærveru inni í gall- eríinu. Sýningu Ólafs lauk 2. desember síðastlið- inn. Illaut hún afar góða dóma listrýna í borg- inni sem verður best lýst með upphafsorðum gagnrýnanda The New York Times: „Vá“. RYMIÐ SEM KVIKSJÁ MENNING/ LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur - frá býli til borgar. Árnastofnun, Árnagarði: Hand- ritasýning til 15. maí. Café Mflanó: Ingvar Þorvaldsson. Til 31. des. Galleri@hlemmur.is: Hekla Dögg. Til 7. jan. Gallerí Geysir, Hinu húsinu, Ing- ólfstorgi: Trúum við á engla? Til 6. jan. Gallerí Hringlist: Fjóla Jóns.Til 24. des. Gallerí Reykjavík: Samsýning níu listakvenna. Til 24. des. Jónas Bragi Jónasson. Sigurður Atli Atlason. Til 31. des. Gallerí Ríkey: Ríkey Ingimund- ardóttir. Til 31. des. Gallerí Tapas: Haukur Dór. Til 10. jan. Gerðarsafn: Verk eftir íslenska myndlistarmenn af yngstu kynslóð. Til 30. des. Hafnarborg: Sýning 6-10 ára barna úr Litla myndlistarskólanum í Hafnarfirði. Jólakortasýning grunn- skólabarna. Til 7. jan. Hallgri'mskirkja: Kristín Gunn- laugsdóttir. Til 19. feb. Listasafn íslands: Úr safnaeign. Til 15. jan. Listasafn Reykjavikur - Ásmund- arsafn: Samsýning á trúarlegri myndlist. Til 4. jan. Verk í eigu safnsins. Listasafn Reykjavíkur - Hafn- arhús: Undir bárujárnsboga og samsýning um ólíka sýn íslenskra og erlendra listamanna á landið. Til 7. jan. Listasafn Reykjavíkur - Kjarvals- staðir: A.R.E.A. 2000. Til 7. jan. Austursalur: Jóhannes S. Kjarval. Myndir úr Kjarvalssafni. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Hærra til þín. Norræn farandsýn- ing. Til 4. jan. Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg: Helgi S. Friðjónsson og Sif Æg- isdóttir. Til 24. des. Listhúsið Laugardal: Sigurrós Stef- ánsdóttir. Til 27. des. MAN-sýningarsalur, Skólavörðu- stíg 14: Samsýning Guðbjargar Lindar Jónsdóttur, Guðrúnar Krist- jánsdóttur og Kristínar Jónsdóttur frá Munkaþverá. Til 15. jan. Mokkakaffi: Róbert Stefánsson. Til 3. jan. Norræna húsið: Sýning á vegg- teppum og leirmunum eftir tvær norskar listakonur, Britu Been og Barbro Hernes. Til 31. des. Sjóminjasafnið á Eyrarbakka: Ljósmyndasýning Lindu Ásdís- ardóttur. Til 28. des. Skaftfell, Seyðisfirði: Jón Óskar. Til 15. jan. Skálholtskirkja: Teikningar Katrín- ar Briem.Til 1. feb. Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.umm.is undir Fréttir. LEIKLIST Þjóðleikhúsið: Antígóna, frums. þrið. 26., mið. 27., fím. 28. des. Horfðu reiður um öxl, fös. 29. des. Borgarleikhúsið: Móglí, frums. þrið. 26. des. Abigail helur partí, fös. 29. des. Skáldanótt, fös. 29. des. Loftkastalinn: Á sama tíma síðar, frums. fim. 28., fös. 29. des. Iðnó: Sýnd veiði, fós. 29. des. Hafnarfjarðarleikhúsið: Vitleysing- arnir, fös. 29. des. Leikfélag Akureyrar: Gleðigjaf- arnir, fös. 29. des. Tveir misjafnlega vitlausir, mið. 27. des. Kaffilcikhúsið: Missa Solemnis, fös. 29. des., lau. 24. des. Tjarnarbíó: Góðar hægðir, fös. 29. des. Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þess- um dálki verða að hafa borist bréf- lega eða í tölvupósti fyrir kl. 16 á miðvikudögum merktar: Morgun- blaðið, menning/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang: menning@mbl.is. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 23. DESEMBER 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.