Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Page 14
Dráttarkarlarnir við Volgu, 1872. TÖFRAMAÐURINN FRÁTSJÚGÚEV EFTIR HALLDÓR VILHJÁLMSSON Répin vildi geta nálgast rússneska þjóðarsál í verkum sínum, komast í snertingu við rússneska mold og líf al- mennings í landinu. Hann hafói andúð á þeirri Hi- hneigingu Rafaels að fegra 1 ífið og tilveruna, en hreifst aftur á móti af verkum Rembrandts og Velasq- uesar. Répin andaðist í Karel íu í Finnlandi 1930. Kirkjuskrúðganga í Kúrskhéraði, 1883. UM RUSSNESKA LISTAAÁLARANN ILIA RÉPIN MEÐ örfáum undantekn- ingum verður rúss- nesk málaralist vart kunn að nokkru ráði í Vestur-Evrópu fyrr en í upphafi tuttugustu aldar og þá einkum eftir októberbylting- una í Rússlandi og þá blóðugu borgarastyrj- öld sem fylgdi í kjölfar byltingarinnar, en þá flúði fjöldi listamanna ógnarstjóm heimafyrir og settist að á Vesturlöndum þar sem þeir stunduðu list sína upp frá því. Nægir þar að nefna ýmsa kunna áhrifamenn í myndlist eins og V. Kandinskij og M. Chagall. Fram að þeim tíma hafði það einkum verið rússnesk kirkjulist sem vakið hafði einhveija verulega athygli á Vesturlöndum; Rússland var um langan aldur líkt og heimur út af fyrir sig og samskipti á milli Austur- og Vestur-Evrópu á listasviðinu voru lengi vel næsta lítil. Veraldleg rússnesk málaralist tekur smátt og smátt að þróast sem portrettmálverk í lok 17. aldar og á sú þróun sér stað alla 18. öldina og fram á þá 19. En á seinni hluta 19. aldar taka viðhorf manna til listarinnar þó að breyt- ast mjög verulega, það fer að gæta meiri fjöl- breytni í vali á myndefni og upphefst þá mikið blómaskeið í rússneskri málaralist. Lista- akademían í Sankti Pétursborg var á 19. öld sú stofnun sem skólaði alla meiriháttar list- málara Rússlands, leyfði þeim strangar lífs- reglur í umgengni sinni við listina og mótaði í reynd stefnuna í rússneskri myndlist langt fram eftir öldinni. Kröfur Listaakademíunnar tii rússneskra málara varðandi íramsetningu myndefnis og stfl voru ekki síður ósveigjan- legar og strangar en kröfur rétttrúnaðar- kirkjunnar um kórrétta gerð helgimynda. Meðal rússneskra menntamanna var þegar í kringum 1870 kominn fram ákveðinn pólí- tískur vilji til að koma á gagngerum breyt- ingum á þjóðfélaginu í jafnræðisátt og til auk- ins frelsis. Hinn 19. febrúar 1861 var loks endi bundinn á eitt alvarlegasta þjóðfélagsmein Rússlands þegar bændaánuðinni var loks af- létt með keisaralegri tilskipun, en þá höfðu rússneskir bændur verið ánauðugir þrælar aðalsmanna í rúmlega 300 ár eða allt frá dög- um ívans grimma. Kenningar Lévs Tolstojs um mannkærleika, full mannréttindi allra þegna rfldsins og mannúðlegt þjóðfélag nutu orðið vaxandi fylgis meðal rússneskra menntamanna og jafnvel meðal sumra ráða- manna í landinu. Rithöfundar og listamenn tóku brátt undir þessi mannúðarsjónarrnið Tolstojs og annarra hugsjónarmanna og tugir rússneskra málara lögðu líka fram sinn skerf með því að túlka vandamál samtímans í verk- um sínu, í stað þess að leita sér mótíva í klass- ískum grískum goðsögnum eða í frásögnum biblíunnar líkt og verið hafði reglan fram að þessu. Margir af fremstu málurum Rússlands tóku í list sinni upp þessa nýju stefnu í mál- verkinu, meðal annarra þeir Kramskoj, Ge og Pérov, en einna atkvæðamesti brautiyðjand- inn í hópi yngri málara á þessum tíma var samt Ilja Répin - verk hans áttu eftir að valda þáttaskilum í rússneskri málaralist. Uja Éfimovitsj Répin var fæddur árið 1844 í smábænum Tsjúgújév í Harkov-héraði. Fað- ir hans var hermaður að atvinnu og fjöl- skyldan bjó við þokkalega afkomu miðað við kjör alls almennings