Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 20
VIÐSKIPTI 20 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ FULLTRÚAR allra helstu seðlabanka heims tilkynntu eft- ir fund sinn í Sviss í gær að bú- ist væri við hægum hagvexti í alþjóðahagkerfinu á árinu 2001 en samdráttur væri að þeirra mati afar ólíklegur. Fundarmenn voru sammála um að þrátt fyrir hrakspár margra um samdrátt í banda- ríska hagkerfinu, sem er það stærsta í heimi, þá benti allt til þess að það væri einungis að hægja á sér og myndi ná „mjúkri lendingu“ á þessu ári eftir að hafa náð miklu flugi á fyrri hluta ársins 2000. Hagvöxtur ársins á bilinu 1,5 til 3% Á fundinum kom fram að framleiðni hefur aukist í Banda- ríkunum og sé enn að aukast, en væntanlega muni væntingar fjárfesta verða raunhæfari aft- ur þegar hagvöxturinn minnk- ar. Flestir fulltrúar seðlabank- anna telja að tveggja til þriggja prósenta hagvöxtur verði í Bandaríkjunum á árinu, sem er um helmingur þess sem var á fyrri hluta síðasta árs. Þá er talið að vegna áhrifa frá Bandaríkjunun minnki hag- vöxtur lítillega á evrusvæðinu, eða niður í u.þ.b. 3%. Hagvöxt- ur í Japan verður áfram lítill, líklega 1,5 til 2%, en ólíklegt er að um samdrátt verði að ræða. Áfram hagvöxtur um allan heim Reuters VELTA kreditfærslna hjá Europay Ísland um færslusöfnunarkerfi var 24,3 milljarðar króna á árinu 2000, en árið 1999 var veltan 18,3 milljarðar króna. Aukningin milli ára er því 32,5%, en var 38,3% árið áður. Færslufjöldi í færslusöfnunarkerf- unum nam 5,9 milljónum færslna og jókst um 9,1% milli ára. Í tilkynningu frá Europay kemur fram að aukn- ingin árið 2000 var mest í viðskiptum milli fyrirtækja. Utan þessara talna eru boðgreiðslur, raðgreiðslur, hrað- bankaúttektir og kortanotkun Ís- lendinga erlendis. Hins vegar er velta af kortanotkun erlendra kort- hafa hér á landi meðtalin. Velta Maestro-debetfærslna banka og sparisjóða í færslusöfnun- arkerfum nam 33,8 milljörðum króna í fyrra og jókst um 16,6% milli ára. Færslumagn Maestro-debetkorta nam 10,1 milljón færslna og jókst um 15,8% milli ára. 58% af fjárstreymi um færslusöfnunarkerfi árið 2000 voru debetfærslur og 60% af færslu- magni árið 2000. Árið 1999 voru deb- etfærslur 59% af færslumagni. Velta kreditfærslna í desember var 2,6 milljarðar króna og er það 24,8% aukning milli ára, en meðal- velta á mánuði í fyrra var 1,8 millj- arðar króna. Velta debetfærslna var 3,8 milljarðar króna og er það 12,3% aukning milli ára, en meðalvelta á mánuði árið 2000 var 2,8 milljarðar. Veltuaukningin 32,5% milli ára hjá Europay GOÐI HF. mun á næsta ári setja á laggirnar eina stærstu kjötvinnslu- stöð landsins með sameiningu fjög- urra kjötvinnslna í eigu félagsins, í eina. Gert er ráð fyrir að hin nýja kjötvinnsla og höfuðstöðvar félagsins verði í nýju húsnæði í Mosfellsbæ. Kjötvinnslurnar sem um ræðir eru kjötvinnsla Goða á Kirkjusandi í Reykjavík, kjötvinnsla Nóatúns í Faxafeni í Reykjavík, kjötvinnslan Höfn á Selfossi og Borgarnes-kjöt- vörur í Borgarnesi. „Þetta er í beinu framhaldi af sam- einingu félaganna á síðasta ári“, segir Kristinn Þór Geirsson, framkvæmda- stjóri Goða, og vísar til þess þegar Goði hf. varð til við sameiningu Borg- arness-Kjötvara ehf. í Borgarnesi, sláturhúss og kjötvinnslu Kaupfélags Héraðsbúa á Egilsstöðum, Kjötum- boðsins hf. í Reykjavík, Norðvestur- bandalagsins hf. á Hvammstanga og Þríhyrnings hf. Þá keypti félagið í nóvember sl. tvær kjötvinnslur af Kaupási, kjötvinnsluna Höfn á Sel- fossi og kjötvinnslu Nóatúns. „Markmiðið er að ná fram öllum þeim hagræðingarmöguleikum í þessum geira sem þessi stærð gefur færi á og til að það gangi eftir þarf að sameina kjötvinnslurnar á einn stað“, segir Kristinn Þór og bætir við að fyrirtækið muni einnig þurfa að hag- ræða í slátruninni. Fyrirtækið hefur áhuga á flytja sameinaða kjötvinnslu í nýtt húsnæði í Mosfellsbæ en að sögn Kristins Þórs standa viðræður við bæjaryfirvöld enn yfir. Þá hafi ekki verið gengið frá samningi við byggingarverktaka um nýja húsnæðið en viðræður þess efnis standa einnig yfir. „Við munum hefja sameininguna sem fyrst og áætlum að geta flutt upp úr næstu áramótum, ef allt gengur vel. Verði hins vegar einhverjir hnökrar á sameiningarferlinu þá tef- ur það vitanlega fyrir. Það má því segja að flutt verði á fyrri helmingi ársins 2002.