Morgunblaðið - 09.01.2001, Síða 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 13
ÁSDÍS Halla Bragadóttir,
bæjarstjóri í Garðabæ, segir
að ástæða þess að bærinn
greiðir ekki niður leikskóla-
kostnað barna námsmanna
undir tveggja ára aldri, eða
annarra barna á þeim aldri,
sé sú að bærinn leggi höfuð-
áherslu á að sinna skyldum
sínum samkvæmt leikskóla-
lögum gagnvart börnum eldri
en tveggja ára. Hins vegar er
ráðgert að frá 1. september
nk. taki bærinn þátt í dagvist-
arkostnaði 1-2 ára barna með
11.000 kr. greiðslu á mánuði.
Í Morgunblaðinu á laugar-
dag var greint frá því að allt
að 20 þúsund krónum á mán-
uði muni á leikskólakostnaði
foreldra sex mánaða til
tveggja ára barna á leikskól-
anum Sólgarði, sem rekinn er
af Félagsstofnun stúdenta,
eftir því hvar á höfuðborgar-
svæðinu foreldrar barnanna
eru búsettir. Vegna niður-
greiðslna Reykjavíkurborgar
er gjaldið fyrir Reykvíkinga
rúmar 32 þúsund krónur á
mánuði en 52 þúsund kr. sé
fjölskyldan búsett í Garðabæ
eða Hafnarfirði en hvorugt
þeirra sveitarfélaga tekur
þátt í kostnaðinum.
Mál tveggja ára
og eldri fá forgang
Ásdís Halla sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að
Garðabær liti á það sem
skyldu sína að sjá öllum börn-
um tveggja ára og eldri fyrir
leikskólaplássi. „Við reynum
að sinna því eins vel og hægt
er og m.a vegna þess er það
svo að biðlistar eftir leik-
skólaplássi hér eru mjög litl-
ir,“ sagði Ásdís Halla og upp-
lýsti að um áramót hefðu 54
börn tveggja ára og eldri ver-
ið á biðlista eftir leikskóla-
plássi í bænum, eða 13% ald-
urshópsins, og taldi að
samkvæmt því væri staðan
betri en víðast annars staðar
á svæðinu.
Hún sagði að bærinn væri
að taka í notkun nýjan leik-
skóla í sumarbyrjun „og þess
vegna sýnist okkur að næsta
haust verði nánast engir bið-
listar eftir leikskólaplássum í
Garðabæ.“ Hún sagði jafn-
framt að það stefndi í að flest
þau börn sem verða tveggja
ára á árinu komist á leikskóla.
„Við setjum í forgang að
sinna lagalegum skyldum
okkar gagnvart elsta aldurs-
hópnum.“
Bæjarstjórinn sagði að
þegar því marki væri náð að
engin börn eldri en tveggja
ára biðu eftir plássi hygðist
bærinn taka þátt í dagvistar-
kostnaði yngri barna og frá 1.
september nk. væri áætlað að
taka þátt í kostnaði vegna 1-2
ára barna.
11 þús. kr. á mánuði
Það fyrirkomulag, sem á að
taka gildi 1. september nk.,
gerir ráð fyrir því að greiddar
verði 11 þúsund krónur á
mánuði vegna dagvistunar
1-2 ára barna, hvort sem er
vegna vistar hjá dagmóður
eða á einkareknum leikskól-
um. Samkvæmt því verður
kostnaður námsmanna, sem
búa í Garðabæ og hafa barn á
námsmannaleikskólanum Sól-
garði, um 41 þúsund krónur,
eftir að niðurgreiðslur hefj-
ast, en um 32 þúsund krónur
hjá reykvískum námsmönn-
um og um 34 þúsund krónur
hjá þeim sem búa í Kópavogi.
Ásdís Halla sagði að í því
tilviki væri miðað við einn
dýrasta leikskóla á höfuð-
borgarsvæðinu. „Ég veit ekki
hvernig það skýrist en held
að þeir sem standa að rekstri
hans þurfi að skoða það sér-
staklega.“
Hún sagði að kostnaður hjá
dagmæðrum væri væntan-
lega um 34-38 þúsund krónur
á mánuði eða um 23-27 þús-
und að teknu tilliti til vænt-
anlegra niðurgreiðslna.
