Morgunblaðið - 09.01.2001, Side 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 29
EVA Mjöll Ingólfsdóttir fiðluleik-
ari kemur fram á tónleikum í
Salnum í kvöld kl. 20. Með henni
leikur Svetlana Gorokhovitsj
píanóleikari. Á efnisskrá eru verk
eftir Sergei Prokofiev, Ernest
Bloch og Piotr Tsjajkovskíj.
„Þetta verður á rússnesku nót-
unum hjá okkur, bæði mjög falleg
og krefjandi tónlist. Við byrjum á
krefjandi verki, Sónötu í d-moll
op. 94 a eftir Prokofiev. Þá leik-
um við Nigun eftir Bloch. Ákaf-
lega ástríðufullt verk. Loks flytj-
um við tvö falleg verk eftir
Tsjajkovskíj, Serenade mel-
ancolique og Meditation Scherzo,“
segir Eva Mjöll en fiðluleikur
hennar þykir einmitt bera keim af
hinum austur-evrópska og rúss-
neska skóla sem er þekktur fyrir
slípaðan og fíngerðan en jafn-
framt tilfinningaþrunginn tón.
„Þessi hefð hefur alltaf verið í
uppáhaldi hjá mér. Það er eitt-
hvað sem býr í mér – hún hentar
mínum persónuleika vel.“
Taka upp geislaplötu
Efnið sem stöllurnar leika á
tónleikunum verður hljóðritað á
næstu dögum og gefið út á geisla-
plötu síðar á árinu.
Eva Mjöll og Svetlana fluttu
sömu efnisskrá á tónleikum í
Islamabad í Pakistan á dögunum
en þar hefur Eva Mjöll einmitt
verið búsett undanfarin tvö ár.
„Þar var okkur afskaplega vel
tekið.“ Eiginmaður Evu Mjallar
starfar hjá Þróunarstofnun Sam-
einuðu þjóðanna og áður hafa þau
búið í Afríku og Japan. Á vormán-
uðum liggur leið þeirra til Nepal.
„Við flökkum töluvert í sambandi
við hans starf. Þetta er voðalega
spennandi líf. Ég hef kannski ekki
mikinn stuðning, listrænt séð, í
þessum löndum en á móti kemur
að ég hef mikið næði og tíma. Ég
er eini starfandi fiðluleikarinn í
Islamabad en þar er enginn
píanóleikari,“ segir Eva Mjöll.
Enginn stuðningur við
listir í Pakistan
Hún segir listir almennt ekki
ofarlega á baugi í Pakistan.
„Þetta er múhameðstrúarland og
fyrir vikið er enginn stuðningur
við listir. Þeirra tónlistarhefð
kemur frá Indlandi en maður
verður lítið var við að þar sé ein-
hver vöxtur á sviði menningar og
lista. Þannig voru flestir, sem
sóttu tónleikana okkar Svetlönu,
útlendingar. Þeir eru þyrstir í
viðburði af þessu tagi og voru al-
veg ofboðslega þakklátir. Þarna
voru líka Pakistanar og það er
mjög gaman að spila fyrir þá –
þeir eru svo áhugasamir áheyr-
endur. Taka virkan þátt í því sem
fram fer og eru ekkert hræddir
við að sýna hrifningu sína. Þannig
heyrðum við iðulega húrrahróp
og klapp inni í miðjum verkum.“
Eva Mjöll hélt aðra tónleika í
Islamabad fyrir um ári, ásamt
dóttur sinni, Andreu Kristins-
dóttur, sem er ellefu ára. Hún
leikur líka á fiðlu. „Það voru
styrktartónleikar með verkum
eftir Bach en þarna er mikil fá-
tækt. Það er því mjög vel þegið ef
maður vill leggja sitt af mörkum.“
Léku í Carnegie Hall
Eva Mjöll og Svetlana kynntust
í New York fyrir fjórum árum og
hafa haldið góðu sambandi síðan.
„Árið 1998 gáfum við út geisla-
plötu og héldum af því tilefni fjöl-
marga tónleika, þar á meðal í
Carnegie Hall. Einnig í Washing-
ton og Kanada, auk þess að við
komum hingað heim. Þar sem
Svetlana býr í New York hittumst
við sjaldan. Hún kom til Pakistan
til að undirbúa þessa efnisskrá
með mér og svo hittumst við hér.
Þetta er auðvitað mikið ferðalag
en hún var fús að leggja þetta á
sig.“
Svetlana er fædd í Kazan, Rúss-
landi. Hún ólst upp við hina ög-
uðu hefð í píanóleik og lauk námi
frá tónlistarháskólanum í Péturs-
borg með hæstu viðurkenningu og
doktorsnafnbót. Fyrir níu árum
flutti hún til Bandaríkjanna, þar
sem hún er virk sem einleikari,
kennari og þátttakandi í flutningi
kammertónlistar.
Eini fiðluleikar-
inn í Islamabad
Morgunblaðið/Kristinn
Svetlana Gorokhovitsj og Eva Mjöll Ingólfsdóttir koma langt að.
Eva Mjöll Ingólfsdóttir
á fiðlutónleikum í Salnum
MAÓRÍABÖRN frá Nýja-Sjálandi
sjást hér dansa hefðbundinn maóría-
dans fyrir Jóhannes Pál páfa II í
Vatíkaninu á dögunum.
Börnin tóku þar þátt í hátíðarhöld-
um sem efnt var til í tilefni af því að
nú lýkur árslangri hátíð í Páfagarði
vegna 2000 ára afmælis Krists.
AP
Dansað
í Páfagarði