Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Qupperneq 11
Brunngata 10. Húsið heitlr Ásbyrgi og var byggt árið 1910. Þetta hús hefur verið stórvirki í byrj- un steinsteypualdar, en gluggum á framhliðinni hefur verið mikið breytt og engan veginn til bóta. Sjá má á gaflinum að upphaflega hefur verið líkt eftir gluggum timburhúsa, en umfram allt eru það hinar voldugu og sérkennllegu svalir sem einkenna þetta hús. Túngata 5. Steinhús með klassísku sniði, sem Steínar Steinsson teiknaði og byggt var 1933. Hér má sjá góða tilfinningu fyrir hlutföllum. Enda þótt komið sé fram yfir 1930 og útskúfunar fúnksjónalismans á öllu skrauti byrjað að gæta á íslandi, er enn unnið með einfaldar skreytingar í þessu húsi og þær hafa eins og annað í því staðizt tímans tönn. Aðalstræti 10. Húsið, byggt 1874, á sér langa og merka sögu því það er eitt af Miðkaupstað- arhúsunum. Hér er öllu vel við haldið svo til fyrirmyndar er og ísfirzka anddyrlð er svo stórt á móti sjálfu húsinu að það er hér að segja má í viðhafnarútgáfu með fallegum dyraumbúnaðl og skreyti yfir dyrunum. Lóðin er harla lítll, en er fallega afmörkuð með grindverkl í stíl við húsið. Smiðjugata 1. Húsið var byggt 1904, en útllti þess var breytt umtalsvert fyrir um áratugi og þá byggð við það sólstofa. Meðal gömlu húsanna á ísafirði vekur þetta hús ævlnlega mikla athygli gesta enda hefur verið lögð mikil vinna og alúð í samræmdar skreytingar. Enda þótt sólstofan rími ágætlega við húsið, á hún sinn þátt í að það hefur fjarlægst upprunalegt útlit. Það kann að þykja galli, en alltaf er notalegt að sjá þegar bersýnilega er unnlð af ástúð. Tangagata 12. Húsið var reist 1903 við Brunngötu, en síðar flutt á þennan stað. Það var lengi bústaður skólastjóra Barnaskólans. Þetta er i sjálfu sér einfalt tveggja hæða hús með lágu risi, en fær sterkt svipmót af hvítmáluðum gluggaumbúnaði og ekki sízt af hvítmáluðum svölum og útskornum spymustoðum yfir inngangi. Túngata 3. Húsið var flutt frá Hattardaiseyri 1930. Grímur Kristgeirsson, faðir Ólafs Ragnars forseta islands, lét reisa húslð á ísafirðl og þar var æskuheimili Ólafs Ragnars. Hér er eitt af mörgum húsum á Vestfjörðum sem sýna norsk áhrif. Húsin við Túngötu em byggð eftir skipulagi Guðjóns Samúelssonar og Guðmundar Hannessonar, sem staðfest var í marz 1927. Tangagata 23. Á húsinu er fallega unninn skjöldur þar sem stendur að húsið sé reist 1888. Hér má sjá þetta sérstaka, ísfirzka einkenni, að byggt er yfir anddyrið, sem verður einskonar andlit hússins með svipmiklum vlndskelðum og íburðarmiklu skreyti á dyraumbúnaði og yfir gluggum. Sú viðhöfn hefur ekki átt sér stað á viðbyggingu til hægri. Smiðjugata 2. Upprunalega er þetta eitt af elztu íbúðarhúsunum á ísafirði, byggt 1853, en stækkað og breytt mlkið 1978. i húsinu bjó smlðurinn Jens Kristján Arngrimsson, en nafn göt- unnar er dreglð af smiðju hans. Húsið hefur verið stækkað um helmlng eða meira. Að utanverðu er það klætt með svartbikaðri listaklæðningu, sem ásamt hvítmáluðum gluggum gefur húsinu nokkuð af 19. aldar svipmóti. 'i LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 23. DESEMBER 2000 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.