Morgunblaðið - 09.01.2001, Síða 1
6. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 9. JANÚAR 2001
HERLIÐ stjórnvalda á Fílabeins-
ströndinni lagði undir sig útvarps-
stöð í höfuðborginni Abidjan í gær,
nokkrum stundum eftir að uppreisn-
armenn úr hernum náðu stöðinni á
sitt vald og hvöttu félaga sína til að
taka þátt í valdaráni með sér.
„Því versta er aflokið,“ sagði
Emile Boga Doudou innanríkisráð-
herra um hádegið í gær. „Tími valda-
rána er liðinn.“
Lida Kouassi varnarmálaráðherra
sagði að 30 manns hefðu verið hand-
teknir í tengslum við uppreisnina og
leit stæði yfir að fleira fólki. Hann
sagði tvo herlögreglumenn hafa fall-
ið og margir hefðu særst. Allmargir
uppreisnarmenn hefðu fallið.
Kouassi sagði að ráðist hefði verið
á húsakynni útvarps og sjónvarps en
einnig forsetabústaðinn, herstöð og
bækistöð herlögreglumanna. Sett
var útgöngubann í Abidjan og á það
að gilda frá klukkan níu á kvöldin til
sex á morgnana næstu þrjá daga.
„Sáum eldglæringarnar þjóta
framhjá húsinu“
Susan Martin, fjármálastjóri
svæðisskrifstofu Alþjóðasambands
Rauða krossins í Abidjan, býr í
grennd við sjónvarpsstöðina. „Þetta
var svefnlaus nótt og ansi ævintýra-
leg reynsla,“ sagði hún í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöld. „Við
heyrðum skothríð í fjarska þegar
átökin hófust laust fyrir miðnætti.
Þau mögnuðust um nóttina og stóðu í
tólf klukkustundir. Við sáum eld-
glæringarnar þjóta framhjá húsinu.
Síðustu skothvellirnir heyrðust á há-
degi og skömmu síðar tilkynntu
stjórnvöld að uppreisnin hefði verið
kveðin niður.“
Að sögn Susan var allt með kyrr-
um kjörum í borginni í gærkvöld.
Hún bætti við að íbúar borgarinnar
væru í miklu uppnámi og uppreisnin
hefði komið þeim á óvart.
Valdaránstilraun kæfð
í fæðingu í Abidjan
Abidjan. AP, AFP.
TALIÐ er að rúmlega 100.000 Ísrael-
ar hafi í gærkvöld tekið þátt í mót-
mælum gegn hugmyndum um að eft-
irláta Palestínumönnum hluta af
Jerúsalem í skiptum fyrir frið. Bill
Clinton Bandaríkjaforseti sendi full-
trúa sinn í Mið-Austurlöndum, Denn-
is Ross, í gær til viðræðna við Ísraela
og Palestínumenn, en þeir síðar-
nefndu höfðu í gærmorgun hafnað til-
lögum Clintons að grundvelli til að
hefja friðarviðræður milli þjóðanna á
ný.
Bill Clinton lagði fram tillögur sín-
ar um viðræðugrundvöll milli Ísraela
og Palestínumanna á sunnudag, en
samningamenn Palestínumanna
höfnuðu þeim umsvifalaust í gær. Í
tillögunum er gert ráð fyrir að Pal-
estínumenn fái yfirráð yfir Gaza-
svæðinu og stærstum hluta Vestur-
bakkans og auk þess stjórn svæða
araba í Jerúsalem. Sett verði á fót al-
þjóðlegt friðargæslulið í Palestínu til
að gæta landamæranna við Ísrael, en
palestínskir flóttamenn fái ekki að
snúa aftur til Ísraels.
„Við getum ekki fallist á hugmynd-
ir Clintons sem grundvöll að viðræð-
um eða samkomulagi í framtíðinni.
Clinton hunsaði sjónarmið [Yassers]
Arafats og þessar tillögur uppfylla
ekki lögmæt réttindi þjóðar okkar,“
sagði Ahmed Korei, háttsettur samn-
ingamaður Palestínumanna, í samtali
við Reuters-fréttastofuna í gær.
Háttsettir palestínskir embættis-
menn tóku í sama streng og sögðu til-
lögurnar sniðnar að kröfum Ísraela.
Ehud Barak, forsætisráðherra
Ísraels, fagnaði hins vegar tillögum
Clintons í gær og sagði Ísraela reiðu-
búna að ganga til viðræðna á grund-
velli þeirra.
