Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐMANN Þorvaldsson á Eski-
firði vonast til að geta klæðst
glænýjum íslenskum hátíðarbún-
ingi á þorrablóti sem haldið verð-
ur 20. janúar næstkomandi. Hann
festi kaup á klæðnaðinum hjá
versluninni JMJ á Akureyri um
miðjan desember og hugðist
klæðast honum um jólin. En ekki
gat af því orðið því fötin voru 21
dag á leiðinni frá Eskifirði til Ak-
ureyrar í pósti.
Málið er þannig vaxið að sonur
hans keypti fötin á Akureyri og
flutti með sér austur. Þegar Guð-
mann mátaði fötin kom í ljós að
þeim þurfti að breyta. „Mér
fannst ég lítill og pervisinn í
þessum stórkarlafatnaði,“ skrifar
hann í bréfi til eigenda versl-
unarinnar og þótti jafnvel líklegt
að fatnaðurinn væri ættaður frá
minjasafni á Dalvík og hefði ver-
ið í eigu Jóhanns Svarfdælings.
Eftir vísindalegar mælingar á
sköpulagi Guðmanns voru fötin
send til Akureyrar mánudaginn
18. desember síðastliðinn og
Ragnar Sverrisson, eigandi JMJ,
tók ljúfmannlega í að breyta
þeim í snarhasti svo Guðmann
gæti klæðst þeim um jólin.
Sólveig Eiríksdóttir, eiginkona
Guðmanns, sagði að þegar fötin
voru ekki komin fram föstudag-
Póstsending með föt var 21 dag á leiðinni frá Eskifirði til Akureyrar
Morgunblaðið/Kristján
Ragnar Sverrisson, kaupmaður í JMJ á Akureyri, með íslenska hátíð-
arbúninginn sem keyptur var til Eskifjarðar um miðjan desember sl.
Jólafötin
verða að
þorrafötum
Akureyri. Morgunblaðið.
inn 22. desember hefðu menn far-
ið að kanna málið. Pakkinn var
þá farinn frá Eskifirði fyrir
nokkru og í ljós kom á Þorláks-
messu að hann var á pósthúsi í
Reykjavík. Þá fóru þau hjón að
gæla við að karlinn gæti skartað
sínu fegursta í áramótafagnaði.
„Ekki komu fötin fram og við
vorum nú svona heldur svekkt,“
sagði Sólveig, „en mér var nú
allri lokið þegar fötin voru enn
ekki komin fram í versluninni
fyrir síðustu helgi. Þá var ljóst að
þessi sending var enn eitt klúð-
ursdæmið hjá Íslandspósti nú um
jólin,“ sagði Sólveig.
Langt ferðalag
Hún sagði að þessi sending frá
Eskifirði hefði þurft að fara um
Egilsstaði og til Reykjavíkur og
svo til Akureyrar og væntanlega
sömu leið til baka ef fötin yrðu
aftur send með Íslandspósti. Alls
yrði þetta rúmlega 1.300 km
ferðalag. Frá Eskifirði til Egils-
staða eru 48 km, þaðan um 380
km loftlína til Reykjavíkur og um
235 km flugleið til Akureyrar.
Fram og tilbaka er leiðin því um
1.300 km.
Pakkinn góði frá Eskifirði skil-
aði sér svo loks til Ragnars og
hans manna í JMJ í gærmorgun
og var strax hafist handa við þær
breytingar sem gera þurfti á
fatnaðinum. Þeim var lokið í gær,
fötunum pakkað að nýju og þau
send samdægurs aftur austur
með Íslandspósti og nú bíða menn
spenntir eftir því hvort fötin skili
sér fyrir þorrablótið.