„Við viljum að jafnræði sé
sem mest í bæjarfélaginu,“
sagði Ásdís Halla og sagði að
bærinn vildi láta niður-
greiðslur nema fastri fjárhæð
sem fylgdu hverju barni en
væru ekki breytilegar eftir
því hvar foreldrar barnsins
kysu að leita því vistunar.
Garðabær greiðir
vegna 1–2 ára
barna næsta haust
Garðabær
Munur á leikskólakostnaði barna námsmanna á höfuðborgarsvæðinu
SKIPULAGSSTOFNUN hef-
ur hafið athugun á umhverf-
isáhrifum vegna framkvæmda
við mislæg gatnamót Hring-
vegar og Víkurvegar og lagn-
ingar Reynisvatnsvegar að
Reynisvatni í Reykjavík.
Markmið framkvæmdarinnar
er að auka umferðarafköst
vegakerfisins vegna vaxandi
umferðar og jafnframt að
draga úr slysahættu. Reynis-
vatnsvegur er talinn nauðsyn-
legur til aðkomu að nýjum
íbúðarhverfum í Grafarholti.
Ráðgert er að byggja mislægu
gatnamótin í fjórum áföngum
og er áætlað að unnið verði við
byggingu 1.–3. áfanga á árun-
um 2001–2008.
Ef þörf krefur er áætlað að
byggja 4. áfanga árið 2024.
Ráðgert er að leggja Reynis-
vatnsveg í tveimur áföngum á
árunum 2001 og 2002. Leitað
hefur verið umsagnar Reykja-
víkurborgar, Náttúruverndar
ríkisins, veiðimálastjóra og
Heilbrigðiseftirlits Reykjavík-
ur. Framkvæmdaraðilar eru
Vegagerðin og Reykjavíkur-
borg, en ráðgjafi fram-
kvæmdaraðila er Almenna
verkfræðistofan hf.
Þrengt að Úlfarsá
Umhverfisáhrif fram-
kvæmdarinnar og áherslur við
mat á umhverfisáhrifum fram-
kvæmdarinnar snúa einkum
að náttúrufarsþáttum, loft-
gæðum og hljóðstigi. Fram-
kvæmdin mun þrengja nokkuð
að Úlfarsá en fjölskrúðugt
fugla- og dýralíf er við ána og á
vatnasviði hennar finnast allar
fimm tegundir ferskvatnsfiska
sem lifa og tímgast í fersku
vatni á Íslandi. Vistkerfi ár-
innar sem heild er talið við-
kvæmt fyrir raski, bæði fyrir
mengun og breytingum á
rennsli.
Tilkoma mislægra gatna-
móta er sögð munu minnka út-
blástur bifreiða miðað við
óbreyttan umferðarþunga og
loftmengun við Hringveginn
fram til ársins 2024 verði vel
undir leyfilegum mörkum.
Mótvægisaðgerðir
Í matsskýrslu kemur fram
að jarðvegsraski utan veg-
stæðisins verður haldið í lág-
marki og verður það lagfært
og grætt upp í verklok. Sér-
stakrar varúðar verður gætt
við vinnu nálægt Úlfarsá til að
koma í veg fyrir spjöll árbakka
og mengunar árinnar. Til að
koma í veg fyrir að mengun frá
umferð berist til Úlfarsár
verður afrennslisvatni af veg-
um veitt í niðurföll og síðan um
ræsi í settjarnir áður en það
rennur í viðtaka sem er Úlf-
arsá og Grafarvogur. Reiknað
er með að mest mengun sé á
fjölförnustu götunum og því
verður Úlfarsá hlíft við vatni
frá þeim og því vatni veitt um
settjarnir í Grafarvog. Fylgst
verður reglulega með efna-
innihaldi vatns sem rennur frá
settjörnum til Úlfarsár svo og
lífríki árinnar. Í matsskýrslu
kemur einnig fram að gripið
verði til sérstakra ráðstafana,
á takmörkuðu svæði, til að
verja íbúðarbyggð hávaða-
mengun. Verður það gert með
byggingu hljóðmana eða mót-
un lóða. Ekki er talin þörf
neinna mótvægisaðgerða
vegna loftmengunar.
