Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 21
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 21
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14
Við Fellsmúla
Sími 588 7332
www.heildsoluverslunin.is
Tilboð
Sturtuhorn úr öryggisgleri m. segullæsingu.
Allar gerðir fáanlegar í hvítu eða með stáláferð.
Kantað horn
Stærðir:
65 til 80 cm
75 til 90 cm
Verð frá kr.
15.900,- stgr.
Rúnnað horn úr sveigðu
öryggisgleri. 4 eða 6 mm.
Stærðir 80x80 eða 90x90 cm.
Verð frá kr. 27.750,- stgr.
H
ön
nu
n
&
u
m
b
ro
t
eh
f.
©
2
00
0
–
D
V
R
05
4
- trygging fyrir l
águ verði!
VINNUSTAÐUR Ístaks í Smára-
lind hlaut nýverið viðurkenningu
Trésmiðafélags Reykjavíkur fyrir
aðbúnað á vinnustað en aðbún-
aðarnefnd félagsins hefur á und-
anförnum vikum verið að störfum
og skoðað ýmis fyrirtæki og beint
athyglinni að stórum útivinnustöð-
um. „Í ár varð vinnustaður Ístaks í
Smáralind fyrir valinu. Öll aðstaða,
s.s. kaffistofa, hreinlætisaðstaða og
fatageymsla er til mikillar fyr-
irmyndar. Öll umgengni á vinnu-
svæðinu sjálfu góð, notkun per-
sónuhlífa og öryggisatriði, s.s.
handrið, lokun opa og annað, eins
og best verður á kosið. Þessir hlut-
ir eru skoðaðir sérstaklega í því
ljósi að fallslys eru ein algengustu
og alvarlegustu slysin í bygging-
ariðnaði. Það er annað við þennan
vinnustað sem ber að vekja sér-
staka athygli á. Á vinnustaðnum er
virk öryggisnefnd sem fylgist með
öryggismálum frá degi til dags, fer
yfir það sem betur má fara og gerir
fyrirbyggjandi ráðstafanir,“ segir í
upplýsingum frá Trésmiðafélagi
Reykjavíkur. Aðbúnaðar- og ör-
yggismál hafa verið meðal baráttu-
mála Trésmiðafélags Reykjavíkur
um langa hríð. Með samstilltu átaki
félagsins, Vinnueftirlits ríkisins og
annarra aðila hefur ástand aðbún-
aðar, umgengni á vinnustað og ör-
yggisþátta batnað á undanförnum
árum til muna. „Þó verður að segja
að í því þensluástandi sem verið
hefur undanfarið hafa komið inn á
markaðinn annars vegar rekstr-
araðilar sem má segja að búið hafi
verið að leggja vegna óhæfni til
rekstrar fyrirtækja og hins vegar
nýir aðilar sem þurfa aðeins ögun
og meiri skilning á aðbúnaðar- og
öryggismálum. En þetta eru fáir
svartir sauðir. Heildin hefur batn-
að til muna.“
Morgunblaðið/Kristinn
Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur, og Páll
Sigurjónsson, forstjóri Ístaks, skoðuðu vinnusvæði Ístaks í Kópavogi.
Ístak fær viðurkenn-
ingu fyrir aðbúnað
BANDARÍSKI bílaframleiðandinn
General Motors, GM, ætlar að loka
tímabundið átta verksmiðja sinna í
Bandaríkjunum og Kanada þar til
fyrirtækið hefur losað sig við 1,3
milljónir óseldra bifreiða sem til
eru á lager. Miðað við sölu í des-
embermánuði þýðir það rúmlega
þriggja mánaða birgðir en tveggja
mánaða birðir teljast eðlilegar í
þessum iðnaði. Þeir starfsmenn
verksmiðjanna sem tilheyra sam-
tökum bandarískra starfsmanna í
bílaiðnaði munu fá 95% launa sinna
greidd en kanadískir starfsmenn fá
65% sinna launa. Búist er við að
Ford Motor og Chrysler muni einn-
ig hefja lokanir á næstu dögum og
vikum en bílasala hefur minnkað
mikið að undanförnu og ekki þykir
sýnt að hún aukist aftur á komandi
mánuðum.
GM lokar átta verksmiðjum
AP.