Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Síða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Síða 9
INGIAAAR ERLENDUR SIGURÐSSON ÞJOÐVISUR A ÞINGVELLI Mynd: Ingimar Erlendur Sigurðsson. íslands þúsund ár Vatnið skárar vindsins ljár, vökna brár ogfella tár. þarna gárast þúsund ár, þjóðar sárið opið stár. Svipir Röðull gyllirrústir búða, rétt á tyllir vofur skrúða. Foss afsyllum fleygir úða, fornmenn hyllir uppiprúða. Eggjar Heldur stríð er Öxará, öll þar tíðin fossarhjá. Eins og sníði öxin vá, eggin ríður hvít og blá. Trúarfar Eggjar sína öxi foss, eins ogpresta rígur. Augum skín í ánni kross, öxin mest þarhnígur. Goðgá Trúar þróttinn tímar heygja, talsvert ljótt má afþví segja. Greyhér þótti gyðjan Freyja, goð án ótta mannsins deyja. Trúarspeglun Sjá má krjúpa Síðu-Hall sólskins flíkum búinn. Vatnið djúpa foldgnátt fjall faðmar líkt og trúin. Heimildir Helst upp grefur heiðindóm hlust sem tefur lands við róm. Kyrrð sem vefur blæ um blóm blíðan gefur kristinn hljóm. Trúarmeitlun Enn ígeislum guðsorð ber Gissur eins og forðum. Ef við beislum birtu hér býrhún steins í orðum. Trúskipti Mjúkt á grund er mosans veldi, máttugt hraun er dautt af eldi. Þorgeir undir þykkum feldi, þreytti raun oggoðin seldi. Trúarfeldur Liggur undir landsins feld Ljósvetninga goðinn. Trúar stundin á þar eld öllum þingheim boðin. Drekkingarhylur Bjargar hringur brún við stendur, blóðsins hyl til lausnar sendur. Konufíngur kvika endur, króum skilar upp á lendur. Þingvallakirkja Hjartað ber að kirkjukross, kristin und er blóðugt hnoss. Hélt þar séra Heimir oss helgistund með orðafoss. Hestagjá Hóflaus nú er Hestagjá, hneggja trúar flokkar. Hérna grúa grösin fá, gisið bú ei lokkar. Fjallamjólk Mjallhvít streymir mjólk af tindum, málverk geymir teikn úrlindum. Augað dreymir oft í myndum undurheims oglausn frá syndum. Trúarúttekt Frá sér banda fallin strá fólskum kirkju vana. Hreinni anda auðmjúk þrá er að styrkja hana. Flosagjá Fagurblá er Flosagjá, fellurgljá af sólu á. Bruna má í botni sjá, brennur Njáll í Flosa þá. Bogmaður Glóbjart hárið Gunnar sá, gekk um vengi brókin flá. Banasárið bogmenn fá, bresti strengur konu hjá. Þjóðargrafreitur Tveim sem þjóðin tryggð við sleit, tók hún óðfús grafarreit. Ei erglóðin andans heit, í þau ljóðhús fár einn leit. Fornaldarfrægð Eitt sinn reið á Alþing harpa, efldi seið um forna garpa. Hljótt er skeiðið hennar snarpa, húná leiði sitt í varpa. Þjóðhátíð 1930 Einn um hraunið andinn gekk, átti raunar heiðurs bekk. Öfund launar eftir smekk, Einar kaunin landsins fékk. Bálför Bál er undir brunnu hjarni, brennurlífá þjóðar arni. Guðsáfund þ ar gengur Bjarni glóð með víf og dóttur barni. Bjargið Sér á teigi Sigurbjörn, silfurhár út breiðw. Hann er fleygur hátinds örn, helgiár upp leiðir. Vald Veður elginn heimsins hald, heldur belgh■ út sitt vald. Andar helgir greiða gjald, guð ei svelgi þjóðartjald. Peningagjá Hátíð þessi heldur dýr, hyl í bjartan sáir. Uppsker blessun andi nýr eins og hjartað þráir? Útdeiling Sálum gefa geislar brauð, guðsbörn soltin tyggja. Ljóshönd hefur orðsins auð, er það hollt að þiggja. Bannfæring Gjá hver felur gull af manni, guðstrú berþar hver með sanni. Hjá sér vel það kirkjan kanni hví við erum mörgí banni. Fangbrekka Faðmar brekka fagurt lyng, fortíð skaust í litabing. Auðnh' rekka allt um kring, íslensk raust á hvergi þing. Véfrétt Farvatn hefurfagran óm, frelsun gefur sama hljóm. Felursefið dýran dóm, drottinn vefur kristin blóm. Biskups- messa Kirkjulýðinn biskup blessar, bág er tíðin þjóðar núna. Heiðið níð sitt menning messar, mammon prýðti jafnvel trúna. Stuðfólk Galar popp í gríð og erg, gegnum skefur bein að merg. Stendur loppið stuðlaberg, styrkleik hefur á við dverg. Tjaldstæði Rann til viðarrekka öldin, ræfla siður hefur völdin. Allur riðar æsku fjöldinn, eins og skriða leggst á tjöldin. Trúargeymd Skrefm tekur tíminn löng til að lifa af veislumasið. Hugur rekur spor á Spöng sprottin yfti þögult grasið. Hinir fyrstu og síðustu Mættti þú á Þingvöll þyrstur, þar sem fljóta vötn í kistur? Bar þér trúarbikar Kristur, bauð þérnjóta djúpsins fýrstur? Iðrunar- halinn Engin tár á veg né vanga vöktu sáran hyl við dranga. Hempur báru halann langa, hryggð ei gárar tíma ranga. Iðrunarsýn Iðrun breiðti yfír sök, ef hún sér ei nema bök. Augun leiðiriðrun rök, efhún berar sjálfs sín flök. Hvaða þjóð? Hví ei þjóð á hátíð mætti? hinst ergóð ognakin spurning. Mikill ljóður margan grætti, mörgum bróður var hann smurning. Úttekt Kristnitöku flestti fagna, fínnst hún merk ílandi sagna. Bölva stöku blöð ogragna, bænti klerka lítið gagna. Inntekt Kalin sýnist krosslaus þjóð, ktikju týnist drottins blóð. Þegarkrýnist þyrnum glóð, þá mun skína hátíðgóð. Lögberg og trúbjarg Hurðum laust upp hamra salar háleit drótt sem björg við talar. Landsins raustum lágnótt smalar, leiðtirótt til þagnar dvalar. Sólarlag Dagsljós þilin drekka hljóð, daprast ylur bleikri þjóð. Rökkur hylur rekka slóð, röðull skilar veikri glóð. Trúarstoð Himnesk skýin Hvítakrist hreinleik meður boða. Ríkið nýja grös fá gist guðs er veður stoða. Þingvallavatn Vatnið tært er trúnni kært, tímabært það vakti glært. Augað sært er endurnært, í því vært það Ijómar skært. Höfundurinn er skáld í Reykjavík. Vísnaflokkur þessi er svotil alveg orktur á kristnihátíð. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 23. DESEMBER 2000 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.