Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Qupperneq 12

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Qupperneq 12
Túngata 11, timburhús frá 1930. Hér er verulegur munur orðinn frá litlu húsunum sem risu síö- ast á 19. öldinni; grunnflöturinn mun stærri og nægilega rúmt í kringtil þess að hægt sé að hafa garð. Hér er enn haldið í ísflrzka einkennfð: útbyggt anddyri í sama stíl og húsfð. Mestan svip á húsið setja vindskeiðarnar, að ofanverðu með þverbitum, svo og hvítmálaðir, upprunalegir gluggar með samræmdu skreyti. Tangagata 22. Húsið var byggt 1898. Húsinu hefur verið mikið breytt. Skyggnið yfir dyrunum er síðari tíma viðbót, en setur svip á götuhliðina. Edinborgarhúsið, Aðalstræti 7, er eitt af þeim gömlu húsum á ísafirdi sem eiga sér langa og merka sögu. Það er þó 20. aldar hús, byggt 1907 í Miðkaupstaðnum af Edinborgarverzlun. Rögnvaldur Ólafsson, fyrsti íslenzki arkitektinn, teiknaði húsið, sem nú er friðað. í því er nú rek- inn listaskóli, sem kenndur er við Rögnvald Ólafsson. Auk þess eru í húsinu ferðamiðstöð og menningarmiðstöð. Tangagata 4. Húsið var byggt 1884 og allur grunnflöturinn er líklega minni en miðlungs nútíma stofa. Gulmálað bárujárn er á veggjum og fagurlega unnið skreyti yfir gluggum og dyrum vekur sérstaka athygli. Smiðjugata 12. Elzti hluti hússins er frá 1880, en síðan hefur tvívegis verið byggt við enda húss- ins. Umhverfis húsið hefur engu verið breytt nema hvað malbikað er upp að húshliðinni. Tangagata 21. Húsið var byggt 1898 á afskaplega litlum grunnfleti, en hús á þefrri tíð voru oft litlu stærri en sæmilega stór herbergi í nútíma húsum. Hér er ekki sami íburður í tréverki kring- um dyr og glugga og í ýmsum öðrum aldargömlum, ísfirzkum húsum, en yfirbyggða anddyrið er þó á sínum stað. Húsin við Tangagötu eru gott dæmi um iðnaðarmannahverfið sem þar reis upp- úr miðri 19. öld. Þau eru það fyrsta sem þar var byggt og tilheyrði ekki verzlununum í Neðsta-, Hæsta- eða Miðkaupstaö, reis 1835. Tangagata 24. Húsið var byggt 1896 og lengi kennt við einn af þeim sem í því bjó, Óla Steen- bach Stefánsson tannlækni, og kallað Steenbachshús. Þetta er tveggja hæða, járnklætt timb- urhús og tiefur mikil alúð veri lögð við skreyti á tréverki í kringum gluggakarma. Túngata 7, hús frá 1931 og eftírtektarvert að það er árinu yngra en timburhúsið Túngata 11. Enda þótt steinsteypan sé komin til sögunnar er haldið í timburhúsastílinn og vegtega að öllu staðið. Svalir eru yfir anddyrinu og svipmót timburhúsanna undirstrikað með hvítmáluðum vind- skeiðum og þakbrún, auk þess sem gluggar eru hvítmálaðir svo og bekkur milli kjallara og fyrstu hæðar. Húsið teiknaði og byggði Páll Kristjánsson húsasmíðameistari og bjó sjálfur i hús- inu árin 1932-1939. Þá keypti Björgvin Bjarnason útgerðarmaður húsið og bjó í því. 1 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 23. DESEMBER 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.