„Þetta er eitt skemmtilegasta
vandamál sem við höfum lent í,
en þetta hefur staðið yfir frá því
um miðjan desember. Fólkið fyrir
austan hefur tekið þessu ótrúlega
létt,“ sagði Ragnar
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR hefur hækk-
að vexti á viðbótarlánum um 1,16 pró-
sentustig úr 4,54% í 5,70% og gilda
þeir vextir á árinu 2001. Vextir á lán-
um til leiguíbúða hækka um eitt pró-
sentustig úr 3,9% í 4,9% og sérstakur
lánaflokkur til leiguíbúða, þar sem
vextirnir voru í 1%, hefur verið felldur
niður, þar sem ekki er gert ráð fyrir
framlögum til Íbúðalánasjóðs á fjár-
lögum ársins í ár vegna þeirra. Vextir
af húsbréfalánum eru áfram óbreyttir
5,1%.
Hallur Magnússon, yfirmaður
gæða- og markaðsmála Íbúðalána-
sjóðs, segir að þessi vaxtahækkun
endurspegli þá almennu hækkun sem
orðið hafi á vaxtakjörum í landinu á
síðustu misserum. Viðbótarlánin og
lán vegna leiguíbúða séu fjármögnuð
með sölu húsnæðisbréfa og stjórn
Íbúðalánasjóðs beri að taka mið af
þeim kjörum sem þau beri. Ávöxtun-
arkrafa þeirra í þremur útboðum á
síðasta ári hafi verið 5,35% að meðtal-
inni söluþóknun og Íbúðalánasjóður
áskilji sér 0,35% til viðbótar til að
standa undir kostnaði við rekstur við-
bótarlánanna og því verði vextirnir á
þeim lánum 5,70% á árinu 2001. Vext-
ir á lánum til leiguhúsnæðis séu lægri
vegna þess að miðað sé við meðal-
ávöxtunarkröfu í útboðum húsnæðis-
lána á árinu 1999 og 2000, sem sé
4,74%. Að viðbættu álagi til að standa
undir rekstri, sveiflum í ávöxtunar-
kröfu og framlagi í sérstakan ábyrgð-
arsjóð hafi vextirnir á árinu 2001 ver-
ið ákveðnir 4,90%.
Greiðslubyrðin eykst
Vaxtahækkunin gerir það að verk-
um að greiðslubyrði einnar milljónar
kr. viðbótarláns eykst um 9.300 kr. á
ári. Meðalviðbótarlán á síðasta ári var
rúmlega ein og hálf milljón kr. og
eykst því greiðslubyrði meðallánsins
um rúmar 14.500 kr. á ári.
Viðbótarlán bætist ofan á venjulegt
húsbréfalán að fengnu samþykki hús-
næðisnefnda sveitarstjórna og getur
það að meðtöldu húsbréfaláninu num-
ið 90% af kaupverði íbúðar sé viðkom-
andi innan ákveðinna tekju- og eigna-
marka. 1.370 viðbótarlán voru veitt í
fyrra og 1.168 lán voru veitt á árinu
1999 en það var fyrsta árið sem þetta
kerfi, sem tók við af félagslega hús-
næðiskerfinu, var í gildi.
Hallur sagði að ekki væri sjálfgefið
að raungreiðslubyrði viðbótarlánanna
hækkaði sem ofangreindri fjárhæð
næmi en það væri háð því að viðkom-
andi hefði ekki fullnýtt rétt sinn til
vaxtabóta fyrir. Hins vegar væri að
hans mati eðlilegt að stjórnvöld end-
urskoðuðu vaxtabótakerfið svo tryggt
væri að eðlilegar vaxtahækkanir á
viðbótarlánum kæmu ekki niður á
tekjulægstu hópunum.
Vextir viðbótarlána
hækka í 5,70%
Vextir af viðbótarlánum/C40
ALLAR líkur eru á að skrifað verði
undir nýjan aðalkjarasamning kenn-
ara og stjórnenda við grunnskóla við
sveitarfélögin í dag. Gengið var frá
öllum aðalatriðum samkomulags
launanefndar sveitarfélaganna og
skólastjóra í nótt.
