Morgunblaðið - 09.01.2001, Side 23

Morgunblaðið - 09.01.2001, Side 23
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 23 Bjarni Bjarnason var á Laugaveg- inum ásamt félögum sínum en hafði ekki komið sérstaklega í tilefni útsöl- unnar. „Ég þurfti að skipta flík sem ég fékk í jólagjöf og var mjög ánægður með þjónustuna sem ég fékk í versl- uninni,“ sagði hann. „Útsalan var rétt nýbyrjuð en það var samt sem áður ekkert mál að fá að skipta. Ég fékk meira að segja vöruna sem ég skilaði endur- greidda á fullu verði og gat tekið út nýja vöru á útsöluverði. Það má eig- inlega segja að ég hafi grætt á þessu.“ Þegar hann er spurður að því hvort það séu ekki vonbrigði að líta í búð- arglugga í janúarbyrjun og sjá vörur á hálfvirði sem keyptar hafi verið á fullu verði fyrir nokkrum vikum til jólagjafa segir hann svo óneitanlega vera. „Það bætir þó örlítið fyrir það þegar maður græðir á því að skipta jólagjöfinni,“ sagði hann og brosti. Ánægður með skiptin Kristjana Óskarsdóttir sagðist bara rétt vera að kíkja á útsölurnar en hafði samt keypt kápu á sjálfa sig með 40% afslætti og buxur á eig- inmanninn með 20% afslætti. „Ég var reyndar búin að ákveða fyr- irfram að kaupa hvort tveggja og var mjög ánægð með það sem ég fékk,“ sagði hún. Þegar hún var spurð um úrvalið í verslunum sagðist hún verulega hissa yfir vöruúrvalinu og hve útsöl- urnar væru góðar. „Það kemur mér mjög á óvart hvað það er ótrúlega mikið af góðri vöru og mikill af- sláttur af mörgu á útsölunum í ár.“ Hún sagðist hins vegar vera búin að ljúka ætlunarverkinu og hafa keypt það sem hana vantaði og hún ætlaði sér ekki á fleiri útsölur að þessu sinni. Bara rétt að kíkja Birgir Júlíusson var á leið í upp- áhaldsbúðina sína á Laugaveginum en hafði komið við í símabúð á leiðinni og keypt sér síma á tilboðsverði. Hann sagðist almennt ekkert sérstaklega dug- legur að versla á útsölum en hafði samt beðið eftir þeim vísvitandi að þessu sinni. Hann sagðist ekki láta verð og afslætti stjórna því hvar hann verslaði eða hvað hann keypti. „Ég fer í upp- áhaldsbúðirnar mínar ef það er út- sala þar og kaupi það sem mig vantar og finnst flott,“ sagði hann. Aðspurður sagði hann að GK á Laugaveginum væri ein þeirra búða og hann væri einmitt á leið þangað í leit að buxum og skóm. Á leið í uppáhalds- búðina sína Eva Mjöll Einarsdóttir og Rakel Pétursdóttir höfðu eytt fjórum klukkustundum á Laugaveginum og voru á heimleið. Þær höfðu keypt sér bol og peysu og sögðust hafa ákveðið áður en þær lögðu af stað hvað þær vantaði. Þær voru nokkuð ánægðar með út- sölurnar og sögðu vel hægt að gera góð kaup. „Sums staðar eru góðir af- slættir og mikið úrval þótt útsöl- urnar séu ekki byrjaðar alls staðar,“ sögðu þær. Aðspurðar sögðust þær yfirleitt kíkja á útsölurnar þegar þær væru í gangi en það væri afar misjafnt hve þær keyptu sér mikið. Búnar að vera í fjóra tíma

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.