Morgunblaðið - 09.01.2001, Qupperneq 22
NEYTENDUR
22 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Verslunin Svalbarði
Framnesvegi 44
Sérverslun með íslenskt góðmeti
Mikið úrval af harðfiski og hákarli. Saltfiskur, flattur og flök,
sólþurrkaður, útvatnaður, mareneraður.
Saltfiskrúllur og saltfiskbollur. Plokkfiskur.
Orðsending til þorrablótsnefnda:
Eigum harðfisk og hákarl í þorratrogin og útbúum einnig
þorrabakka.
Sendum um land allt.
Pantanasími: 562 2738, fax 562 2718
ÚTSALA Í húsi Fálkans, Suðurlandsbraut 8, sími: 533 50 90
Þar sem gæði og gott verð fara saman...
Opið virka daga 10-18,
laugardaga 10-16.
Mikið úrva
l - mikill a
fsláttur
Stórlækka
ð verð!
Glæsilegu
r kvenfatn
aður
Kuldagalla
r
Barnafatn
aður
Geisladisk
ar í úrvali
Raftæki
Peysur
Úlpur
Skyrtur
Feðgarnir Olliver og Philip Paul
frá Þýskalandi voru staddir á
Laugaveginum þar sem þeir voru
að skoða útivistarfatnað. „Það er
mjög erfitt að finna eitthvað á
góðu verði á Íslandi,“ sögðu þeir.
„Þótt vörur séu á góðum afslætti
eru þær samt sem áður alltaf dýr-
ari en í Þýskalandi og því borgar
sig ekki fyrir okkur að versla
hér.“
Þeir sögðust þó hafa heyrt af
einni útivistarbúð þar sem góður
afsláttur væri í boði og ætluðu sér
að kíkja þangað. „Vetrarfatnaður
er almennt mjög vandaður í versl-
unum hér og ég er ekki búinn að
gefa upp alla von um að finna eitt-
hvað á góðu verði,“ sagði Olliver.
Aðspurður sagðist hann ekki
geta kvartað yfir kuldanum sem
ríkt hefði á landinu að undanförnu
enda væri almennt mun kaldara í
Þýskalandi á þessum tíma árs.
„Við erum því ekki að leita að
vetrarfatnaði til þess að klæðast á
Íslandi, heldur þegar við förum
aftur til Þýskalands,“ sögðu þeir.
Dýrt að versla
á Íslandi
Edda Elíasdóttir, verslunarmaður
frá Akranesi, var stödd á Lauga-
veginum skömmu eftir að útsölur
hófust. Hún sagðist þó ekki hafa
gert sér sérstaka ferð til Reykja-
víkur til þess að kanna vöruúrval
og afslætti enda væri af nógu af
taka í heimabæ hennar, Akranesi.
Hún rekur
tískuvöruversl-
unina Ósk á
Akranesi en
sagðist ekki
selja sjálf úti-
vistarfatnað og
því hefði hún
notað tækifærið
og fjárfest í
skíðabuxum með verulegum af-
slætti. „Ég var mjög ánægð með
verðið á þeim,“ sagði hún. „Þær
lækkuðu úr rúmum 12.000 krónum
niður í 4.990, sem er nokkuð gott.“
Aðspurð sagði hún útsölurnar á
Akranesi yfirleitt mjög góðar og
vöruúrval mikið og því hefðu
Skagamenn enga þörf á að gera
sér far til Reykjavíkur til þess að
sækja heim útsölurnar þar.
Selur ekki
útivistarfatnað
Rita Didriksen, var að koma úr
Vinnufatabúðinni á Laugaveginum
þar sem hún hafði keypt buxur á
eiginmanninn
með 20% af-
slætti.
Hún hafði kíkt
í margar búðir að
eigin sögn og
fannst ótrúlegt
hve búðir gætu
lækkað verð mik-
ið. „Það eru áber-
andi miklar verð-
lækkanir í búðum og það fær mann
til að hugsa hvort venjuleg álagning
kaupmanna sé ekki óeðlilega mikil
fyrst hægt er að lækka verð svo
mikið á útsölum,“ sagði hún.