Dennis Ross var væntanlegur til
Mið-Austurlanda í dag, en litlar vonir
voru bundnar við að honum tækist að
koma friðarumleitunum aftur á rek-
spöl. Saeb Erekat, aðalsamninga-
maður Palestínumanna, var svart-
sýnn í gær. „Ég tel að það verði afar,
afar erfitt að ná samkomulagi áður en
Clinton lætur af embætti,“ sagði
hann við fréttamenn í gær.
Viðræður ísraelskra og palest-
ínskra öryggismálasérfræðinga um
hvernig binda megi enda á átökin á
sjálfstjórnarsvæðunum báru engan
árangur í gær, en þær voru haldnar í
Kaíró í Egyptalandi. George Tenet,
yfirmaður bandarísku leyniþjónust-
unnar (CIA), átti tíu klukkustunda
fund með fulltrúum þjóðanna í gær,
en Palestínumenn fullyrtu að viðræð-
urnar hefðu rekið í strand vegna
„ósveigjanleika Ísraela.“
Landnemar og
harðlínumenn mótmæla
Það voru fyrst og fremst ísraelskir
landnemar og hægrisinnaðir harð-
línumenn sem tóku þátt í mótmæl-
unum í Jerúsalem í gær gegn tillög-
um um að láta Palestínumönnum
eftir stjórn hluta borgarinnar í skipt-
um fyrir friðarsamkomulag.
Mótmælendurnir höfðu ætlað að
mynda keðju umhverfis múrana um
Musterishæðina í Jerúsalem, en lög-
regla kom í veg fyrir að mótmælin
næðu til svæða araba, til að afstýra
átökum. Á hæðinni eru helgir staðir
gyðinga, múslima og kristinna
manna.
Palestínumenn hafna tillögum Clintons um viðræðugrundvöll
Tugþúsundir Ísraela
mótmæla málamiðlun
Jerúsalem, Washington. AFP, AP.
AP
Ísraelskir mótmælendur við Musterishæðina í Jerúsalem í gærkvöldi.
SPRENGING varð í orkuveri í
þýsku iðnaðarborginni Duisborg í
gærkvöld og olli talsverðu tjóni.
Brak úr orkuverinu féll á nálægar
byggingar og bifreiðar.
Eldur blossaði upp í orkuverinu
og hann var slökktur innan
tveggja klukkustunda. Slökkviliðið
kvaðst ekki vita til þess að mann-
tjón hefði orðið.
Sprenging
í orkuveri
BERNARD Kouchner, æðsti yfir-
maður bráðabirgðastjórnar Sam-
einuðu þjóðanna í Kosovo, hvatti í
gær til þess að alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin, WHO, sendi sér-
fræðinga til að kanna hvort leifar
úr úran-skotfærum gætu valdið
hættulegri mengun. Atlantshafs-
bandalagið notaði úranhúðaðar
byssukúlur gegn skriðdrekum
Serba vorið 1999 og einnig gegn
Bosníu-Serbum 1994-1995.
Málið verður rætt á vettvangi
NATO og Evrópusambandsins í
dag. Ítalir hófu á sínum tíma að
kanna veikindi um 30 fyrrverandi
friðargæsluliða á Balkanskaga og í
desember fóru þeir fram á upplýs-
ingar af hálfu ráðamanna NATO.
Nokkrir hafa þegar látist úr hvít-
blæði á Ítalíu og í fleiri löndum.
Geislun getur valdið hvítblæði og
fleiri sjúkdómum en ekki hefur
tekist að sýna fram á tengsl milli
veikindanna og veru fólksins á
átakasvæðum þar sem beitt var úr-
anhúðuðum kúlum. Ýmsar þjóðir
láta nú kanna hvort friðargæslulið-
ar á vegum þeirra á Balkanskaga
hafi orðið fyrir geislun.
Úran-mengun á Balkanskaga
Vilja að WHO
rannsaki málið
Brussel. AP.
Viðvörun/26
HÁLF milljón Ítala leitaði til sær-
ingamanna til að reka út illa anda á
heilögu ári kaþólsku kirkjunnar
sem lauk á laugardag, samkvæmt
könnun sem birt var í ítalska tíma-
ritinu Maxim í gær.
Könnunin bendir einnig til þess
að þrír af hverjum fjórum Ítölum
trúi því að fólk geti verið haldið ill-
um öndum sem komi frá djöflinum.
Páfagarður viðurkennir nú 400
særingamenn á Ítalíu og hyggst
gefa út helgisiðabók um andasær-
ingar í ítalskri þýðingu. Bókin var
fyrst gefin út á latínu árið 1614 en
textanum var breytt 1999 með tilliti
til nútímavísinda.
Andasæring-
ar vinsælar
Róm. AFP.
♦ ♦ ♦