Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Blaðsíða 15
BIRGITTA
HALLDÓRSDÓTTIR
INNTIL
HEIÐA
Inn til heiða ætla égnú
eignast þargleði, hamingju og trú.
Leggégnúá
láttu þigsjá.
Við okkur brosir lífið þar
við munum sjá hvar Eyvindur var.
Komdu með mér, kæra ég bið
því að kossar þínir eiga hér við.
Hjarta mitt slær
haltu mérnær.
Heiðarfrelsið er okkar nú
elskast við munum þar ég og þú.
Heiðarloftið hreint og tært
höfgar þig sem gullið vín.
Hjarta mitt slær
haltu mér nær.
Heiðarfrelsið er okkarnú
elskast við munum þar ég og þú.
Hveravelli komum við á
kæra vina, láttu migsjá.
Ast þína hér
ætlaða mér.
Aldrei framar í burtu fer
en elskumst oft við Eyvindarhver.
Höfundurinn er rithöfundur og býr á Syðri-
Löngumýri í Húnaþingi.
Hér ólgar rússneskt blóð ag eitthvað mikið sem stendur til. Titill þessa málverks Répins fré érinu 1891 er „Zaporozjtsý skrifa Tyrkjasoldéni bréf“.
Ein af óhugnanlegri myndum Répins: ívan grimmi og sonur hans, 1885.
dvaldi þar um tíma. Þar suður frá fær hann
hugmyndina að efni í stórt og viðamikið mál-
verk sem hann hóf síðan að vinna að í Moskvu
en lauk að fullu við í Sankti-Pétursborg 1883
eftir að hafa flust aftur búferlum þangað.
Myndefnið er mikil kirkjuskrúðganga; þar
stíga fram fulltrúar helstu stétta og þjóð-
félagshópa Rússlands og mynda einskonar
heildarportrett af rússneskri þjóð; fulltrúi
landsaðalsins er skrautklædd kona fyrir miðri
myndinni, hún heldur á íkónu í gylltum
ramma og við hlið hennar rigsar drembilegur
óðalsbóndi; prestar, embættismenn, bændur,
förumenn og aðrir fátæklingar allt í kring og
yfir öllum söfnuðinum gnæfa lögreglumenn á
hestbaki sem með vökulu auga hafa eftirlit
með göngunni. Bins og við gerð annarra álíka
stórvirkja hafði Répin gert mikinn fjölda af
forstúdíum af einstökum persónum meðan
hann dvaldi suður í Tsjúgúév og við þessi
frumdrög studdist hann svo þegar hann hóf
að mála þessa táknræna þjóðfélagsmynd. Þeir
málarar í Moskvu sem Répin ráðfærði sig við
í sambandi við þetta myndefni létu í Ijós mikl-
ar efasemdir um framsetningu á svo flóknu
myndefni, álitu það jafnvel illtúlkanlegt á lér-
eftinu. Reyndin varð önnur. Málverkið
„Kirkjuskrúðgangan í Kúrsk-héraði“ kom
fyrst fyrir almenningssjónir árið 1883 og
vakti þá strax mikla athygli og almenna að-
dáun. Myndin þykir hið mesta gersemi.
Répin tók á næstu árum að lýsa í mál-
verkum sínum ýmsum sögulegum atburðum
og ein sú frægasta í þeim flokki er kósakka-
mynd hans, „Zaporozjtsý skrifa Tyrkjasóldani
bréf' (1891). Myndbygging og litameðferð í
þessu verki þykir mjög sérstæð, og vart
nokkuð annað málverk í evrópskri list þykir
lýsa jafnljóslega ríkjandi kátinu, það liggur
við að skoðandinn „heyri hlátrasköll kósakk-
anna“. Myndin átti að túlka hinn frjálsa lífs-
stfl þessara manna sep aldrei höfðu kynnst
kúgun af neinu tagi. Á þessum árum málaði
Répin einnig fjölmargar andlitsmyndir, meðal
annars portrett af Lév Tolstoy greifa, af mál-
aranum Súríkov og vini sínum listagagnrýn-
andanum Stasov. Répin hafði fyrir megin-
reglu í verkum sínum að gæta jafnan fyllsta
samræmis milli forms og lita en pensiláferðin
skipti hann hins vegar mun minni máli. Til
þess að ná fram sterkum heildaráhrifum lagði
hann og mjög mikla áherslu á mannslíkam-
ann, stellingar hans, hreyfingar, svipbrigði,
andlitsdrætti.