„Mér finnst reyndar fólki ekki
gefast miklir möguleikar á því að
skipta vörum eftir jólin. Það er rétt
búið að opna aftur eftir jól og hefur
verið lokað í mörgum verslunum
vegna vörutalningar og útsölur eru
hafnar nú þegar.“
Hún bætti því þó við að hún ætl-
aði að forðast búðir eins og Hag-
kaup næstu dagana því þar yrði ef-
laust ekki þverfótað fyrir fólki á
útsölunni.
Ótrúlegt hve
búðir geta lækkað
verð mikið
Ásdís Geirdal er búsett á Hvann-
eyri í Borgarfirði og gerði sér far
í höfuðborgina til þess eins að
gera kostakaup
á útsölum. Hún
hafði verið í
Kringlunni og
sagðist ánægð
með afrakst-
urinn. „Ég
keypti aðallega
föt á sjálfa mig
og fékk það
sem mig vant-
aði með allt að 40% afslætti,“
sagði hún. Aðspurð sagði hún það
með ráðum gert að bíða með að
versla það sem hún þarfnaðist þar
til útsölurnar hæfust en auk þess
að kaupa föt á sjálfa sig hefði hún
notað tækifærið og verslað nokkr-
ar afmælisgjafir.
Hún sagðist nokkuð ánægð með
úrvalið að þessu sinni og þóttir af-
sláttur í flestum verslunum góður.
Gerði sér far
í borgina
ÚTSÖLURNAR í janúar hafanáð að festa sig í sessi und-anfarin ár enda er hægt að
gera góð kaup víða um land þar
sem afsláttur nemur allt að 70% í
ýmsum verslunum.
Morgunblaðið ræddi við þó
nokkra vegfarendur í Reykjavík
sem flestir virtust sammála um að
útsölurnar í ár væru með besta
móti. Mörgum þótti úrval gott og
afsláttur ríflegur og höfðu þó
nokkrir geymt sér að versla ýmsan
varning þar til útsölurnar hæfust.
Verslunarmenn virtust þó al-
mennt samróma um að það tæki
fólk flest nokkra daga að átta sig á
því að útsölur væru byrjaðar, en
straumur fólks í verslanir ykist dag
frá degi. Útsölur hefðu ekki byrjað
samtímis í öllum verslunum en þeim
færi sömuleiðis fjölgandi.
Þeir sögðu jafnframt að augljóst
væri að margir kæmu í verslanir í
leit að tiltekinni vöru og að margir
biðu eftir janúarútsölunum í þeirri
von að geta gert góð kaup.
Aldrei vitað jafn
mikið útsöluæði
Auk hefðbundins tískufatnaðar
var áberandi mikill afsláttur af úti-
vistarfatnaði þrátt fyrir að vetur
konungur hafi svo að segja ekki
gengið í garð fyrr en tiltölulega ný-
verið enda voru ófáir vegfarendur
með í pokum útigalla á börnin og
snjógalla á sjálfa sig sem eflaust á
eftir að koma að góðum notum það
sem eftir lifir vetrar.
Í útivistarversluninni Nanoq í
Kringlunni var mikill handagangur í
öskjunni á öðrum degi útsölunnar
enda nær allar vörur í versluninni
seldar með um 40%–60% afslætti.
Christian Hyldetoft, verslunarstjóri
Nanoq, var sérstaklega ánægður
með viðtökur viðskiptavina og sagði
þær mun betri en hann hefði þorað
að vona. Hann hóf störf í október og
er þetta því fyrsta stóra útsalan
hans í versluninni. „Það hefur verið
ofboðslega mikið að gera síðan út-
salan hófst og bjóst ég ekki við jafn
miklu æði og raun ber vitni, sér-
staklega þegar litið er til þess hve
jólasalan var góð hjá okkur. Ég er
nú reyndur verslunarmaður frá
Noregi og vanur útsölum þaðan en
hef aldrei séð jafn mikið brjálæði og
í Íslendingum. Þetta er alveg frá-
bært enda mikil stemmning og
greinilegt að landsmenn kunna að
notfæra sér góða afslætti,“ sagði
hann.
Líkt og í öðrum verslunum er út-
salan í Nanoq að sögn Christian til
þess gerð að hægt sé að grynnka á
lager verslana og rýma fyrir nýjum
sendingum en hún mun að öllum
líkindum standa yfir í nokkrar vik-
ur.
40–60%
afsláttur
algengur
Morgunblaðið/Þorkell
Janúarútsölurnar hafnar um land allt og víða möguleiki á kostakaupum