Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Page 19

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.2000, Page 19
Guósmóðir og barnið eftir skoska listmálarann William Dyce (1806-1964) Á þessu einfalda en fágaða málverki eru bók Meyjarinnar - hefðbundið viskutákn - og athyglin sem barnið sýnir bók- inni einu merkin um að persónurnar á myndinni séu eitthvað annað en aðeins kona með barn sitt. Stóri steinofninn til hægri er þýðingarmesta heimilistækið í eldhúsinu í þessu tveggja hæða húsi í Neðri-Golanhæðum, sem hefur að hluta verið endurreist. Þótt flestar minjar sem varðveist hafa þarna séu frá 5. öld e. Kr. telja fornleifafræðingar að hús og heimili þar og í öðrum þorpum sem grafin hafa verið upp í Galíleu og næsta nágrenni hafi lítið breyst frá tímum Jesú. ' ' ■ ■ mm lyr.im? “f "-ni: Séð yfir Nasaret nú á tímum. Hæðin í bakgrunni er nefnd „Fjall hrindingarinnar" eða „Fjall stökksins" og er talin vera staðurinn þar sem reiðir íbúar borgarinnar ætluðu að hrinda Jesú fram af vegna þess sem hann kenndi í samkunduhúsi bæjarins, samanber Lúkasarguðspjall. MARTIN SORESCU SHAKESPEARE HJALTI ROGNVALDSSON ÞYDDI Shakespeare skapaði heiminn á sjö dögum. Fyrsta daginn himininn, fjöllin ogdjúp sálarinnar. Annan daginn fljótin, úthöfín oghinar tilfinningarnar Sem hann gaf Hamlet, Júlíusi Sesari, Antóníusi, Kleópötru og Ófelíu Óþelló oghinum Svo þau ogafkomendur þeirra hefðu stjórn á þeim um alla eilífð. Þriðja daginn safnaði hann öllum saman Ogkenndi allt um brögðin: Bragðið af hamingjunni, ástinni, örvæntingunni, Bragðið af öfundinni, ærunni ogsvo framvegis Uns öll brögðin kláruðust. Því næst stigu fram nokkrir einstaklingar til viðbótar sem höfðu komið of seint. Skaparinn strauk þeim með vorkunn um höfuðið Og sagði að fyrir þeim lægi ekkert annað En verða gagnrýnendur Og efast um verk sín. Fjórða ogfimmta daginn tók hann frá fyrir hláturinn Hann lét trúðana fara í kollhnís Og kóngana, keisarana Ogaðra óhamingjusama skemmta sér. Sjötta daginn leysti hann úrnokkrum stjórnunarvandamálum Og kom af stað stormi Og sýndi Lé konungi Hvernighann ætti að bera kórónu úrstráum. Afsköpun heimsins fundust nokkrir ógerðir hlutir Oghann skapaði Ríkharð III. Sjöunda daginn litaðist hann um hvort enn þyrfti eitthvað að gera Leikstjórarnir höfðu þegar kaffærtjörðina með auglýsingum Og Shakespeare þótti að eftir alla íyrirhöí'nina gæti meiraðsegja hann Unnt sér einnar leiksýningar. En fyrst, afþví hann var mjög þreyttur, Fórhann sína leið til að deyja örlítið. DANTE Gleðileikurinn guðdómlegi, far- andpýramíði Hallast dálítið að eilífðinni. Egheyri hann um nætur ímánaskini Er hann líður hægt um sandinn. Millimetra á ári, fram ogaftur Og liggur ekkert á. Og allra innst Umluktur líktog innan Er sjálfur skollinn. í sjálfum sér Hann spurði sjálfur kunningjana Þá nánu og hina sem hann hafði réttheyrt getið Og bjargaði þeim með handafli frá hvítum steinum fornaldar. Hörmungað vera umkringdur heilli vei'öld af dauðlegum! Svo hann smurðiþá Til að verða ekki einn í eilífðinni. Hann fyllti blaðsíðuna með öllu Sem gerst hafði ájörðinni. Níu himnar af synd, og níu af bið. Níu afblekkingum, Allir barmafullir Ogí miðju þessu: Dante. Hann skoðar helvítið, hreins- unareldinn og paradísina Og þegar honum leiðist skiptir hann um skilti fyrir utan. Hann lætur helvítisskiltið á paradísina Ogöfugt Og það gerist æ ofan í æ Þannig að hinir vesalings dauðlegu Hafa enga hugmynd um hvar þeir eru. Dante er svo þögull, æðarnar við gagnaugun þrútna Þegar þær ýta út pýramíðanum Sem hreyfist hægt A sandinum. Millimetra á ári, fram ogaftur, Og liggur ekkert á. Martin Sorescu er rúmenskt skáld, 1936-199ó. Honum er oft líkt við landa sinn Eugéne lonescu og hann hefur fengist við allar greinar ritlistar ásamt leikstjórn á eigin leikritum. Þýðandinn er leikari. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 23. DESEMBER 2000 1 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.