Á síðari hluta 19. aldar var mikil pólitísk
ókyrrð í Rússlandi; voru það einkum tvær
mismunandi byltingarsinnaðar fylkingar sem
létu víða til sín taka með tilræðum gegn hátt-
settum embættismönnum, skemmdarverkum
og skipulögðum mótmælaaðgerðum og keis-
araveldið svaraði þessum vaxandi óróleika
með stöðugt harðneskjulegri lögregluaðgerð-
um og líflátsdómum. Gerðar voru nokkrar til-
raunir til að ráða Alexander II af dögum og
það tókst að lokum hinn 1. mars 1881 þegar
keisarinn ók í vagni sínum meðfram Kat-
arínukílun í Pétursborg. Keisarinn og sumir í
fylgdarliði hans voru sprengdir nánast í tætl-
ur. Tilræðismennimir þrír, þeir Rysakov,
Grinevitskij og Jemeljanov svo og hjálpar-
hella þeirra við ódæðið, byltingarkonan Sofia
Pérovskaja, voru tekin af lífi skömmu síðar
eða 16. apríl s.á. Öll þessi ódæðisverk bylting-
arsinnaðra hópa juku stöðugt á óróleikann og
höfðu djúp og varanlega áhrif á þjóðina í
heild. Gagnbyltingarkenndar skoðanir tóku
brátt að breiðast út, því enginn þóttist lengur
óhultur fyrir ofsafengnum ofbeldisverkum,
morðárásum og meiðingum. Répin var einn af
þeim sem tóku að efast um að unnt væri að
umbreyta rússnesku þjóðfélagi með blóðugri
byltingu og morðið á keisaranum var honum
sem og fleirum mikið áfall. í beinu sambandi
við voðaverk þau sem unnin höfðu verið í
landinu á þessum árum, lauk Répin árið 1885
við málverk af sögulegum atburði frá 16. öld
er Ivan grimmi réð syni sínum bana í ofsa-
fengnu bræðiskasti. Með þessu áhrifamikla
málverki var ætlun Répins að sýna fram á
voðann, hann vildi á þennan hátt fordæma öll
ofbeldisverk samtímans og mótmæla gegnd-
arlausum blóðsúthellingum byltingarsinnaðra
öfgahópa. Þetta óhugnanlega listaverk vakti
feiknarlega athygli og fór m.a. Lév Tolstoj
mjög lofsamlegum orðum um boðskap mynd-
arinnar, en hún er nú talin eitt af áhrifamestu
málverkum í heimslistinni frá 19. öld.
Á síðari árum startsferils síns hvarf Répin
þó smátt og smátt frá öllum þjóðfélagslegum
og pólitískum boðskap í verkum sínum en
sneri sér þess í stað æ meir að siðaboðskap
Tolstojs: Launið ekki illvirki með ofbeldi -
réttið fram hina kinnina! List Répins varð að
lokum að „hreinni" list án nokkurs félagslegs
eða siðgæðis boðskapar.
Ilja Efimovitsj Répin andaðst árið 1930 í
Kúokkala í Karelíu, Finnlandi, en þar hafði
hann búið og starfað nær óslitið síðasta ára-
tug ævinnar. Bærinn Kúokkala ber nú nafn
þessa mikilhæfa snillings í rússneskri málara-
list og heitir Pépino.
Höfundurinn er menntaskólakennari.
BJARNITH.
RÖGNVALDSSON
DAGS-
BIRTING
Aíót björtum augum styrkist fögur
stund
í stafakyrrð með vatnablik og gróður
er söngur fugla lyftir vorri lund
oglífsglöð vænting, fjallsins svali óður
fagnar léttri skúr og skini á hvarmi,
skjóli fyrir smágróður í hlíðum,
lækjaklið ogfjólum himinfríðum,
friði ogró er glaðnar dagsins bjarmi,
lyftir vængjum vindsins
morgunbjarta,
vonaryl í sólskinsglöðu hjarta.
Bættu þinn tón á tímaskeiði nýju
með traustri framsýn meðan árin
vara.
Ekki er réttmætt ráðin góð að spara,
þú raunsær ert með bros og innri
hlýju.
Horfðu fram á móti máttardögum,
miðlaðu oftaflandans reynslusögum.
Stöðugt efldu stefnu í sálarranni,
styrkur felst í því að verða að manni.
Nútímann þekktu, nýttu betur
daginn.
Notaðu góðviljann og prýddu bæinn.
Þá ergott að innra brosið bætir
brjóstvit, skilning, gildi þess sem er.
A vegi lífs þú Ijóssins töfrum mætir
íleyndum hjartans, eins og vera ber.
Þó eitthvað sé er dagfarguma grætir
er gustar flaumur orða um landið hér
mun góða viskan vinna unzyfírlýkur
og verðurlofí muntþú reynast slíkur.
Því margt á Jörðu á sinn óskatíma
og enginn fær mót hamingjunni að
glíma.
Höfundurinn er guðfraeðingur.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 23. DESEMBER 2000 1 5