“ Ákveðið hefur verið að bjóða starfsmönnum sem nú starfa við kjötvinnslu á Selfossi og í Borg- arnesi að starfa áfram hjá fyrirtæk- inu í Mosfellsbæ og verða þeir fluttir til og frá vinnustað kvölds og morgna. Kristinn Þór segist þó gera ráð fyrir því að einhverjir starfsmanna kjöt- vinnslnanna fjögurra muni segja upp störfum við sameininguna. Fjórar kjötvinnslur Goða sameinaðar AMERICAN Airlines (AA), annað stærsta flugfélag Bandaríkjanna, á nú í viðræðum um kaup á Trans World Airlines (TWA), sem er átt- unda stærsta flugfélagið, að því er fram kemur í The Wall Street Journ- al. TWA hefur átt í fjárhagserfiðleik- um að undanförnu og mun sam- komulag um kaupin vera skammt undan. Jafnframt hefur AA samþykkt að kaupa 20% af eigum US Airways, sem er sjötta stærsta flugfélag Bandaríkjanna. Kaupin á þessum 20% koma sér vel fyrir stærsta flug- félag Bandaríkjanna, United Air- lines (UA), sem hyggst kaupa US Airways, en eiga á hættu að sam- keppnisyfirvöld hindri þau áform. Líkur á að samkeppnisyfirvöld geri athugasemdir við kaupin eru taldar minnka við sölu á þessum 20% hluta. Ef af öllum þessum viðskiptum verður, munu AA og UA bera höfuð og herðar yfir önnur flugfélög í Bandaríkjunum. UA verður áfram stærst, með um 26% markaðshlut- deild í stað 19% nú, og AA verður áfram í öðru sæti, með um 25% markaðshlutdeild í stað 17% nú. Í þriðja sæti verður Delta Air Lines með um það bil 15% markaðshlut- deild. Frekari samruni hugsanlegur Að því er fram kemur í The Wall Street Journal er talið að frekari samruni flugfélaga kunni að fylgja í kjölfarið ef af þessum verður, því stærð skipti máli í flugrekstri líkt og mörgum öðrum atvinnugreinum. American Airlines og United Airlines Stærstu flug- félögin stækka Reuters American Airlines (AA), annað stærsta flugfélag Bandaríkjanna, á nú í viðræðum um kaup á Trans World Airlines SÆNSKA símafyrirtækið Telia hef- ur hafið samstarf við einn helsta keppinaut sinn um rekstur UMTS- farsímakerfis í Svíþjóð. Umsókn Telia var óvænt hafnað þegar fjórum leyfum til reksturs á farsímakerfum var úthlutað í desember. Í gær var tilkynnt að Telia og Netcom, eigandi farsímafyrirtækisins Tele2, myndu stofna sameiginlegt fyrirtæki um rekstur á UMTS-farsímakerfi. Tele2 var eitt fjögurra fyrirtækja sem fékk úthlutað leyfi í desember. Fyrirtæk- in tvö munu hafa jafnan aðgang að Netinu, en keppa um viðskiptavin- ina. Þau munu geta nýtt að nokkru leyti stöðvar og möstur í GSM-síma- kerfum sínum, en kostnaði vegna uppbyggingar á nýjum stöðvum munu þau skipta á milli sín. Sam- starfið þykir vera áfall fyrir fyrir- tækið Europolitian HI3G, sem fékk einnig úthlutað UMTS-leyfi, en talið var að það væri líklegasti samstarfs- aðili Telia. Forsvarsmenn Telia segja á hinn bóginn að áætlun Euro- politian HI3G um uppbyggingu kerf- isins sé óraunhæf. Umsókn Telia um leyfið var á sínum tíma hafnað vegna þess að fyrirtækið þótti ekki lofa nógu mikilli og hraðri uppbygginu. Telia kærði í kjölfarið úthlutun leyf- anna og þeirri kæru verður haldið til streitu þrátt fyrir samstarfið við Netcom. Hlutabréf í bæði Telia og Tele2 hafa hækkað í kjölfar sam- starfsyfirlýsingarinnar. Frá þessu segir í netútgáfu blaðsins Dagens Nyheter. Telia og Netcom í samstarf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.