Frestur til að
gera athugasemdir
Matsskýrslan liggur til 16.
febrúar í Foldasafni Borgar-
bókasafns Reykjavíkur við
Fjörgyn, í Þjóðarbókhlöðunni
og hjá Skipulagsstofnun í
Reykjavík. Almenningur hef-
ur sex vikur til að kynna sér
framkvæmdina og leggja fram
athugasemdir. Athugasemdir
þurfa að vera skriflegar og
berast Skipulagsstofnun eigi
síðar en 16. febrúar nk.
Skipulagsstjóri kannar umhverfisáhrif vegna
mislægra gatnamóta Hringvegar og Víkurvegar
Mislæg gatna-
mót byggð í
fjórum áföngum
Grafarholt
TALIÐ er að um 2000
manns hafi sótt þrett-
ándabrennu í Mosfellsbæ á
laugardag.
Mikið var um dýrðir í
Mosfellsbæ á þrett-
ándanum. Gengið var fylktu
liði í blysför frá miðbænum
og að brennunni. Skóla-
hljómsveit Mosfellsbæjar
undir stjórn Birgis Sveins-
sonar fór í fylkingarbrjósti
og Mosfellskórinn hélt uppi
fjöldasöng í göngunni.
Álfakóngur og Álfa-
drottning voru við brenn-
una ásamt Grýlu, Leppa-
lúða og þeirra skylduliði.
Björgunarsveitin Kyndill
hélt flugeldasýningu við
brennuna en að henni lok-
inni hélt Leikfélag Mosfells-
sveitar þrettándaskemmtun
í bæjarleikhúsinu þar sem
ókeypis var inn á fjöl-
breytta dagskrá. Mosfell-
ingar kvöddu svo jólin á
þrettándaballi í Hlégarði.
Morgunblaðið/Jim Smart
Fjöldi fylgdist með þrettándabrennunni.
Þótt svalt væri í veðri klæddu brennugestir sig vel og
fylgdust með brennunni og flugeldasýningunni.
Ýmsar furðuverur voru við brennuna.
Flugeldasýningin gerði
lukku hjá ungum sem
gömlum Mosfellingum.
Fjölmenn
þrettánda-
brenna
Mosfellsbær
NÝJAR tillögur gatnamála-
stjóra um úrbætur á ofan-
vatnsmálum í Reykjavík
liggja nú fyrir hjá embætti
borgarverkfræðings og
verða skoðaðar vandlega á
næstunni. En eins og kom
fram í máli Guðjóns Magn-
ússonar, á skrifstofu for-
stjóra Orkuveitu Reykjavík-
ur, síðastliðinn laugardag,
hefur verið mjög erfitt fyrir
Orkuveituna að taka á mál-
um varðandi affall í Elliða-
árnar, vegna þess að þau
eru í höndum borgarverk-
fræðings.
Þegar Morgunblaðið hafði
í gær samband við Ólaf
Bjarnason hjá embætti
borgarverkfræðings, til að
kanna hvar umrædd mál
væru stödd í kerfinu, feng-
ust þau svör, að gatnamála-
stjóri hefði um miðjan des-
ember lagt fram mikla
skýrslu, þar sem gerðar
væru sundurliðaðar tillögur
um úrbætur á ofanvatnsmál-
um í Elliðaárdalnum, og
sem yrðu skoðaðar nánar og
um þær fjallað á allra næstu
dögum og vikum og síðan
væntanlega á grundvelli
þeirra gerð tímasett fram-
kvæmdaáætlun. Skýrslan
verður lögð fram í borgar-
ráði í dag.
Nýjar tillögur liggja fyrir
Reykjavík
Ofanvatnsmál Elliðaáa