Birgir Björn Sigurjónsson, hag-
fræðingur og formaður launanefnd-
ar sveitarfélaga, sagði við Morgun-
blaðið undir miðnætti í gær að
saman væri að ganga. Sagði hann að
skrifað yrði undir nýjan aðalkjara-
samning á næsta sólarhring.
Í gær var tekið að gæta óþolin-
mæði meðal grunnskólakennara.
Þeir höfðu enda fyrir nokkru gert
nýjan kjarasamning, en hafa ekki
undirritað hann vegna þess ágrein-
ings skólastjóra við sveitarfélögin.
Grunnskólakennarar hafa ákveðið
að hefja kynningu á kjarasamningn-
um í þessari viku.
Á höfuðborgarsvæðinu verða
samningarnir kynntir á fundum með
trúnaðarmönnum og verður fyrsti
fundurinn með trúnaðarmönnum í
Reykjavík í dag.
Auk þess munu forystumenn
félagsins heimsækja fjölmarga skóla
á höfuðborgarsvæðinu til þess að
gera grein fyrir efni samningsins. Á
öðrum félagssvæðum verða haldnir
sérstakir kynningarfundir.
Væntan-
lega skrifað
undir í dag
STARFSMENN sorphreinsun-
arfyrirtækisins Njarðtaks í
Reykjanesbæ urðu varir við lif-
andi hænsni í sorpgámi í gær-
morgun. Þeir tilkynntu atvikið
til Heilbrigðiseftirlits Suður-
nesja.
Þar á bæ könnuðust menn við
málið og sögðu að sorpgámurinn
hefði tilheyrt fyrirtækinu
Gróðri, framleiðanda eggja. Um
frekari umsögn vísaði heilbrigð-
iseftirlitið til héraðsdýralæknis-
ins í Gullbringu- og Kjósarsýslu.
Ekki náðist tal af honum í gær
né forsvarsmönnum Gróðurs.
Ekki hafði lögreglunni í Kefla-
vík verið tilkynnt um atvikið.
Lifandi
hænsni í
sorpgámi
RÍKIÐ á eftir að semja við 58 félög
opinberra starfsmanna nú þegar búið
er að semja við Félag framhalds-
skólakennara.
Gunnar Björnsson, formaður
samninganefndar ríkisins, sagði að
búið væri að gera viðræðuáætlun við
öll þessi félög og formlegar samn-
ingaviðræður væru hafnar við 45
félög. Hann sagði að fram til áramóta
hefði nefndin átt samtals 175 fundi
með þessu félögum. Verkfalli fram-
haldsskólakennara lauk eftir 60 form-
lega samningafundi hjá sáttasemjara.
Ríkið á ósam-
ið við 58 félög
GENGI hlutabréfa í deCODE
genetics Inc., móðurfélagi Ís-
lenskrar erfðagreiningar,
lækkaði um 7,33% á Nasdaq-
hlutabréfamarkaðnum á Wall
Street í Bandaríkjunum í gær.
Lokagengi bréfanna var 8,6875
dollarar á hlut og hefur það
aldrei verið lægra. Fyrr um
daginn fór það niður í 7,75 doll-
ara á hlut.
Sé miðað við gengi bréfanna í
gær er markaðsvirði deCODE
um þrjátíu milljarðar íslenskra
króna.
Frá því að viðskipti hófust
með bréf deCODE á Nasdaq
hlutabréfamarkaðnum um
miðjan júlímánuð á síðasta ári
hefur gengi þeirra hæst farið í
31,5 en útboðsgengi deCODE
síðastliðið sumar var 18 dollar-
ar á hlut.
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isMargt þarf að laga hjá
íslenska landsliðinu/B7
Viðtal við Rúnar
Alexandersson/B4
16 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
Heimili
FASTEIGNIR
Gengi de-
CODE nið-
ur fyrir 9
dollara