í Rússlandi. Á æsku- heimili sínu ólst drengurinn upp við visst ör- yggi og gott atlæti en jafnframt við strangan heimilisaga eins og tíðkaðist í þá daga. Þegar augljósir listrænir hæfileikar piltsins tóku að koma í ljós snemma á unglingsárunum, hvöttu foreldramir soninn fremur en löttu til dáða og styrktu hann eftir bestu getu til náms íyrstu árin. Haustið 1863 hélt hinn 19 ára gamli Ilja Répin til Pétursborgar, hinnar óumdeildu miðstöðvar menningar og lista í Rússlandi að þeim tíma. Hann hóf þar fyrst undirbúnings- nám hjá hinum fræga meistara Kramskoj og var í læri hjá honum í eitt ár, áður en meist- arinn áleit hann hæfan til að sækja um inn- göngu i Listaakademíuna. I forskólanum hjá Kramskoj kynntist Répin m.a. Stasov, kunn- um og mikilsmetnum listagagnrýnanda, og tókst með þeim traust vinátta sem hélst upp frá því alla tíð á meðan Stasov lifði. Répin fékk inngöngu í málaradeild Listaakademí- unnar árið 1864 og í heil sjö ár naut hann þar tflsagnar kröfuharðra kennara og færustu lærimeistara enda varð árangur hans líka frá- bær. Útskriftarverk Répins árið 1871 var „Upprisa dóttur Iaíra“, stórt málverk með átakamiklu viðfangsefni úr biblíunni. Verkið þótti einstaklega vel af hendi leist og hlaut strax mikið lof gagnrýnenda, meðal annars fór Stasov viðurkenningarorðum um þetta verk. Ilja Éfimovitsj Répin var útskrifaður frá Listaakademíunni cum laude og hlaut sér- staka viðurkenningu. Árið 1870 hafði Répin dvalið um hríð að sumarlagi austur við Volgu ásamt vini sínum F. Vasfljév, þar hafði hann unnið drög að ýmsum verkum sem áttu að sýna líf og störf fólksins á bökkum stórfljótsins. Síðar vann svo Répin úr þessum frumdrögum nokkur málverk - hið frægasta þeirra er án efa „Dráttarkarlamir við Volgu“ (1872). Þetta málverk verður að teljast impressjónískt og lýsir á táknrænan og áhrifamikinn hátt þeim þrældómi og því harðræði sem var hlutskipti rússneskrar alþýðu á þeim tíma. Sterklegir karlar beygja sig undir ok þrældómsins og stritið er orðið líkt og föst venja, þeir virðast sætta sig við örlög sín. Margar stúdíur ein- stakra atriða í málverkinu lágu til grundvallar heildarmyndinni, hraðteikningar bæði af and- litum og líkamlegum átökum erfiðismann- anna; auður fljótsbakkinn, fjarlægðin og rým- ið sem fram kemur í myndinni undirstrika einmanaleika og auðnuleysi mannanna. Árið 1873 hlaut Répin ferðastyrk Lista- akademinnar og hélt í langa utanlandsferð á vit helstu miðstöðva lista í álfunni. Hann staldraði fyrst við í Vínarborg, hélt þaðan til Rómar og Napólí og dvaldi að lokum um hríð í París. Ferðin hafði djúp áhrif á listamanninn Répin, þótt hann hrifist ekki beinlínis af öllum verkum þeirra klassísku meistara sem hann kynntist á ferðum sínum. Þannig lét hann m.a. í ljós vissa andúð á verkum Rafaels vegna þeirrar áráttu hans að leitast sífellt við að fegra lífið og tilveruna í verkum sínum. Hann hreifst aftur á móti af verkum Rem- brandts og af frönsku impressjónistunum, einnig af verkum Diegos Rodriguez Velasq- uez. Þegar Répin sneri heim úr utanlandsferð sinni, settist hann að í Moskvu þar sem hann bjó næstu sex árin. Hann vann kappsamlega að list sinni, en þau verk sem hann skóp í Moskvu fyrstu tvö árin eftir heimkomuna voru honum ekki að öllu leyti að skapi, of íjarri raunveraleikanum fannst honum. Hann vildi geta nálgast meir rússneska þjóðarsál í verkum sínum, komast betur í snertingu við rússneska mold, við líf almúgafólks í landinu. Hann hélt því aftur heim til Tsjúgújév og - 1 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 23. DESEMBER 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.